Víkurfréttir - 10.02.2021, Side 12
Þörungastart á 20 þús. kr.
Þörungarnir í verksmiðju Alga-
lífs sem er í raun eins og gróð-
urhús, eru ræktaðir úr stofni
sem var keyptur upphaflega úr
þörungabanka frá Noregi á 150
Evrur eða um tuttugu þúsund
íslenskar krónur og er enn verið
að vinna úr honum. Framleiðslu-
ferlið tekur um þrjár vikur og fer
í gegnum þrjú stig á þeim tíma,
þar til að eftir stendur lífmassi
sem er sendur til vinnslu í Þýska-
landi. Þar er fæðubótaefnið as-
taxantínið dregið út úr með
ákveðinni tækni (sem verður
gert á Ásbrú þegar nýbyggingin
verður tilbúin) og lokavinnslan
á því er svo hér heima þar sem
því er blandað saman við lífræna
sólblómaolíu þar sem hlutföllin
eru 10% astaxantín og 90% sól-
blómaolía. Þetta er svo efnið
verði stöðugt og hafi langan
hillutíma. Það er svo hin eigin-
lega afurð, þ.e.a.s. astaxatínolía,
sem sett er í hylki.
Ársframleiðsla Algalífs var á
síðasta ári 1.500 kg. af hreinu
astaxantíni en verður eftir næstu
stækkun verksmiðjunnar fimm
þúsund kg. Þetta eru ekki stórar
tölur miðað við starfsemina en
verðmætið er mjög mikið. Nánast
öll framleiðsla Algalífs er flutt út
til Evrópu, Asíu og Norður Am-
eríku. Astaxantínið fer að lang-
mestu leyti í vítamín- eða heilsu-
bótablöndur sem teknar eru inn
í hylkjaformi. Það er þó einnig
notað í snyrtivörur.
Rúmlega eitt hundrað störf verða til
við smíði sjö þúsund fermetra ný-
byggingar við núverandi verksmiðu
Algalífs á Ásbrú. Þrjátíu og fimm
framtíðarstörf verða til við stækk-
unina og Algalíf verður eitt stærsta
örþörungafyrirtæki heims. Fram-
kvæmdin kostar fjóra milljarða og
fjárfestingin kemur erlendis frá en
eigendur fyrirtækisins eru í Noregi.
Ársframleiðsla Algalífs rúmlega þre-
faldast og Orri Björnsson, forstjóri,
segir að ársvelta fyrirtækisins muni
nærri fjórfaldast og fara úr um 1.500
milljónum króna í um 5,5 milljarða.
Starfmannafjöldi mun tvöfaldast,
fara úr 37 í yfir 70 manns.
Litskrúðug nýsköpun
á Ásbrú
Framleiðsla Algalífs á astaxantín úr
örþörungum fer fram í stýrðu um-
hverfi innanhúss og er umhverf-
isvæn og ekkert jarðefnaeldsneyti
er notað í ferlinu. Notast er við sér-
stök LED-ljós og tölvustýrð ljósa- og
hitakerfi við ræktun örþörunganna
í lokuðum rörakerfum sem þýðir að
vatns-, raforku- og landnotkun er í
lágmarki. Þetta tryggir að bæði eru
magn og gæði stöðug. Úr þörung-
unum er unnið fæðubótaefnið as-
taxantín. Algalíf hefur getið sér gott
orð á alþjóðavettvangi fyrir sjálf-
bærni, gæði og afhendingaröryggi
og er orðinn einn stærsti þörunga-
framleiðandi í heimi.
Framleiðsla tveggja ára seld
„Markaðshorfur eru mjög góðar og
fjögurra milljarða erlend fjárfesting
sýnir trú á því sem við erum að gera.
Sérhæft og vel menntað starfsfólk
heldur framleiðslukostnaði Algalífs
í skefjum með nýsköpun og nýtingu
hátæknilausna á öllum stigum.
Því er náttúrulegt astaxantín frá
Algalíf mjög vel samkeppnishæft
á alþjóðamarkaði og sala gengur
mun betur en upphaflegar áætl-
anir gerðu ráð fyrir,“ segir Orri.
Þessi frumkvöðlastarfsemi hófst á
gamla varnarsvæðinu árið 2013 en
áður hlupu Varnarliðsmenn innan-
húss í hluta húsnæðisins sem Algalíf
notar. Það hefur verið stækkað og
framkvæmdir við rúmlega tvöföldun
á því hefjast á vormánuðum.
