Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2017, Blaðsíða 52

Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2017, Blaðsíða 52
einfeldnin varðandi transmálefni. Þetta var svo „svart-hvítt“. Annaðhvort var málið að fara í kynleiðréttingu, og þá í skurðaðgerð á kynfærunum, eða þú varst „bara“ transvestite – svona hobbí fígúra. Ég fór að aggítera fyrir því að málið væri ekki svona einfalt og talaði mikið fyrir því að um væri að ræða litróf þar sem allur skalinn væri undir. Þegar ég svo var kosin formaður félagsins átti ég nokkur samskipti við þá nýstofnað teymi Landspítalans sem hafði með málefni trans fólks að gera. Hafa ber í huga að á þessum árum var enn verið að tala um trans í samhengi geðrænna sjúkdómsskilgreininga. Það sem aðallega skiptir máli í þessu samhengi er skilgreining Landspítalateymisins á því hvað það væri að vera trans. Hún gekk í stórum dráttum út á að ef manneskja fyrirliti kynfæri sín, gæti ekki horft á þau og hataði þau, þá væri viðkomandi trans og ætti þar með rétt á aðstoð kerfisins. Í ljósi minna rannsókna og eigin vitundar gekk þetta einfaldlega ekki upp. Ég var sannfærð um að oft væri verið að þvinga einstaklinga í aðgerð sem myndi ekki leiða til lausnar fyrir þá. Hafandi fæðst með typpi og verandi listamaður fór ég auðvitað að rannsaka þetta líffæri. Ég fór að teikna typpi og mála, rétt eins og listamaður rannsakar fjölda annarra fyrirbæra. Ég hóf ítarlega skoðun á þessum líkamshluta, sem auðvitað var viðleitni til að sættast við sjálfa mig sem „typpa-veru“. Ég vildi sýna að konur gætu verið fallegar og eðlilegar, jafnvel með typpi og það væri í rauninni alveg sjálfsagt. Ég setti þetta upp í listrænu samhengi: „konur með typpi“. Þetta varð því ákaflega persónuleg sýning og ég gat ekki séð hana fyrir mér á neinum öðrum stað en í samhengi Hinsegin daga, því hinsegin samfélagið á Íslandi hefur átt hvað stærstan þátt í því að ég hef getað sæst við sjálfa mig og lifað því lífi sem mér er mikilvægt og nauðsynlegt. Finnst þér umhverfi trans fólks á Íslandi í dag ennþá einkennast af svart-hvítum viðhorfum? Það hefur margt gerst í málefnum trans fólks, ekki bara á Íslandi. Það virðist vera mikil vitundarvakning og þekking og umburðarlyndi hefur aukist til muna bara í minni tíð. Hér á Íslandi hefur viðhorfið breyst mikið, ekki síst þegar kemur að fagfólki sem sér um málefni trans fólks á vegum Landspítalans. Það hafa svo sannarlega bæst við gráir tónar í umræðuna og við höfum þokast langt áleiðis. Viðhorfið er í raun allt annað og betra nú en t.d. þegar ég var að koma út fyrir tuttugu árum. Í lýsingu á sýningunni sagði meðal annars að hinsegin myndlist væri á mörkum þess að teljast sæmileg, hvað þá fyrir alla! Hvað áttirðu við með þessu? Ég held að hinsegin myndlist geti verið fyrir alla, hvað svo sem það er, en í okkar samfélagi í dag er myndræn framsetning á kynfærum ekki fyrir alla. Sérstaklega þykir það ósæmandi fyrir börn. Hvort það er gott eða slæmt skal ósagt látið. En ég get allavega sagt að þeir foreldrar sem komu með börn sín á sýninguna sendu þau strax út og vildu ekki láta þau sjá verkin. Það sem ég meinti var að þessi sýning væri einungis fyrir þá sem væru vaxnir upp úr því að sjá eitthvað „ljótt“ og „ósæmilegt“ við kynfæri og ég vildi ekki troða þessum verkum upp á fólk sem ekki vildi sjá þau. Viðfangsefni myndverka þinna er oft kyn og hvað aðskilur kynin. Við fyrstu sýn eru mannslíkamar einnig áberandi. Er þetta leið fyrir þig til að tjá hugsanir sem annars væri erfitt að tjá með orðum? Klárlega. Ég hef oft rætt um það uppi í Listaháskóla að ég valdi myndlist sem minn tjáningarmáta vegna þess að ég á betra með að tjá mig með myndum en orðum. Myndir segja líka meira eins og orðatiltækið segir – myndir segja meira en þúsund orð. Myndmál er al-mannlegt, alþjóðlegt, og eins