Víkurfréttir - 10.02.2021, Blaðsíða 9
Frekari sameining sveitarfélaga nauðsynleg
– segir Guðbrandur Einarsson, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, en hann er kominn í 300 funda „klúbbinn“
„Ég er núna talinn með í hópi bæjarfulltrúa sem eyddu miklum tíma í að
vinna fyrir sveitarfélagið sitt. Markmið mitt er í sjálfu sér ekkert annað en
að reyna að gera eitthvert gagn. Reynslan hjálpar mér auðvitað við það.“
segir Guðbrandur Einarsson, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, en
hann sat sinn 300. bæjarstjórnarfund 2. febrúar.
– Sérðu þig í næstu bæjarstjórn
Reykjanesbæjar?
„Hvar ég sé mig í framhaldinu er
óljóst. Ég hef aldrei haft einhverja
stjórn á því sem bíður mín. Það er
hins vegar fínasta hlutskipti að fá að
sitja í bæjarstjórn Reykjanesbæjar.“
– Hvernig var svo 300. fundurinn?
„Hann var bara ljúfur. Varaforseti
bæjarstjórnar afhenti mér blómvönd
í tilefni dagsins og talaði hlýtt til mín
sem mér þótti að sjálfsögðu afskap-
lega vænt um.
Einnig gafst mér ágætis tækifæri
á þessum fundi til að fara vel yfir
ástæður þess að Víkingaheimar
voru seldir, sem mér þótti tilefni til í
ljósi þeirrar umræðu sem fram hefur
farið.“
– Hver er eftirminnilegasti fund-
urinn af þessum þrjúhundruð?
„Ætli sá fyrsti sé ekki einn sá minnis-
stæðasti. Mig minnir að Víkurfréttir
hafi séð ástæðu til þess að fjalla um
þann fund á sínum tíma. Margir
fundir hafa hins vegar verið minni-
stæðir og mikilvægir. Nægir að nefna
fundir í kringum söluna á Hitaveitu
Suðurnesja, þegar herinn fór og
síðan í hruninu. Allt voru þetta mál
sem höfðu mikil og mótandi áhrif á
þróun sveitarfélagsins okkar.“
– Viltu rifja aðeins upp hvenær þú
byrjaðir og fyrir hvaða flokk?
„Ég gekk til liðs við Alþýðuflokkinn
árið 1996 og var munstraður í fjöl-
skyldu- og félagsmálaráð þegar
flokkurinn bauð fram undir merkjum
J-listans sem var sameiginlegt
framboð Alþýðuflokks og Alþýðu-
bandalags árið 1998. Ég mætti síðan
á minn fyrsta bæjarstjórnarfund á
árinu 2001 sem varabæjarfulltrúi.“
– Hafa skyldur og störf bæjarfull-
trúa breyst mikið eða eitthvað á
þessum tíma?
„Umfang og rekstur sveitarfélaga
hefur vaxið mikið á þessum árum og
sveitarfélög gegna nú miklu stærra
hlutverki en áður í þjónustu við
íbúa. Verkefni eru stöðugt að færast
frá ríki til sveitarfélaga og það hefur
auðvitað kallað á að bæjarfulltrúar
þurfa að takast á við fleiri verkefni.“
– Telur þú að sameining Keflavíkur,
Njarðvíkur og Hafna árið 1994 hafi
verið gæfuspor og ef – hvernig þá?
„Já, ég tel að það hafi verið mikið
gæfuspor og það hefði verið enn
betra ef sameininginn hefði orðið
enn stærri á þeim tíma. Það hefði
gert Suðurnesin miklu sterkari bæði
inn á við og út á við. Skilvirknin hefði
orðið meiri og nýting fjármuna enn
betri. Þróun í þessa átt heldur hins
vegar áfram en mun taka einhvern
tíma. Garður og Sandgerði hafa nú
sameinast undir merkjum Suður-
nesjabæjar og Sveitarfélagið Vogar er
þessa dagana að skoða sameiningar-
kosti sem gætu leitt til frekari sam-
einingar sveitarfélaga á Suðurnesjum.
– Hvernig sérðu fyrir þér þróunina
í sveitarstjórnarmálum á næstu
árum? Málefnin eru alltaf að
stækka og verða flóknari, er það
ekki?