Stuðningur heimamanna
mikilvægur
Orri segir að mikill stuðningur hafi
komið frá Reykjanesbæ í upphafi
og sömuleiðis frá Kadeco sem hafi
gengið vel frá húsnæðinu þannig að
hægt hafi verið að setja upp starf-
semina fljótt og vel.
„Fljótlega eftir að starfsemin
hófst þurfti að laga tæknina og ná
upp meiri framleiðni. Það tókst og
er lykilatriði í starfseminni. Þegar
því var náð var farið í stækkun verk-
smiðjunnar sem tók þrjú, fjögur ár
og lauk á síðasta ári. Þá fyrst náði
verksmiðjan fullum afköstum í fram-
leiðslunni. Mikil hagkvæmni felst í
meiri stærð verksmiðjunnar og þá
eru markaðir góðir. Því var ákveðið
að halda áfram að stækka verk-
smiðjuna enn frekar.“
Jákvæðir eigendur
Eigendurnir eru í Noregi og Orri
segir að þeir hafi verið jákvæðir
fyrir uppbyggingunni frá upphafi og
séu með reynslu úr fæðubótastarf-
semi. „Þeir hafa verið mjög góðir eig-
endur og sýnt þessu mikinn skilning
því það hefur ekki alltaf gengið vel í
framleiðslunni og sölunni. Þeir hafa
stutt okkur vel og alltaf haft trú á því
sem við erum að gera og staðfesta
það með því að fara í þessa miklu
stækkun á verksmiðjunni núna.
Þetta skiptir mjög miklu máli í svona
frumkvöðlastarfsemi að hafa nógu
mikið og þolinmótt fjármagn, traust
og skilning. Skilur í raun á milli feigs
og ófeigs í svona frumkvöðlastarf-
semi,“ segir Orri.
Algalíf er hráefnisframleiðandi
og efnið er notað í fæðubótaefni að
langmestu leyti. Fyrirtækið er ekki
með vörumerki í smásölu og ein-
beitir sér að framleiðslu hráefnisins
en hverjir eru notendur vörunnar?
„Þetta er fólk sem er í líkams-
rækt og einnig þeir sem eru með
vandamál í liðamótum. Í grunninn
er þetta andoxunarefni þannig að
það hentar þeim vel sem eru að
æfa mikið og vilja ná hraðari endur-
heimt. Eins getur efnið verið væg
sólarvörn því þörungurinn er að
framleiða astaxantín til að verja sig
fyrir sólarljósi og það virkar líka á
mannslíkamann. Konur á leið í sólina
á Tenerife hafa keypt vöruna til að
verja húðina.“
Góður heimsmarkaður
Orri segir að heimsmarkaðurinn sé
góður fyrir þörungana um þessar
mundir en fyrirtækið er með um 50
kaupendur, þar af sex, sjö mjög stóra
sem kaupa 80 til 90% af framleiðsl-
unni. Þeim muni fjölga eftir stækk-
unina. Öll framleiðsla þessa árs og
næsta árs er seld og því er erfitt fyrir
Algalíf að lofa meiru fyrr en eftir
stækkunina.
Góðar aðstæður
Aðstæður á Íslandi eru að mörgu
leyti mjög góðar fyrir þörungafram-
leiðslu að sögn frumkvöðulsins.
„Það er nóg til af vatni og raforku
og verðið á henni er ekki mjög hátt.
Lágt og jafnt hitastig gerir stýringu
í frameiðslunni auðveldari og eins
fáum við minna af þörungum og að-
skotalífverum inn í kerfin því þær
sem þrífast vel á Íslandi líður ekki
vel í 25 til 30 gráðu heitu ræktunar-
kerfi,“ segir Orri Björnsson.
Páll Ketilsson
pket@vf.is
Þörungar
vaxa í
diskóljósum
á Ásbrú
Frumkvöðlafyrirtækið Algalíf á Ásbrú hóf starfsemi 2013 og hefur vaxið mikið. Nærri 40
manns starfa við framleiðslu fæðubótarefnis og verða nærri 80 eftir tvö ár. Bygging sjö
þúsund fermetra nýbyggingar skapar meira en eitt hundrað störf á næstu tveimur árum.
Orri Björnsson, forstjóri
Algalífs innan um „diskóljósin“
í litskrúðugri verksmiðjunni.
12 // vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM Í 40 ár