Víkurfréttir - 10.02.2021, Blaðsíða 8
Mikið svakalega er gott að kúpla
sig út úr hversdagslegu amstri eina
kvöldstund og skella sér í leikhús.
Við Suðurnesjamenn erum líka svo
heppin að eiga eitt flottasta áhuga-
leikfélag landsins, Leikfélag Kefla-
víkur, sem á undanförnum árum
hefur unnið hvern leiksigurinn á
fætur öðrum í uppfærslum sínum.
Félaginu hefur tekist vel upp í
vali sínu á leikverkum og þar hafa
gamanleikir verið hvað vinsælastir.
Frumsamdar revíur og svo þekktir
farsar þar sem allt er einn misskiln-
ingur og tóm lygi.
Frumleikhúsið er líka frábær um-
gjörð utan um starfsemi Leikfélags
Keflavíkur og Jóel Sæmundsson,
leikstjóri, sagði í samtali við Víkur-
fréttir á dögunum að það væru mikil
forréttindi fyrir félag eins og Leik-
félag Keflavíkur að hafa Frumleik-
húsið. Jóel leikstýrir farsanum Beint
í æð sem frumsýndur var um nýliðna
helgi. Æfingaferlið var langt en síð-
asta haust var lagt upp í þá vegferð
að setja Beint í æð á svið. Þá kom
önnur bylgja kórónuveirunnar og svo
þriðja bylgjan og allir draumar um
leiksýningar voru lagðir á hilluna en
farsinn æfður áfram á Zoom. Það er
jú allt hægt á netinu í dag. Þegar það
var ljóst að hundrað gestir mættu
vera á leiksýningu var allt sett á fulla
ferð og farsanum komið á svið.
Leikfélagi Keflavíkur tekst virki-
lega vel upp með þessu verki. Beint
í æð er eftir Ray Cooney og í þýðingu
Gísla Rúnars Jónssonar. Leikstjóri er
Jóel Sæmundsson eins og áður segir
en hann hefur áður leikstýrt söng-
leiknum Mystery Boy sem hlaut
titilinn athyglisverðasta áhugaleik-
sýningin árið 2018 og fór á fjalir
Þjóðleikhússins.
„Hvað gerir taugaskurðlæknir
þegar gömul hjásvæfa hans mætir,
óumbeðinn, rétt áður en hann á
að flytja mikilvægasta fyrirlestur
ferilsins og tilkynnir honum að
hann eigi fullvaxta son? Af hverju
er löggan komin í málið? Af hverju
grettir Grettir Sig sig? Hvað ætli
Súsanna, konan hans, segi? Hvað er
Páll Óskar að gera þarna? Hver er
Loftur? Hvað er málið með Mann-
freð og Gróu? Hvar er yfirdeildar-
hjúkrunarfræðingurinn?,“ segir í
auglýsingu fyrir farsann og segir allt
sem segja þarf. Það er góður hraði
í sýningunni og lygavefurinn og
misskilningurinn vex hratt.
Það var stemmning í loftinu
og gestir á frumsýningu sprungu
úr hlátri hvað eftir annað. Það er
hreinlega hægt að komast í það
ástand að kafna næstum úr hlátri,
því það er jú grímuskylda í leik-
húsinu og allt flæðandi í spritti.
Það er einvala lið leikara á
sviðinu sem margir hverjir eru
með áralanga reynslu í Frumleik-
húsinu. Öll stóðu sig með mikilli
prýði. Það getur jú verið erfitt að
halda andliti á sviði þegar salurinn
skellihlær að uppátækjum þínum.
Það er full ástæða til að hverja fólk
til að skella sér í leikhús á Beint í æð.
Hláturtaugarnar munu ekki sjá eftir
því. Það er svo hressandi að geta
hlegið hraustlega eina kvöldstund.
Næstu sýningar eru næstu
fimmtudaga, föstudaga og sunnu-
daga. Nánar um sýningartíma og
miðasölu á tix.is.
Takk fyrir frábæra kvöldstund í
Frumleikhúsinu.