„Við sjáum ekki alveg fyrir þróunina.
Rætt hefur verið um þriðja stjórn-
sýslustigið sem væri þá einhvers
konar millistig milli ríkis og sveitar-
félaga. Þróunin hefur hins vegar
verið í þá átt að mynda landshluta-
sambönd sem ég tel ekki vera góða
þróun. Það auðveldar ríkinu að sjálf-
sögðu að eiga samskipti við sveitar-
félög í gegnum landshlutasamtök en
það tefur fyrir sameiningu sveitar-
félaga og hefur í för með sér veru-
legan lýðræðishalla. Fyrir mér er
sameining sveitarfélaga algjör for-
senda þess að þau geti sinnt þeirri
mikilvægu þjónustu sem ætlast er til
að þau sinni.“
– Þú hefur verið í framlínu meiri-
hluta bæjarstjórnar Reykjanes-
bæjar síðan 2014 eftir að hafa verið
í minnihluta á undan. Þetta hafa
verið miklar áskoranir fyrir Reykja-
nesbæ, fyrst í fjármálunum og síðan
með Covid-19, er það ekki?
„Jú, jú. Staðan var ekki burðug þegar
nýr meirihluti tók við árið 2014 en
allt hefur þetta tosast í rétta átt.
Covid hefur ekki verið að hjálpa
til en er sem betur fer tímabundið
ástand sem unnið verður bug á.
Sveitarfélagið mun komast yfir það.
Ég hef hins vegar meiri áhyggjur
af þeim sem hafa ekki trygga af-
komu vegna atvinnu- og tekjumissis
af völdum Covid. Þar væri hægt að
gera betur.“
– Hvað eru stærstu málin hjá
Reykjanesbæ núna og í náinni
framtíð?
„Stærstu málin til skemmri tíma eru
auðvitað að takast á við afleiðingar
af Covid en verkefnin framundan eru
spennandi og mýmörg. Samfélagið
breytist ört og sú stafræna um-
breyting sem á sér stað skapar mörg
tækifæri sem sveitarfélagið þarf að
nýta og mun nýta. Það mun auð-
velda íbúum að sækja sér þjónustu
og stytta boðleiðir. Eins þarf að huga
að uppbyggingu nýrra mannvirkja í
framtíðinni, s.s nýjum íþróttamann-
virkjum, skólahúsnæði og hjúkrunar-
heimili. Þá skiptir það máli að vel
takist til við uppbyggingu innviða í
Ásbrú.“
– Þú hefur verið orðaður við þing-
framboð hjá Viðreisn. Gengurðu
með þingmanninn í maganum?
„Ég hef nú gengið til liðs við Við-
reisn eftir að hafa verið utan flokka
í rúman áratug. Viðreisn á eftir
ákveða fyrirkomulag uppstillingar á
lista fyrir næstu alþingiskosningar og
því algjörlega óráðið hvað gerist. Ég
loka hins vegar ekki á neitt. Reynsla
mín á vettvangi sveitarstjórnarmála
sem og innan verkalýðshreyfingar-
innar ætti að geta nýst mér ágæt-
lega vettvangi á landsmála ef til þess
kæmi. Ef einhver áskorun um slíkt
kæmi inn á borð til mín mun ég taka
það til skoðunar. Ég tek á móti fram-
tíðinni með opnum huga.“
Guðbrandur á bæjarstjórnarfundi
þegar hann var í minnihluta.
Með honum á mynd eru Árni
Sigfússon, þáverandi bæjarstjóri,
og Björk Guðjónsdóttir,
forseti bæjarstjórnar.
Páll Ketilsson
pket@vf.is
Forseti bæjarstjórnar í öndvegi með Kjartan Má Kjartansson,
bæjarstjóra, og Baldur Guðmundsson á mynd.
Guðbrandur í hópi fólks á
kynningarfundi nýs, sameiginlegs
framboðs árið 2006.
Guðný Birna Guðmundsdóttir,
fyrsti varaforseti bæjarstjórnar
Reykjanesbæjar afhenti
Guðbrandi Einarssyni
blómvönd í tilefni 300.
fundarins hjá honum.
vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM Í 40 ár // 9