Víkurfréttir - 17.03.2021, Side 2
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
HREINSUM
RIMLAGARDÍNUR OG
MYRKVUNARGARDÍNUR
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS
Nýjustu gervihnattamyndir af umbrotasvæðinu á Reykja-
nesskaga sýna aflögun vegna stóra skjálftans sem varð
klukkan 14:15 á sunnudag. Myndirnar sýna líka tognun á
jarðskorpunni vegna þess að kvika flæðir inn í kvikugang-
inn. Á einni viku hefur orðið gliðnun á landinu milli Keilis og
Nátthaga sem nemur um tuttugu sentimetrum, þ.e. landið
hefur færst um tíu sentimetra í hvora átt.
Með hverjum deginum sem líður eru
taldar meiri líkur á eldgosi á Reykja-
nesskaga og öll gögn Veðurstofu
Íslands benda til þess að gos muni
koma upp suður af Fagradalsfjalli,
í eða við Nátthaga við Borgarfjall.
Mesta virknin er ennþá bundin við
svæðið í kringum Nátthaga, en einnig
hefur mælst smávægileg virkni um 4
km norðan við það svæði. Nýjustu
gögn benda áfram til þess að mesti
þrýstingur vegna kviku sé í syðsta
enda kvikugangsins undir Nátthaga
og þar sé því líklegast staðurinn að
kvika komi upp nái hún að brjóta sér
leið upp á yfirborðið.
Yfir 50.000 skjálftar
Þegar þetta er skrifað síðdegis
þriðjudaginn 16. mars hafa orðið
fleiri en 50.000 jarðskjálftar á
Reykjanesskaga frá því hrinan
hófst 24. febrúar en nú eru liðnar
þrjár vikur frá því að jarðskjálfti
upp á M5,7 reið yfir á svæðinu milli
Keilis og Fagradalsfjalls. Það er
stærsti skjálftinn í allri hrinunni en
skjálftinn síðasta sunnudag var upp
á M5,4. Áhrif hans voru þó meiri í
Grindavík þar sem upptökin voru
nær bænum. Vörur féllu úr hillum í
verslunum í Grindavík og á heimilum
féllu hlutir úr hillum, myndir duttu
af veggjum og jafnvel innréttingar
féllu um koll. Sprungur hafa víða
komið í veggi og gólf.
Ekki sofið heila nótt
Íbúar í Grindavík finna mest fyrir
áhrifum skjálftana og hafa margir
hverjir ekki sofið heila nótt án þess
að hrökkva upp við skjálfta. þannig
hafa þónokkrir íbúar Grindavíkur
notað hvert tækifæri sem gefst til að
fara í sumarbústaði eða hótelgistingu
utan Suðurnesja. Þá hefur Grind-
víkingum verið boðinn aðgangur
að sumarhúsum til að hvílast frá
tíðum skjálftum. Einnig hefur verið
biðlað til hótela og gististaða að
bjóða íbúum Grindavíkur uppá hag-
stæða gistingu. Bent hefur verið á að
ónógur nætursvefn getur verið skað-
legur fyrir heilsuna.
Fylgst er með framvindu mála og
náttúruöflum á Reykjanesskaganum
á vef Víkurfrétta þar sem nýjustu
fréttir eru uppfærðar allan sólar-
hringinn.
Yfir 50.000 jarðskjálftar
og gos líklegt í Nátthaga
Ísólfsskáli
Festarfjall
Kvikugangurinn
er kominn í Nátthaga
Það rauk úr fjöllunum austan við Grindavík eftir jarðskjálftann sem
varð síðasta sunnudag. Skjálftinn var M5,4. Ljósmynd: Styrmir Geir Jónsson
Kvikugangurinn er kominn í Nátthaga og færist hægt og rólega
til suðurs. Frá Nátthafa er stutt til sjávar og líklegast að ef það
gýs á þessum stað muni hraunið renna yfir Suðurstrandarveg
og til sjávar í Hraunsvík, sem þá mun standa undir nafni. Til að
setja staðsetninguna í samhengi við staðhætti sem margir
þekkja, þá er Ísólfsskáli á þessum slóðum, sem og Festarfjall.
Gott útsýni er til svæðisins frá Hópsnesi við Grindavík.
Horft til fjalla þar sem líklegast er að eldgos geti komið upp. Nátthagi er dalurinn inn á milli fjallanna á myndinni. VF-mynd: Hilmar Bragi
FIMMTUDAG KL. 20:30
HRINGBRAUT OG VF.IS
Ákveðið hefur verið að opna frí-
stundaheimili grunnskólanna í
Reykjanesbæ fyrir börn fædd 2015
frá 9. ágúst til skólasetningar. Um
leið verður ekki í boði fyrir þann
hóp að koma aftur inn á leikskólann
sinn eftir að sumarleyfi lýkur.
Markmiðin með þessari opnun eru
meðal annars að brúa bilið milli
leik- og grunnskólagöngu nemenda,
að aðlögun nýrra leikskólabarna
geti farið fram fyrr en verið hefur
og að aðlaga tilvonandi fyrstu bekk-
inga í grunnskólann sinn.
Farið var af stað með tilraunaverk-
efni í þremur skólum haustið 2020
og var almenn ánægja foreldra með
framkvæmdina. Að fenginni reynslu
þessa tilraunaverkefnis var ákveðið
að bjóða upp á þessa þjónustu í
öllum grunnskólum sveitarfélagsins
og koma þannig til móts við þarfir
fjölskyldna en einnig til að jafna
stöðu íbúa sveitarfélagsins meðal
annars með tilliti til baklands sem
er hluti af stefnu Reykjanesbæjar,
Í krafti fjölbreytileikans og verk-
efnisins Allir með!
Opna frístunda-
heimilin frá
9. ágúst fyrir
börn fædd 2015
Íþrótta- og tóm-
stundaráð Reykja-
nesbæjar tekur vel
í erindi frá íbúa í
Reykjanesbæ þar sem
ráðið er hvatt til að veita atvinnu-
leitendum frítt í sund tímabundið.
Ráðið felur íþrótta- og tómstunda-
fulltrúa að skoða málið nánar.
Tekur vel í
erindi um frítt
í sund fyrir
atvinnuleitendur
2 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM Í 40 ár