og allir vita sem tala fleiri en eitt tungumál er oft ekki hægt að segja ákveðna hluti á einu tungumáli sem hægt er að tjá með öðru. Myndmálið getur sagt svo miklu meira og nákvæmar en orðin ein. Orð ná einfaldlega ekki yfir allt. Þess vegna erum við t.d. stöðugt að búa til nýyrði, ekki síst þegar kemur að trans tilveru. Slík tilvera hefur ekki verið viðurkennd á Íslandi til þessa og þ.a.l. skortir orð og orðræðu um það. Hinsegin listamenn eru oft stimplaðir sem slíkir og umræða um þá snýst oft, og kannski aðallega, um hinsegin sjálfsmynd þeirra. Rekast einhvern tímann saman innra með þér þau sjónarmið að vilja annars vegar deila reynslu þinni í gegnum listsköpun og hins vegar ósk um að trans reynsla þín sé ekki það eina sem fjallað er um? Hér er ég til dæmis í viðtali – en væntanlega ekki fyrst og fremst sem listamaður heldur sem trans eða trans- listamaður. Oft hefur það reynst mér þungbært að vera listamaður og vilja tala um list mína sem slíka en umræðan fer oft út í að ræða um mig sem trans og þá reynslu. Ég reyni yfirleitt ekki að stýra þeirri umræðu, leyfi henni bara að renna áfram. Það er mér líka mikilvægt að ræða trans málefni. Ég hef verið talsmaður trans fólks og er stolt af því. Umræðan er nauðsynleg og ég hef oft óskað þess að einhver eins og ég hefði tekið af skarið fyrr svo að ég hefði notið þess að alast upp sem venjuleg manneskja í samfélaginu þrátt fyrir að vera trans. Það hefur verið mitt markmið með því að tala opinskátt um mig sem trans að skapa þá tilveru fyrir þau sem á eftir mér koma. En að vera trans og vera listamaður er tvennt. Þetta er eins og að vera rauðhærð og vera læknir. Auðvitað er hvort tveggja óaðskiljanlegur hluti af tilverunni en eitt hefur í raun ekkert með hitt að gera. Á einhvern hátt endurspeglast líf listamannsins alltaf í listsköpuninni en ég fjalla að sjálfsögðu um margt annað og meira en að vera trans. Listin var mér ómetanleg aðstoð við að sættast við mig sem manneskju, og já, sem trans manneskju, í baráttunni við að vera í afneitun og í skápnum. Ég nota listina til að komast frá hinu og þessu og til að komast til botns í hlutunum. Ég hef þ.a.l. fjallað talsvert um tilveru trans manneskjunnar í minni list en fyrst og fremst fjalla ég um lífið eins og það kemur mér fyrir sjónir. Núna fjallar mín list fremur um almennar mannlegar tilfinningar og upplifun. Undanfarna tólf mánuði hafa tvær fréttir skapað feiknamiklar umræður um stöðu íslenskrar myndlistar og listamanna á Íslandi, annars vegar salan á Ásmundarsal Listasafns ASÍ og hins vegar kaup og kjör listamanna sem setja upp sýningar á opinberum listasöfnum. Sem starfandi listamaður, hver er þín sýn á þennan málaflokk? Mér þykir, eins og flestum myndlistarmönnum, mikil eftirsjá af Ásmundarsal. Rýmið var frábært sem og staðsetningin og Ásmundarsalur hefur verið mikilvægur vettvangur fyrir íslenska myndlist í áratugi. Við vonuðumst mörg til þess að hægt væri að halda áfram myndlistarstarfsemi þar en nú hefur Marshallhúsið verið opnað með Kling og Bang og Nýlistasafninu og því ber svo sannarlega að fagna. Nýir tímar og nýr vettvangur. Það eru spennandi tímar framundan og ég held að það sé bara gott að vera ungur og upprennandi myndlistarmaður í dag. Ísland er í tísku og umheimurinn hefur tekið eftir því að hér er kraumandi sköpunargáfa nánast alls staðar og þá er sama hvort um ræðir myndlist, ritlist, tónlist, kvikmyndalist eða annað. Varðandi hugmyndir um laun til handa listafólki þegar það vinnur að sýningarhaldi þá sé ég það sem mjög jákvætt skref. Það er jú þannig að þegar unnið er að slíkum viðburðum þá fá flestallir laun fyrir sína vinnu nema oftast nær myndlistarmennirnir sjálfir og það er ekki sanngjarnt. Myndlistin er jú það sem fólk er að koma til að sjá. 52
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.