Af vettvangi - 01.02.1988, Side 7

Af vettvangi - 01.02.1988, Side 7
AF VEmfANCI 7 heilsteyptum markaði meðal landa Efna- hagsbandalagsins. Það þýðir frjálsan flutning fólks, varnings, þjónustu og fjármagns, milli þessara landa, þannig að í efnahagslegu tilliti starfi þau nánast sem ein heild. Delors taldi að ekkert ætti að geta hindrað að úr þessu myndi verða. Það væri algjör forsenda þess að Evrópa gæti staðið jafnfætis Japönum og Bandaríkjunum á sviði iðnaðar og tækni. Án heilstæðs markaðar Evrópubanda- lagsins, væri slíkt óhugsandi. Varðandi EFTA löndin sagði Delors að fyrir þau sem ekki treystu sér til að gerast fullgildir aðilar af pólitískum ástæðum, væri það sín skoðun að þau myndu í reynd geta orðið hluti af þessari markaðsheild, svo fremi að þau löguðu sig að reglum bandalagsins og skal þess getið að Austurríkismenn eru þegar famir að vinna skipulega að því. Hvað ís- land varðar, má segja að við séum þegar famir að aðlaga okkur bandalaginu, m.a. með upptöku staðgreiðslu skatta og með áformum um að taka upp virðisauka- skatt. Þessi skattaform em ríkjandi í Efnahagsbandalagslöndunum. Nýsam- þykktar breytingar á tollum og vöm- gjöldum stefna að sama marki, þannig að skatta- og tollareglur okkar færast stöðugt nær því, sem gerist meðal ná- lægra landa en hvort tveggja er forsenda þess, að við getum í framtíðinni haldið bestu kjaraviðskiptum við ríki Evrópubandalagsins. Það er mat okkar í Vinnuveitendasambandinu að íslending- ar geta ekki staðið einir utan þessa markaðar, þó við hljótum alltaf að þurfa að njóta þar nokkurrar sérstöðu“. NOTAÖLL TÆKIFÆRi Um sérstöðu okkar sagði Gunnar: „Það er fyrst og fremst sérstaða okkar hvað varðar fiskimiðin, þar sem við get- um ekki, miðað við núgildandi reglur bandalagsins, notið fullkominna réttinda eins og um meðlimaríki væri að ræða. Það er því mat okkar að með því að nota öll tækifæri sem gefast til þess að kynna þessa sérstöðu, m.a. á vettvangi sterkra hagsmunasamtaka á borð við UNICE séu meiri líkur til þess að við getum er tímar líða náð því að njóta hagræðisins eins og um aðild væri að ræða, en án þeirra fóma sem af formlegri aðild myndi að óbreyttu leiða. Á þessum fundi voru menn mjög bjart- sýnir og ríkti þar einhugur um nauðsyn þess að ná settu marki um eina markaðs- heild 1992“. AÐLOKUM Gunnar var spurður hvort fordæmi væm fyrir því innan Efnahagsbandalags- ins að tekið væri tillit til aðstæðna eins og okkar íslendinga hvað varðar fiski- miðin. Hann kvað svo ekki vera, aftur á móti væri þar fylgt ákveðinni byggða- stefnu varðandi svokallaðar jaðarþjóðir og þá í formi stuðnings úr sameiginleg- um sjóðum. Hann sagði okkur íslendinga þó aldrei geta samið um slíkan stuðning í stað aðgöngu að fiskimiðunum. Slíkt kæmi aldrei til greina. Gunnar sagði að lokum: „Það var mjög fróðlegt og ánægjulegt að sitja þennan fyrsta forsætisfund okkar í UNICE. Við höfum fullan hug á að taka virkan þátt í starfi innan samtakanna. Ég geri ráð fyrir að við veljum okkur þar ákveðin svið sem við viljum leggja sér- staka áherslu á þar sem við höfum ekki mannskap til að fylgjast með öllu því sem fer fram þama í Brussel. En smæðin gerir það ekki síður nauðsynlegt að fylgj- ast með því sem er að gerast í okkar næsta nágrenni. Við hljótum því á öllum sviðum að beita áhrifum okkar til þess, að stefnumótun gangi ekki gegn okkar hagsmunum, en það getur svo auðveld- lega gerst ef enginn er til að kynna þá“. RÉnUR TIL LÁNA VERÐIALMENNUR Framkvæmdastjóm Vinnuveitenda- sambandsins varaði mjög eindregið við því að vikið yrði frá þeirri megin- stefnumörkun í málefnum Húsnæðis- málastofnunar ríkisins, að réttur til lána yrði almennur, þannig að þeir sem láns- rétt áttu í lífeyrissjóðum nytu allir sama réttar. Einasta frávikið yrði það, að þeir sem kaupa í fyrsta sinn njóti réttar um- fram þá sem íbúð eiga fyrir. Þessi vam- aðarorð komu fram í umsögn VSÍ um nýja frumvarpið um Húsnæðisstofnun, sem Alþingi samþykkti í síðasta mánuði. Breytingamar sem Alþingi samþykkti em þríþættar. 1. Húsnæðisstjóm er heimilað að skerða eða synja um lán til þeirra, sem eiga fleiri en eina íbúð fyrir og að takmarka lánsfjárhæð og breyta láns- kjömm gagnvart þeim, sem eiga fyrir fullnægjandi íbúðareign, skuldlitla og stærri en 180 fermetra. 2. Umsækjandi skal fyrst fá svar um það, hvort hann á rétt á láni en við það er miðað að skuldbindandi loforð um lán og útborgunardag sé ekki gef- ið út með meira en eins árs fyrirvara. 3. Stjóm Húsnæðisstofnunar er veitt heimild til að flytja til í forgangsröð þá umsækjendur sem að mati hennar eiga ófullnægjandi íbúðarhúsnæði eða þurfa að skipta um húsnæði af ijöl- skylduástæðum. Um framkvæmd þessa ákvæðis og þess sem greint er frá í fyrsta tölulið skal nánar fjallað í reglugerð. í umsögn sinni benti VSÍ ennfremur á, að ef fela ætti Húsnæðisstofnun að meta þarfir manna væri eins víst, að sjóðsfél- agamir stæðu ekki jafnt að vígi. Nýja húsnæðiskerfið hefði einmitt átt að tryggja jafnstöðu manna í þessu efni, án tillits til þess hver þekkti hvem.

x

Af vettvangi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Af vettvangi
https://timarit.is/publication/1566

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.