Fréttabréf Ættfræðifélagsins - nov. 2020, Side 16
16http://www.ætt.is
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í nóvember 2020
aett@aett.is
Valdimar Gunnarsson:
Hver var Jón Jónsson?
Þetta er einhver algengasta ráðgáta þeirra sem fást við ættfræði, ekki síst 18. og 19. aldar.
Það má virðast með ólíkindum hversu algengt Jónsnafn var – og ekki síst Jón Jónsson. Það verður svo sem að
viðurkennast að stundum gat verið snúið að auðkenna Jón Jónsson sérstaklega, t.d. í fæðingar- og dánarskýrslum.
En stundum er þetta Jónafár beinlínis fyndið – þangað til kemur að sundurgreiningunni.
Samkvæmt manntalinu 1860 var til heimilis á Egilsstöðum í Arnarbælissókn eftirtalið fólk:
Nafn kyn hjúskapur aldur stand
Jón Jónsson karl giftur 32 bóndi
Vilborg Jónsdóttir kona gift 28 kona hans
Jón Jónsson karl ógiftur 8 þeirra barn
Jón Jónsson karl ógiftur 2 þeirra barn
Bjarni Jónsson karl ógiftur 26 lausamaður
Jón Þorgeirsson karl ógiftur 54 lifir á eigum sínum
Jón Björnsson karl giftur 52 bóndi
Steinunn Jónsdóttir kona gift 54 kona hans
Jón Jónsson karl ógiftur 15 þeirra barn
Jón Jónsson karl ógiftur 10 þeirra barn
Einar Jónsson karl ógiftur 27 húsbóndans barn
Þessar 11 persónur bera allar nafn Jóns, annaðhvort sem skírnar- eða föðurnafn. Merkilegt er að sjá þarna tvö
pör bræðra sem heita allir Jón Jónsson.
Það hefur ekki verið einfalt mál að standa þarna á hlaðinu og kalla á Jón.
Þegar manntal er tekið á Egilsstöðum árið 1870 hafa orðið nokkrar breytingar á fólkstalinu því þá eru þessir
taldir:
Nafn kyn hjúskapur aldur stand
Halldór Guðmundsson karl ekkill 68 bóndi
Málfríður Þórhalladóttir kona ógift 57 bústýra
Ari Vigfússon karl giftur 45 vinnumaður
Una Eyjólfsdóttir kona ógift 39 vinnukona
Jón Björnsson karl ekkill 70 bóndi
Jón Jónsson karl ógiftur 24 hans sonur
Jón Jónsson karl ógiftur 20 hans sonur
Vilborg Jónsdóttir kona gift 38 vinnukona
Ingimundur Jónsson karl ógiftur 6 hennar barn
Ingimundur sem hér er síðast talinn er yngstur þeirra átta barna sem Vilborg Jónsdóttir eignaðist með manni
sínum, Jóni Jónssyni.
Ekki er ljóst hvað varð um Jón Jónsson, mann Vilborgar, en tveim árum síðar en þetta var, nefnilega 1872, eign-
aðist hún dreng með Jóni nokkrum Jónssyni, yngismanni á Egilsstöðum. Hvað skyldi sá drengur hafa heitið?
Auðvitað Jón Jónsson.
En hvor yngismaðurinn á Egilsstöðum skyldi hafa verið faðir þessa síðasta Jóns Jónssonar?