Fréttabréf Ættfræðifélagsins - Nov 2020, Page 13
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í nóvember 2020
http://www.ætt.is aett@aett.is13
Það var árið 1793 sem skólasveinar Hóla-
vallarskóla reistu sér skólavörðu á Arnar-
hólsholtinu. Þessi varða gaf síðar holtinu það
nafn sem það hefur enn í dag, Skólavörðuholt,
og sömuleiðis Skólavörðustígnum, sem lengi
gekk undir nafninu Skemmtibrautin.
Þessi skólavarða átti sér forvera í Skálholti og á
að hafa verið eftirmynd hennar. Það merkilega er að
hennar sér þar enn stað. Hún stóð norðan við kirkj-
una, ferhyrndur turn, hlaðinn úr ótilhöggnu grjóti.
Hún er í dag að nokkru endurhlaðin, en þó ekki í
upprunalegri mynd. Skólavarðan í Skálholti er talin
reist á 12. eða 13. öld, trúlega þá sem varðturn. Hún
varð síðar aðalfundarstaður skólapilta í Skálholti og
þar fóru fram vígsluathafnir nýnemanna. Í vörðunni
héldu tólf efstu skólapiltarnir, s.k. notari og inspector
schole, leynifundi sína. Á brúnum skólavörðunnar
voru fjórir bekkir og var þar rúm fyrir tólf skólapilta,
þrjá á hverri hlið. Á hornum vörðunnar voru reistir
ferhyrndir steinar, nokkru hærri en bekkirnir. Ofan í
vörðuna miðja var laut eða skál og þar hvíldu fætur
skólasveinanna er þeir er sátu á bekkjunum.
Skólavarða var einnig reist á Hólum og var hún
uppi í hlíð Kálfsstaðafjalls, beint á móti Hólastað.
Fáum sögum fer af henni eftir að skólahald var lagt
Guðfinna Ragnarsdóttir:
Skólavörðurnar
Hér má sjá sökkulinn af gömlu skólavörðunni í Skálholti.
Saga hennar nær aftur á 12. eða 13. öld.
Hún var fyrirmynd fyrstu vörðunnar á Arnarhólsholtinu
sem reist var 1793.
þar af 1802. Hún mun hafa verið endurhlaðin fyrir
aldamótin 1900, en er nú rústir einar.
Skólavarðan kom einnig við sögu í öðrum sið
skólasveina, herópinu, en sérstakar hefðir mynduðust
um ferðir skólapilta til og frá skólunum. Herópin
voru nokkurs konar hróp sem skólapiltar ráku upp á
ákveðnum áfangastöðum á leið í skólann. á haustin.
Það gerðu þeir bæði í Skálholti og í Hólavallarskóla
eftir að hann var stofnaður árið 1786. Engar frásagn-
ir eru um slík heróp Hólapilta. Enginn veit í dag hvað
skólasveinarnir hrópuðu, eða hvernig það hljómaði,
en það var kallað signum.
Þeir Skálholtssveinar, sem komu að austan, hróp-
uðu fyrsta herópið við Nautavað á Þjórsá, annað her-
ópið við Skálholtshamar við Hvítá og þriðja her-
ópið við Skálholtsvörðuna í Skálholti. Þeir sem
komu að sunnan og vestan hrópuðu fyrsta herópið
á Laugarvatnsvöllum, við hellana, annað við vaðið
á Brúará og þriðja við skólavörðuna í Skálholti, þar
sem hóparnir mættust.
Eftir að Skálholtsskóli var lagður niður og
Hólavallarskóli stofnaður, reistu skólasveinar vörðu í
Reykjavík árið 1793 og var fyrsta signum skólasvein-
anna við Elliðaárnar, annað í Öskjuhlíðinni og hið
þriðja við Skólavörðuna á Arnarhólsholti, en undir
því nafni gekk holtið lengi, þar sem þar höfðu staðið
beitarhús frá Arnarhóli. Til gamans má geta þess að
fyrsta skólavarðan var einmitt hlaðin úr grjóti úr beit-
arhúsunum góðu sem gáfu holtinu sitt fyrsta nafn.
Mannvistarlög og öskulagarannsóknir sýna að
byggð hefur verið á Arnarhóli alveg frá landnáms-
öld en Arnarhólsbærinn kemur þó fyrst við sögu
Vorbjartan sumardag 1793 stikuðu skólapiltar frá
Hólavöllum yfir þvera Reykjavíkurkvos neðan við
Tjörn upp Þingholt og þangað sem víðast sá yfir
vík og eyjasund að Arnarhólsholti. Flestir voru þeir
klæddir sortulituðum mussum, buxum niður fyrir
hné með vírborða um legginn. Margir báru þeir á
höfði skotthúfur með grænum eða svörtum silkiskúf.
Þeirra ferð var ekki án fyrirheits, því að þeir tíndu
saman grjót úr holtinu, lögðu grunn og hlóðu, unz
risin var há og myndarleg varða. Þar með hafði
hinn sjö ára gamli höfuðstaður landsins (1786 var
Reykjavík gerð að kaupstað) eignazt skólavörðu á
borð við þá, er staðið hafði langan aldur norður
af skólasetrinu í Skálholti. Og næsta haust, þeg-
ar skólasveinar komu í Hólavallaskóla, æptu þeir
heróp mikið við Elliðaár, annað á Öskjuhlíð og hið
þriðja og síðasta við Skólavörðuna, svo að heyrð-
ist um alla Kvosina og yfir til Hólavalla. Heróp
þetta kölluðu þeir „signum“. Þannig fluttust gaml-
ir siðir frá hinu forna menningar- og skólasetri í
Skálholti til Reykjavíkur.