Víkurfréttir - 10.02.2021, Qupperneq 15
Páll varði Reykja-
víkurleikatitilinn
– Pílukastið hittir í mark í Grindavík
Vinsældir pílukasts hafa verið að aukast síðustu misseri og fjöldi manns
hefur tekið upp þetta skemmtilega sport. Einn þeirra erGgrindvíkingurinn
Páll Árni Pétursson, stýrimaður á Sturlu GK-12, sem varði titil sinn á
Reykjavíkurleikunum (Reykjavík International Games, RIG) um þar-
síðustu helgi. Hjá Pílufélagi Grindavíkur hefur pílukast verið á mikilli
uppleið síðustu ár og Grindavík fengið það orð á sig að vera Mekka pílu-
íþróttarinnar á Íslandi. Við tókum tal af Páli Árna, sigurvegara RIG 2021.
„Ég er ekki búinn að vera lengi í píl-
unni, ekki þannig, ég byrjaði að kasta
2011 en þá var ég á frystitogara sjö til
átta mánuði á ári, svo maður hefur
ekki alltaf getað kastað,“ segir Páll.
„Maður kastar lítið um borð en það
var aðeins gert í seinni tíð eftir að
við settum upp spjald, þá var hægt
að kasta einhverja daga á sumrin.“
– En hvenær byrjaðir þú að keppa?
„Ég fór nú bara að keppa fljótlega
eftir að ég byrjaði. Ég er kominn af
miklu pílufólki. Pabbi minn [Pétur
Hauksson] varð Íslandsmeistari ‘88
og Guðjón, bróðir hans, varð marg-
faldur Íslandsmeistari.“
– Hefur ekki orðið mikil vakning í
þessu sporti?
„Jú, alveg svakaleg og hefur aukist
mjög mikið síðustu tvö árin. Það kom
alger bomba eftir heimsmeistara-
mótið og svo aftur núna. Við erum
örugglega í kringum hundrað manns
sem erum skráð í félagið, m.a. mættu
þarna um fjörutíu konur og skráðu
sig í félagið fyrir áramót.
Félagsstarfið hefur aðeins legið
niðri undanfarið enda höfum við
ekki getað verið með opin kvöld
eða neitt þannig út af þessum tak-
mörkunum.“
Fór létt með
Íslandsmeistarann
Aðspurður segist Páll Árni hafa
orðið deildarmeistari með liði Pílu-
félags Grindavíkur síðustu tvö ár en
hann keppir einnig með landsliði Ís-
lands og hefur staðið sig ágætlega á
mótum með því.
„Ég tók þátt í einmenningsmóti
í Rúmeníu og þar komst ég lengst
okkar Íslendinganna. Svo fór ég
á Skoska opna í febrúar fyrir ári
síðan, þá komst ég aftur lengst
okkar íslensku keppendanna og datt
út í þriðju umferð en það voru eitt-
hvað um þúsund keppendur. Ég og
Hörður, frændi minn og sonur Guð-
jóns, kepptum einnig í tvímenningi
í þessu móti og komumst í átta liða
úrslit. Það er það lengsta sem Íslend-
ingar hafa náð held ég.“
Í úrslitaviðureign Reykjavíkurleik-
anna mætti Páll Íslandsmeistaranum
frá því í fyrra, Matthíasi Erni Frið-
rikssyni sem er einnig frá Grindavík.
Úrslitaleikurinn varð aldrei spenn-
andi því Páll sigraði auðveldlega, 7:1.
„Það gekk bara allt upp hjá mér
og ég hleypti honum aldrei almenni-
lega í leikinn. Hann átti aldrei séns,
þannig.“
– Ef maður ætlar að byrja í pílu, er
þetta ekki bara að taka upp pílur
og byrja?
„Bara setja upp spjald og byrja að
kasta. Það eru til fjölmargir leikir
sem hægt er að spila, ekki bara 501
heldur fullt af öðrum skemmtilegum
leikjum.“
– Er eitthvað ungmennastarf í gangi
hjá ykkur?
„Já, við erum með unglingapílu
heima og vorum með fyrir yngri
krakka um daginn. Það var mjög
vel sótt, komu einhverjir tuttugu
krakkar og voru að kasta í að-
stöðunni okkar. Pétur Rúðrik Guð-
mundsson hefur verið að halda utan
um þessa yngri hópa og gert það vel.“
Páll, sem situr í stjórn pílu-
félagsins, segir alla aðstöðu í
Grindavík til að stunda pílukast vera
mjög góða. Hann er þegar þetta er
skrifað kominn á sjóinn en er hættur
á frystitogurunum og kominn á ís-
fisktogara. Þar eru landlegurnar
fleiri þó þær séu styttri en á frysti-
togurunum.
