Fræðaþing landbúnaðarins - mar. 2011, Blaðsíða 439
VEGGSPJÖLD | 439
yfirborði túns (5,73). Í hinu túninu á Korpu, þ.e. tilrauninni, og í túninu í Miðgerði er
leiðrétt pH hærra en í ökrunum. Að teknu tilliti til þess sem munar á Ca og C% er pH
að jafnaði um 0,2 einingum lægra í yfirborði túns en dýpra (neðsta l. í 2. töflu).
Beinast liggur við að álykta að það sé vegna annarra þátta sem hafi áhrif á pH, t.d.
sýrandi áburðar, en einnig gæti það verið vegna frávika frá beinu línulegu sambandi.
Aðhvarf pH að Ca og C% (og án C% eða Ca), staðalfrávik að gefnu aðhvarfi,
pH fært að meðaltali Ca og C% á staðnum, áhrif dýptar á pH í túni.
Ca, mj./100g 0,019±0,0062 0,054±0,0053
C% 0,100±0,026 0,013±0,067 0,051±0,012
Ca án C% 0,054±0,032 0,063±0,0062
C% án dýptar 0,137±0,040
sað gefnu aðhvarfi 0,103 0,105 0,067
Eldri akur 6,61 6,92 5,92
Yngri akur 6,89 6,97 5,85
Tún 7,25 6,91 5,89
Tilraun 6,22
smm 0,11−0,16 0,071−0,091 0,043−0,068
Í túni (5−20)(0−5) 0,11±0,18 0,24±0,10 0,16±0,043
Samband Mg og Ca í jarðvegi ALgildi á K og P
Kalsíum er um 75% af ALleysanlegum jónum í Miðgerði, 60% í Vindheimum og
68% í túni á Korpu (60% í yfirborði túnsléttu). Akrar á Korpu hafa verið kalkaðar og
er Ca um 82%. Á 2 ára akri á Korpu er Ca mun hærra en í aðliggjandi túni, en fremur
litlu munar á öðrum jónum.
Íslenskur jarðvegur, sem er einkum orðinn til úr basalti, er ríkur af magnesíum.
Reiknað í jafngildum (þungahlutföll 1,7× hærri) er hlutfall Ca/Mg í ALskoli 3,7 í
Miðgerði og 1,7 í Vindheimum (2. mynd). Á Korpu er Ca/Mg á bilinu 3,1−7,3, en þar
sem það er hæst hefur verið kalkað og því er Mg ekki eins breytilegt og Ca. Skelja
kalk er fremur snautt af Mg, þungahlutfall Ca/Mg er um 30. Meðal skýringa á miklu
Ca og háu pH í Miðgerði gæti verið að þar hafi verið skeljalag. Þá hefði skiptanlegt
Ca átt að aukast þegar skeljarnar leystust upp án þess að Mg ykist að sama skapi.
Hlutfall Ca/Mg er hins vegar frekar lágt og því er veðrun basalts líklegri skýring.