Fréttabréf Ættfræðifélagsins - nóv. 2020, Blaðsíða 6

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - nóv. 2020, Blaðsíða 6
6http://www.ætt.is Fréttabréf Ættfræðifélagsins í nóvember 2020 aett@aett.is kennslunnar. Þarna var Bjarni við kennslu í þrjú ár, eða þar til hann fór aftur til Reykjavíkur til að fara í Prestaskólann. Það sama ár, 1891, fór Kristín með börnin til Reykjavíkur, en komið var að skólagöngu hjá börnum hennar. Í Reykjavík sameinuðust syst- kinin Benedikt, Árni, Jón og Valborg og virðist hafa verið þó nokkur samgangur á milli þeirra, en til eru margar ljósmyndir af þeim saman frá þessum tíma. Öll fengu börnin að ganga menntaveginn. Bræðurnir þrír, Benedikt Gröndal, Árni og Jón fóru í Lærða skólann, en Valborg Elísabet, sem þá var aðeins tólf ára gömul, fór í Kvennaskólann. Benedikt varð vel liðinn og þekktur sem kennari og skrifari bæjarfóg- eta í Reykjavík. Árni gerðist menntaskólakennari á Akureyri og Jón varð prestur, fyrst á Suðurnesjum og því næst á Stað á Reykjanesi í A-Barðastrandarsýslu, þar sem hann þjónaði lengst. Bjarni Símonarson lauk Candid námi sínu árið 1893, en fékk sér þá vinnu í Reykjavík, vafalaust til þess að vera nálægt Kristínu á meðan börn henn- ar voru enn við nám. Þau Bjarni og Kristín giftu sig 12. ágúst 1897, en í janúar það ár fékk Bjarni veit- ingu fyrir brauðinu á Brjánslæk á Barðaströnd og 11. maí 1897 vígðist hann þangað. Brúðkaupsárið þeirra var Bjarni þrítugur en Kristín 47 ára gömul. Þessi mikli aldursmunur kom ekki í veg fyrir að þau hjón ættu afar gott hjónaband og var heimili þeirra alla tíð orðlagt fyrir gestrisni og góðvild. Á Brjánslæk Nú var Kristín flutt langt frá heimahögum og tekin við bústjórninni á stóru prestsheimili á ný. Árið 1901 voru samkvæmt manntali um tuttugu manns skráðir til heimilis á Brjánslæk. Þar voru tvö barna Kristínar, þau Árni og Valborg Elísabet, móðir Kristínar, Ragnheiður Jónsdóttir, 77 ára að aldri, móðir Bjarna, Sigríður Davíðsdóttir, 56 ára að aldri, þrjú systkin húsbóndans Bjarna, þau Magnús, sjö ára, Herdís, ell- efu ára og Ingigerður, 25 ára. Auk þess voru á bæn- um vinnukonur og vinnumenn, leigjendur og fólk á meðgjöf. Einnig bjó hjá þeim nákominn ættingi húsfreyju, Sigurður Pálsson, sem seinna átti eftir að verða eigin- maður Valborgar, dóttur Kristínar. Þannig virðist það hafa verið góð leið til kynningar milli hjónaefna ef ungt fólk fór á milli bæja og fékk að vera um tíma inni á heimilum hjá ættingjum eða vandalausum, samanber Bjarna Símonarson, sem þannig kynntist Kristínu konu sinni þegar hann vann sem kennari í Innra-Fagradal, og Sigurð Pálsson, sem á sama hátt kynntist Valborgu konu sinni á Brjánslæk. Þegar hjónin Kristín og Bjarni fluttu að Brjánslæk árið 1897 var þar afar bágur húsakostur. Staðarhúsin voru öll úr torfi og grjóti, fyrir utan kirkjuna sem var úr timbri, en hún var bæði lítil og léleg. Flest voru húsin í mjög slöku standi og það var því eitt af fyrstu verkum Bjarna og Kristínar að bæta úr þessu eftir því sem efni leyfðu. Árið 1908 létu þau reisa litla, en mjög fallega, járnvarða timburkirkju eftir teikningum Rögnvaldar Ólafssonar húsameistara. Séra Bjarni var sjálfur laghentur, lagði sitt af mörkum við smíðarnar á nýju kirkjunni og skreytti stólinn gylltu letri með til- vísunum í ritninguna. Þegar kirkjubyggingunni var lokið hófust þau handa við að reisa sér íbúðarhús, og árið 1912 reis á Brjánslæk fyrsta steinhúsið í sveitinni, tvílyft hús með háum kjallara. Bjarni og Kristín gengust einnig í að láta laga kirkjugarðinn, en mikilla þrengsla gætti orðið í honum. Létu þau stækka garðinn og hlaða fall egan torfvegg um hann á þrjá vegu. Með þessum umbótum var kirkjugarðurinn lengi talinn með feg- urstu görðum á landinu. Bjarni varð fljótt vinsæll prestur og mikið til hans leitað. Kristín hélt úti stóru heimili og varð Brjánslækur vinsæll viðkomustaður fólks á ferðalög- um, ekki síst þeirra sem voru að ferðast á milli Vestfjarða og Suðurlands. Elliheimili Kristín hefur eftir myndum að dæma verið lagleg og ýmislegt kunni hún fyrir sér í handiðn og hússtjórn. Þá má gera ráð fyrir því að hún hafi verið góðhjört- uð, því eitthvað gott hefur það verið sem dró þau Bjarna saman. Hún var jafnframt hávaxin og grönn, því skautbúningurinn sem hún saumaði sér, þegar hún sat í festum, ber vitni um það. Um Bjarna hefur ver- ið sagt að hann hafi ekkert aumt mátt sjá, öllum vilj- að vel og aldrei farið í manngreinarálit. Kristín virðist hafa verið röggsöm kona og mikil húsmóðir og eftir lýsingum að dæma var hún góður gestgjafi og þótti gaman að taka á móti gestum. Hún taldi ekki eftir sér að hafa inni á heimilinu fullorðið fólk sem þurfti að- hlynningar við, en bæði móðir hennar og tengdamóð- ir eyddu síðustu æviárunum í skjóli Kristínar. Systkinin Árni, Jón, Benedikt og Valborg Elísabet Þorvaldsbörn.

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.