Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2017, Blaðsíða 38

Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2017, Blaðsíða 38
veru að upplifa þetta tímabil. Þannig má segja að bókin um líf mitt sé rökrétt framhald af því þar sem sögurnar eru færðar á blað. Ritunarferlið hefur gert mér kleift að safna minningum mínum saman á einn stað og brúa bilið milli nútíðar og fortíðar. Þegar ég kom fyrst til New York fyrir fjörutíu árum var ómögulegt að tengja saman djasslistamanninn Fred og hommann Fred enda voru engin fordæmi til staðar eða fyrirmyndir sem ég gat litið til. Lengi framan af var lífið því tvískipt. Hægt og rólega fóru ólíkir þættir tilveru minnar að samþættast, eftir því sem samfélagið tók framförum, fram til dagsins í dag þegar öllum virðist vera sama hver kynhneigð manns er. En umhverfið var gjörólíkt árið 1977 enda voru þá aðeins átta ár frá því að Stonewall-uppreisnin átti sér stað. Hvenær tókstu ákvörðun um að koma úr skápnum? Ég kom snemma úr skápnum, 19 ára gamall, gagnvart vinum og fjölskyldu og í sjálfu sér kom það fáum á óvart. Það var ekki fyrr en mörgum árum seinna, árið 1993, að ég kom út opinberlega og það vakti töluverða athygli í Bandaríkjunum þar sem ég var á þeim tíma orðinn landsþekktur djasstónlistarmaður. Það var þá sem ég tilkynnti að ég væri með HIV, sem á þeim tíma var dauðadómur, og þá hófst einnig ferill minn sem aktívisti. er tilhneigingin sú að leita í það sem veitir þér unað án þess að hugsa um afleiðingar þess fyrir aðra. Fólk þarf að leita reglulega til læknis og afla sér þekkingar um hvernig skuli verja sig gegn kynsjúkdómum. Er einhverjum vandkvæðum bundið að samþætta vinnuna sem djasslistamaður annars vegar og aktívisti hins vegar? Koma augnablik þar sem þér leiðist að vera kallaður djasslistamaðurinn sem er hommi? Ég lít ekki á mig sem hommann sem spilar djass eða hinsegin listamann. Ég er Fred, sem vill svo til að spilar djass, semur tónlist, er samkynhneigður og með HIV, nokkurn veginn í þessari röð. Ég vil ekki líta svo á að ákveðin tónlist sé hommatónlist eða hinsegin tónlist. Textar geta fjallað um kynhneigðir en annars er tónlist sem er spiluð á hljóðfæri án kynhneigðar; hún er einfaldlega tónlist sem veitir fólki innblástur. Muntu spila einhverja ákveðna tegund af djasstónlist í Reykjavík? Ég mun spila með hljóðfæraleikurum sem ég hef starfað með í langan tíma. Tónverkin sem við spilum eru efni sem ég hef samið sjálfur ásamt tónlist eftir aðra djasslistamenn líkt og Thelonious Monk. Mér er illa við að setja merkimiða á tónlistina mína en ég myndi lýsa henni sem skapandi og kraftmikilli tónlist. Tónleikarnir sterkar tilfinningar sem dvelja með því, vekja spurningar og að sjálfsögðu veita skemmtun. Hvað laðar þig að djasstónlist? Í hvert einasta skipti ertu að skapa nýja tónlist, með öðrum tónlistarmönnum, fyrir framan áhorfendur. Djass er félagsleg upplifun. Hann er ekki tónlist með stífan ramma, líkt og Chopin eða Beethoven, heldur upplifun sem er ný og einstök í hvert skipti. Hvaða djasslistamanni myndir þú mæla með fyrir þá sem eru að byrja að hlusta á djasstónlist? Ég myndi kynna mér stóru nöfnin: Miles Davis, Charles Mingus og Duke Ellington. Sumu fólki finnst gott að kynnast djassi í gegnum söngvara líkt og Billie Holiday, Sarah Vaughan og Betty Carter. Saga djasstónlistar er löng og rík af áhugaverðum persónum og því er ekki úr vegi að lesa sér aðeins til um helstu stefnur og áhrifavalda. Það er til gnægð af stuttum, auðlesnum bókum sem geta leiðbeint nýjum djassunnendum. Loks er besta ráðið að hlusta á það sem manni líkar best. Á Íslandi er tíðni kynsjúkdóma meðal ungs fólks, sérstaklega karlmanna, að aukast. Hver er þín sýn á þennan málaflokk? Ég tel að fjarlægðin frá alnæmisfaraldrinum á áttunda og níunda áratugnum geri fólk blint gagnvart hættunni sem það leggur sig í ef það er ekki að verja sjálft sig og aðra. Ef þú ert einstaklingur sem stundar áhættumikið kynlíf, til dæmis með örvandi lyfjum, eru ætlaðir öllum og þótt fólk sé ekki kunnugt djassi ættu flestir, sem koma með opnum hug, að geta treyst okkur fyrir að fara með þá í skemmtilegt ferðalag þar sem tónlist er sköpuð sérstaklega á staðnum. List er ekki dægrastytting, líkt og Hollywood-bíómynd eða reyfari sem þú gleymir samstundis. Góð listsköpun kallar á samstarf og þátttöku áhorfenda og góð list á að hreyfa við fólki þannig það upplifi Tónleikar Fred Hersch í Reykjavík eru hluti af Reykjavik Jazz festival og samstarfsverkefni hátíðarinnar og Hinsegin daga. Tónleikarnir fara fram í Eldborg í Hörpu, laugardaginn 12. ágúst kl. 20:30. Auk þess að spila tónlist mun Hersch ræða um reynslu sína af því að vera hinsegin djasstónlistarmaður en hann er ötull tals- og stuðningsmaður HIV-samtaka vestanhafs. Spjallið fer fram í Hörpu klukkan 17:00, nánari upplýsingar á reykjavikjazz.is og Reykjavik Pride Off Venue dagskrá. Handhafar Pride-passa fá 20% afslátt á Eldborgartónleikana í miðasölu Hörpu. 38
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.