Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2017, Page 3

Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2017, Page 3
VEL KOM IN Á HINSEGIN DAGA 2017Welcome to Reykjavik Pride 2017 Kæru vinir Í byrjun þessa árs bárust þau ánægjulegu tíðindi að Hinsegin dagar hefðu verið valdir úr hópi fjölda hátíða og hlotið nafnbótina borgarhátíð Reykjavíkur. Útnefningin var staðfest með sérstökum þriggja ára samningi og fjárframlagi frá Reykjavíkurborg. Þessi útnefning staðfestir að Hinsegin dagar eru lykilhátíð í hátíðadagskrá borgarinnar og hafa ótvírætt gildi fyrir menningarlífið í borginni, alþjóðleg tengsl, ferðamennsku og ímynd – enda eru Hinsegin dagar fyrir löngu orðnir hefðbundinn þáttur í borgarlífinu. Samt er hátíðin ný á hverju ári. Af þessu tilefni er þema Hinsegin daga árið 2017 hinsegin list og listafólk. Við erum svo lánsöm að vera rík af alls konar listafólki sem hefur verið óhrætt við að stíga fram í dagsljósið og spyrja óþægilegra spurninga um stöðu hinsegin fólks á Íslandi. Hinsegin listafólk ögrar með því sem það segir, gerir og sýnir. Það hefur verið mikilvægt breytingarafl og stuðlað að því að opna hug fólks gagnvart tilvist hinsegin fólks. Gestum hátíðarinnar býðst nú að njóta margs konar viðburða, m.a. á sviði ljósmyndunar, kvikmyndagerðar, tónlistar og bókmennta, og líkt og fyrri ár er fræðsluviðburðum gert sérstaklega hátt undir höfði. Að lokum viljum við benda á nýja viðbót við gleðigönguna, Gleðigöngupottinn sem er styrktarstjóður fyrir atriði sem hyggjast taka þátt í gleðigöngu Hinsegin daga. Styrkjum úr sjóðnum er m.a. ætlað að aðstoða þátttakendur við að standa straum af kostnaði við hönnun atriða, leigu ökutækja og efniskaup. Frekari upplýsingar eru á hinsegindagar.is. Gleðilega hátíð! Dear friends As of this year, and for the next three years, Reykjavik Pride is officially one of Reykjavík’s key city festivals. This honor shows that Reykjavik Pride has established itself as a key event in the festival calendar in Reykjavik and reaffirms all the hard work performed by hundreds of volunteers throughout the years to advance local LGBTIQ culture, diversity and human rights. The theme of Reykjavik Pride for 2017 is ‘LGBTQI art and artists’, celebrating the rich culture of Icelandic LGBTQI artists who are known for boldness and for using their art as a platform to ask uncomfortable questions about their life and identity. Their contribution has been monumental in changing minds and changing hearts towards LGBTQI people in the Icelandic society. This year’s schedule includes a wide variety of events, such as film screenings, concerts, photo exhibitions and literature events that will hopefully give a small taste of what Icelandic LGBTQI culture has to offer, along with a wide variety of educational events. Finally, those who want to participate in the Pride Parade might be interested in the new ‘PrideFund’, a financial support for parade floats meant to cover the cost of transport, design and material. For more detail visit reykjavikpride.is. Happy Pride! Stjórn Hinsegin daga 2017: Reykjavik Pride’s management team 2017: Eva María Þórarinsdóttir Lange – formaður / president Gunnlaugur Bragi Björnsson – gjaldkeri / treasurer Jón Kjartan Ágústsson – varaformaður / vice president Karen Ósk Magnúsdóttir – ritari / secretary Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson – meðstjórnandi / board member 3

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.