Víkurfréttir - 10.02.2021, Blaðsíða 2
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
HREINSUM
RIMLAGARDÍNUR OG
MYRKVUNARGARDÍNUR
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS
Útgefandi:
Víkurfréttir ehf.,
kt. 710183-0319
Afgreiðsla og ritstjórn:
Krossmóa 4a, 4. hæð,
260 Reykjanesbæ,
sími 421 0000
Ritstjóri og ábm.:
Páll Ketilsson,
sími 421 0004,
pket@vf.is
Fréttastjóri:
Hilmar Bragi Bárðarson,
sími 898 2222,
hilmar@vf.is
Prentun:
Landsprent
Auglýsingastjóri:
Andrea Vigdís
Theodórsdóttir,
sími 421 0001,
andrea@vf.is
Útlit og umbrot:
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Hilmar Bragi Bárðarson
Dagleg stafræn útgáfa:
vf.is og kylfingur.is
Sveitarfélagið Vogar skoðar sam-
einingu við annað sveitarfélag
Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga
samþykkti á fundi sínum í síðustu
viku að láta vinna valkostagrein-
ingu vegna sameiningar sveitar-
félaga. Fulltrúi D-lista sat hjá við
afgreiðsluna.
Fyrir fundinum var tillaga um
að Sveitarfélagið Vogar fái Róbert
Ragnarsson, ráðgjafa, til að vinna
valkostagreiningu um mögulega
sameiningu við önnur sveitarfélög.
„L-listinn fagnar því að loksins
skuli vera farið að athuga með þessa
möguleika þó betra hefði verið að
gera það kannski fyrr og áður en fjár-
hagsstaða sveitarfélagsins væri orðin
þetta slæm og staða okkar til samn-
inga minnkað til muna. L-listinn
hefur ætíð (frá upphafi 2010) viljað
skoða sameiningarmöguleika sem
gætu verið til hagsbóta fyrir íbúa
sveitarfélagsins,“ segir í bókun full-
trúa L-listans í bæjarráði.
Ljósleiðara-
kerfi í dreifbýli
í Suðurnesjabæ
Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar
hefur samþykkt afgreiðslu
bæjarráðs frá 27. janúar síð-
astliðnum þar sem samþykkt
var að ganga til samninga
við Raftel ehf. um fullnaðar-
hönnun ljósleiðarakerfis í
dreifbýli í Suðurnesjabæ. Þar
kemur fram að tengigjöld
fyrir styrkhæfa aðila verði kr.
200.000 og kr. 250.000 fyrir
aðra.
Þrjú félög fá styrki
Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar
hefur staðfest afgreiðslu bæj-
arráðs þar sem samþykktir
voru styrkir til þriggja félaga-
samtaka
Á fundi bæjarráðs þann 27.
janúar var samþykkt að veita
styrki til Norræna félagsins
í Suðurnesjabæ kr. 75.000,
Stígamóta kr. 100.000 og Sam-
takanna 78 kr. 100.000.
Lagning Suðurnesjalínu 2
fær framkvæmdaleyfi
Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar hefur veitt Landsneti fram-
kvæmdaleyfi vegna lagningar Suðurnesjalínu 2. Um er að ræða um 7,45km
220 kw. raflínu í landi Reykjanesbæjar í samræmi við valkost C í mati á
umhverfisáhrifum. Ekki liggur fyrir deiliskipulag fyrir svæðið en lega raf-
línunnar samræmist aðalskipulagi.
Með umsókninni fylgdu einnig jarðvárskýrsla og álit Skipulagsstofnunar
um mat á umhverfisáhrifum.
Gera ráð fyrir nýjum sjó-
tökuholum í nýju skipulagi
HS Orka hefur óskað eftir að breyta deiliskipulagi iðnaðar- og orkuvinnslu-
svæðis á Reykjanesi. Tilgangur breytinga er að gera ráð fyrir nýjum sjó-
tökuholum. HS Orka vinnur jafnframt að matsskyldufyrirspurn til Skipu-
lagsstofnunar vegna þessara framkvæmda.
Tillaga HS Orku hefur verið aug-
lýst og engar athugasemdir bárust.
Niðurstaða Skipulagsstofnunar um
matsskyldufyrirspurn var að fyrir-
huguð framkvæmd sé ekki líkleg til
að hafa í för með sér umtalsverð
umhverfisáhrif. Óskað var umsagna
viðeigandi stofnana. Engar efnislegar
athugasemdir voru gerðar. Náttúru-
fræðistofnun vekur athygli á tillögum
Skipulagsstofnunarinnar um verndar-
svæði náttúruminjaskrár (B-hluta)
vegna fjöruvistgerða við Öngul-
brjótsnef, klóþangsfjörur og áréttar að
stofnunni er er ekki kunnugt um hvort
útfallið úr bunustokki Reykjanesvirkj-
unar, hvort sem það er breyting í efna-
samsetningu eða hitastigi, hafi áhrif á
þessar fjöruvistgerðir.
Samþykkt var á síðasta fundi um-
hverfis- og skipulagsráðs Reykja-
nesbæjar að senda skipulagið til
Skipulagsstofnunar til endanlegrar
afgreiðslu.
Vinna að úrbótum í umferðar-
málum við dansskóla
Erindi dansskólans Danskompaní
til umhverfis- og skipulagsráðs
Reykjanesbæjar varðandi umferð-
aröryggi við skólann og tillögur að
úrbótum var tekið fyrir á síðasta
fundi ráðsins.
Umhverfis- og skipulagsráð tók
heilshugar undir að úrbóta er þörf
og var starfsmönnum umhverfis-
sviðs falið á fundi ráðsins dags. 5.
júní síðastliðinn að vinna að tillögum
að úrbótum til lengri og skemmri
tíma. Fundur var haldinn með for-
svarsfólki dansskólans, eigenda hús-
næðisins og fulltrúa foreldrafélagsins
um aðkomu á lóð og mögulegt sam-
komulag við nágranna um afnot bíla-
stæða. Samkomulag hefur verið gert
við nágranna um takmörkuð afnot
bílastæða fyrir starfsmenn.
Umhverfissviði Reykjanesbæjar
er falið að bæta lýsingu við götu,
setja upp viðvörunarskilti vegna
gangandi. Mæla umferðarhraða og
telja akandi umferð við skólann og
leggja til staðsetningu á mögulegum
gönguljósum við gangbraut yfir
Njarðarbraut.
Gera þarf grein
fyrir bílastæðaþörf
Umhverfis- og skipulagsráðs
Reykjanesbæjar hefur frestað er-
indi Heimstaden 900 ehf. varðandi
að breyta Bogabraut 960 á Ásbrú
þannig að þar verði 36 íbúðir í stað
tíu áður.
Gera þarf grein fyrir bílastæðaþörf
á sameiginlegu bílastæði fyrir Boga-
braut 960 og 961. Erindi frestað.
Í gögnum sem fylgja umsókninni
kemur fram að á lóðinni eru 42 bíla-
stæði og þar af eru þrjú sérmerkt
fyrir hreyfihamlaða sem tilheyra
Bogabraut 960.
2 // vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM Í 40 ár