Af vettvangi - 01.02.1988, Blaðsíða 1
FRÉTTABIAÐ VSÍ - YINNUVEITENDASAMBANDS ÍSIANDS
v. tbl. l.ár febrúar 88
Eftir að uppstytta varð í samningavið-
ræðum VSI og VMSÍ blasir við
óvissa um framhald viðræðna og
launaþróun á árinu. VSÍ hefur lagt
áherslu á að samningar verði að miðast
við lækkandi verðbólgustig og gilda í 12-
15 mánuði. A hinn bóginn blasa við kröf-
ur Verkamannasambandsins um veru-
lega hækkun launakostnaðar. VSÍ telur
að sú leið muni óhjákvæmilega leiða til
rekstrarstöðvunar §ölda útflutningsfyrir-
tækja og síðar almenns samdráttar. Einu
mögulegu viðbrögðin væru þá gengisfell-
ing og því meiri sem kostnaðarhækkan-
imar væm stórstígari.
VSÍ hefur af þessum ástæðum talið
óhjákvæmilegt að afkoma útflutnings-
greina og rekstrarforsendur verði að
skýrast í tengslum við nýja kjarasamn-
inga, því í reynd sé tekist á um verð-
bólgustig en ekki kaupmátt. Um þetta
hljóti viðræðumar að snúast á næstunni.
Samningar Vinnuveitendafélags Vest-
NÝJAR OG LAKARIADSTÆÐUR
5% SAMDRÁTTUR
RÁÐSTÖFUNARTEKNA
EYÐSLA HÉRLENDIS ER
ÁHYGGJUEFNI
fjarða og Alþýðusambands Vestflarða,
sem gerðir vom 25. janúar sl. markast af
þessum viðhorfum. Þar er lagt til grund-
vallar samningsgerð að verðbólga fari
hjaðnandi og væntingum um verðlags-
áhrif launa og gengisþróunar tengdar
samningsniðurstöðunni.
Samningurinn gildir frá undirskriftar-
degi til ársloka og í honum felst, að
gmnnlaun hækka strax um kr. 1500, eða
sem svarar 4,5-5% hækkunar, auk
áfangahækkana, 1. apríl 3% og 1. ágúst
2,5%.
Auk þess er í samningnum gengið til
móts við kröfur fiskvinnslufólks um sér-
stakar hækkanir til að vega upp þann
slaka, sem orðið hefur á launum þess
m.v. aðra hópa á sl. ári. Þetta birtist í
ákvæðum um auknar starfsaldurshækk-
anir, hærra námskeiðsálagi sérhæfðs
fiskvinnslufólks og lengingu orlofs um 1
dag eftir 10 ára starf hjá sama fyrirtæki.
Þetta er talið svara til 2,5% hækkunar
launa. Heildarhækkun á samningstíman-
um er því 13-14%.
Samningurinn miðar við að vísitala
framfærslukostnaðar verði innan við 258
stig í júní og 266 stig í október. Fari
verðbólga umfram þessi mörk getur
ASV krafist endurskoðunar að því marki
en náist ekki samkomulag verður launa-
liður laus frá næstu mánaðarmótum.
Þessi samningur hefur þegar verið
samþykktur í öllum verkalýðsfélögum á
Vestfjörðum og ætti því að geta orðið
viðmiðun fyrir framhald samningavið-
ræðna, ef raunsætt mat á stöðu atvinnu-
lífsins fær ráðið niðurstöðunni.
í kjarasamningunum á Vestfjörðum er gengib til móts við kröfur fiskvinnslufólks um
sérstakar hækkanir til að vega uþþ þann slaka, sem orðið hefur á launaþróun þess mið-
að við aðra launþega á liðnu ári.
OPNUVIÐTAL VIÐ GUNNAR J. FRIÐRIKSSON
Við getum ekki staðið einir utan Evrópumarkaða, segir formaður samtakanna
í tilefni af inngöngu VSÍ og FÍI í samtök vinnuveitenda og iðnrekenda í
Evrópu - UNICE - bls. 6-7.