DVK,
Hilmar Bragi Bárðarson. Gleði beint í æð
Ég held að ég hafi sjaldan eða aldrei heyrt eins mikið hlegið í leikhúsi
eins og í kvöld. Ég hugsa að einhverjir leikhúsgesta verði jafnvel með
strengi í kviðnum á morgun eftir hláturkviður kvöldsins. Snilldin
sem vakti þessi sterku gleðiviðbrögð hjá fólki var sýningin Beint í
æð eftir Ray Cooney sem er leikstýrt af Jóel Sæmundssyni og Leik-
félagi Keflavíkur er að sýna í Frumleikhúsinu. Ég var svo heppinn
að fá miða á frumsýninguna og þessi orð eru skrifuð þegar ég rétt
nýkominn heim af henni.
Unga fólkið sem stendur að sýn-
ingunni geislar svo af krafti og
gleði að leikhúsgestir geta ekki
annað en hrifist með. Verkið
sjálft er klassískur farsi með til-
heyrandi misskilningi og flækjum,
allt saman sprenghlægilegt og
einstaklega skemmtilegt. Leikar-
arnir standa sig allir mjög vel
en þó verð ég að nefna Sigurð
Smára Hansson sérstaklega sem
túlkar lækninn Jón Borgar. Hann
hefur einstak lag á því að koma
sér í vandræði og er miðpunktur
í öllum hvirfilvindinum. Frábær
frammistaða hjá aðalleikaranum.
Ég trúi ekki öðru en að fólk
komi til með að fjölmenna á
þessa skemmtilegu sýningu. Hún
er frábær skemmtun og eitthvað
sem fólk ætti ekki að láta fram hjá
sér fara. Svo er bara svo gaman
að geta farið í leikhús eftir allar
þær takmarkanir sem hafa lagst
á okkur öll síðustu mánuði og um
leið að lagt sitt af mörkum til að
styðja menningarstarf heima í
héraði. Ég skora því á þau ykkar
sem lesið þessi orð að finna Leik-
félag Keflavíkur á netinu eða á
samfélagsmiðlum eða á tix.is og
tryggja ykkur miða. Það skiptir
máli að gera það fyrr en seinna því
fólk þarf að mæta til að sýningin
haldi áfram.
Ólafur Þór Ólafsson.
Kardemommubærinn í Átthagastofu
Bókasafns Reykjanesbæjar
Í Átthagastofu Bókasafns Reykjanesbæjar stendur nú yfir sýning
á myndum úr Kardemommubænum eftir Thorbjørn Egner. Karde-
mommubærinn er fyrir margt löngu orðin klassík sem hefur fylgt ís-
lenskum fjölskyldum í texta, myndum og tónlist um árabil. Ræningjana
Kasper, Jesper og Jónatan þekkja flest börn ásamt Soffíu frænku,
Bastían bæjarfógeta og börnunum Kamillu og Tomma. Sýningin mun
standa til 1. apríl næstkomandi.
Í tilefni 65 ára afmælis bókarinnar
í fyrra var þessi sama sýning sett
upp í Norræna húsinu í samstarfi
við norska sendiráðið.
Nú fá gestir Bókasafns Reykja-
nesbæjar tækifæri til að skoða
sýninguna og taka þátt í getraun.
Til þess að taka þátt þarf að skoða
sýninguna, svara spurningum
á getraunaseðli og fylla út nafn
og símanúmer. Dregið verður úr
réttum svörum og hljóta vinnings-
hafar bókargjöf.
Vegna sóttvarna eru gestir
beðnir að gæta þess að einungis
fjórir fullorðnir séu inni á sýn-
ingunni samtímis, með tveggja
metra millibili og muna grímur og
spritt. Athugið að þessar reglur
gilda ekki fyrir börn fædd 2005
og síðar. Hver veit nema Soffía
frænka fylgist með þeim sem ekki
kunna að fara eftir reglum?
Að kafna næstum úr
hlátri á bak við grímuna
8 // vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM Í 40 ár
Svipmyndir frá frumsýningunni.
VF-myndir: Hilmar Bragi