Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2017, Blaðsíða 46
rólegur og þögull. Ég vinn oftast einn.
Í dag er ég mjög hrifinn af því að leika
mér með ólíkar litasamsetningar en
litunartækni er farin að snúast miklu
meira um djúpa liti og skvettutækni í
litunarferlinu. Ég elska það!
Ertu meðvitað að storka staðalímyndum
um kynin með því að vera karlmaður
sem prjónar og hannar litríkar flíkur?
Hönnunin mín er sannarlega hýr og
kvenleg en það er ekki gert meðvitað
eða í ákveðnum tilgangi. Ég reyni bara
að vera ég sjálfur; að skapa fallega hluti
sem ég myndi vilja klæðast. Fæstir
karlmenn myndu klæðast flíkunum
mínum en sjálfur hef ég alltaf verið mjög
kynlaus í hönnuninni minni. Mér finnst
gaman að leika mér með rýmið milli
kynjanna. Hönnunin mín er oft blanda af
karlmannlegum og kvenlegum þáttum
en ég hanna aldrei með einhverja hugsun
um hverju karlmaður eða kona myndi
klæðast. Ég hugsa meira rýmistengt og
leik mér með hlutföll, áferð og liti. Þetta er
allt skemmtilegur leikur.
Er mikið af sjálfum þér í hönnuninni
þinni?
Algjörlega. Prjón og hönnun hefur alltaf
endurspeglað mig og hvar ég er staddur í
lífinu. Sífellt að breytast, leika mér, leita að
hamingjunni og tengjast fólki sem veitir
mér innblástur í prjóni.
Hvað er svo framundan?
Ég er alltaf að vinna að nýrri hönnun og
myndböndum og fljótlega munið þig
sjá nýtt tónlistarmyndband frá mér sem
var tekið upp á Íslandi. Það er blanda
af Íslandi, Cher og Westknits. Ég á búð í
Amsterdam, www.stephenandpenelopy.
com, og ég stefni að því að vera með
fullt af nýju efni til sölu í sumar. Svo getið
þið svipast um eftir litríkum, hávöxnum
prjónara á Íslandi í júlí og ágúst!
46