„Íslandsmótið er í maí og ég ætla
að stíla inn á að taka þátt í því – fyrst
maður tók Íslandsmeistarann núna
er annað eiginlega ekki hægt. Stíla
inn á að vera í fríi og koma í land
aðeins fyrir mót, ná úr sér mestu
sjóriðunni og koma sér í gírinn.“
Jóhann Páll Kristbjörnsson
johann@vf.is
AUGLÝSING
UM TILLÖGU AÐ BREYTINGU
Á DEILISKIPULAGI MIÐSVÆÐIS
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga samþykkti þann 27. janúar 2021
að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Miðsvæðis,
skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillagan gerir ráð fyrir að svæði á núgildandi deiliskipulagi merkt „Þjónustustarfsemi“verði
breytt í íbúðasvæði. Gert verður ráð fyrir 2, tveggja hæða fjölbýlishúsum á svæðinu, öðru
með 8 íbúðum og hinu með 6 íbúðum. Að auki verður einnig gert ráð fyrir einni einbýlis-
húsalóð. Tillagan er sett fram á uppdrætti og vísast til hans um nánari upplýsingar.
Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogum frá og með
mánudeginum 8. febrúar 2021 til og með mánudagsins 22. mars 2021. Tillagan er einnig að-
gengileg á vef Sveitarfélagsins Voga, www.vogar.is/Skipulag/Skipulag_i_kynningu/.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við
tillöguna. Skila skal skriflegum athugasemdum til skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2,
190 Vogar eða á netfangið skrifstofa@vogar.is eigi síðar en mánudaginn 22. mars 2021.
Vogum, 8. febrúar 2021
Sigurður H. Valtýsson,
skipulags- og byggingarfulltrúi.
Frændurnir Páll Árni og Hörður Þór Guðjónsson ásamt Martin Adams og Ross Montgomery sem þeir
mættu í 8 liða úrslitum á Scottish open 2020 í tvímenningi, það er það lengsta sem Íslendingar hafa
náð á þessu móti. Martin og Ross höfðu unnið Hollenska opna í tvímenningi tveimur vikum áður.
Í brúnni á ísfisktogaranum Sturla
GK-12 sem Þorbjörn hf. gerir út.
Páll með Wayne Warren
á Scottish open 2020.
Warren varð heimsmeistari
BDO 2020.
Með hinni heimsþekktu Fallon
Sherrock sem varð fyrst
kvenna til að vinna leik í PDC
heimsmeistarakeppninni árið
2019. Hún vann tvo fyrstu leikina
og datt úr í þriðju umferð.
Grindvíkingurinn Jón Axel Guð-
mundsson skoraði tólf stig í góðum
sigri Fraport Skyliners í þýsku úr-
valsdeildinni um síðustu helgi.
Lokatölur urðu 72:96. Jón Axel og fé-
lagar hans í Skyliners eru í 8.–9. sæti
deildarinnar með sjö sigra og níu töp.
Elvar Már Friðriksson hefur heldur
betur fundið sig í LKL-deildinni
í körfubolta í Litháen en liðinu
sem hann leikur með ekki eins vel.
Siauliai tapaði fyrir Vilnius Rytas
85:98 um síðustu helgi. Njarðvík-
ingurinn lék í 29 mínútur og skoraði
átján stig og tók fimm fráköst.
Keflvíkingurinn Thelma Dís Ágústs-
dóttir stundar nám í Bandaríkjunum
og leikur með háskólaliði Ball State
Cardinals. Liðið tapaði í vikunni fyrir
Norhern Illinois Huskies í háskóla
síðasta mánudag 78:74. Thelma Dís
Körfuboltafólk
frá Suðurnesjum
í eldlínunni í
útlöndum
lék í 38 mínútur og skoraði átta stig,
tók fjögur fráköst, gaf tvær stoðsend-
ingar og stal boltanum einu sinni.
Tvíburasysturnar úr Keflavík, Sara
Rún og Bríet Sif Hinriksdætur og
Emilía Ósk Gunnarsdóttir léku með
landsliðinu í undankeppni EM í
körfubolta kvenna um síðustu helgi.
Ísland tapaði báðum leikjunum,
gegn Grikkjum og Slóvenum. Sara
Rún, einn besti leikmaður liðsins,
meiddist í upphafi seinni leiksins
gegn Grikkjum.
Ljósmyndir úr safni Páls
Mynd: Karfan.is
vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM Í 40 ár // 15