Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.03.2021, Page 8

Víkurfréttir - 17.03.2021, Page 8
Brúin félagsmiðstöð í Háaleitisskóla: Ungmennin finna sig betur í eigin umhverfi Félagsmiðstöðin Brúin í Háaleitisskóla opnaði form- lega fimmtudaginn 4. mars. Félagsmiðstöðin er sam- starfsverkefni Háaleitis- skóla og Fjörheima félags- miðstöðvar. Starfsmenn sem sinna vöktum í Brúnni eru starfsmenn Háaleitis- skóla ásamt starfsfólki Fjörheima. Alls mættu 33 ungmenni á opnunar- kvöldið og komu ungmenni frá öllum bekkjum á unglingastigi skólans. Gunnhildur Gunnarsdóttir, for- stöðumaður Fjörheima og 88 hússins, segir í bréfi sem lagt var fyrir síðasta fund íþrótta- og tóm- stundaráðs Reykjanesbæjar að ung- mennin virtust skemmta sér vel og tóku virkan þátt í dagskrá og leikjum kvöldsins. Ungmennin virtust finna sig betur í eigin umhverfi heldur en með ungmennum úr öðrum skólum Reykjanesbæjar. „Við erum vongóð um að þetta verkefni virki félagslíf ungmenna í Háaleitisskóla. Þetta opnar fleiri möguleika fyrir ungmennin til þess að stunda skipulagt tómstundastarf í sínu nærumhverfi,“ segir Gunnhildur jafnframt í bréfinu. Frumkvæði að opnun félags- miðstöðvarinnar kemur frá skóla- stjórnendum Háaleitisskóla sem að rýndu í niðurstöður Rannsókna og greininga þar sem kom fram að unglingar í Háaleitisskóla sóttu Fjör- heima minna en nemendur í öðrum skólum. Frístunda- og tómstundabíll til reynslu í mánuð fyrir innri-Njarðvík og ásbrú Tillaga frá stýrihópi almenningssamgangna um akstur frístunda- og tóm- stundabíls til reynslu í einn mánuð sem mun keyra um Innri-Njarðvík og Ásbrú var lögð fyrir bæjarráð Reykjanesbæjar í síðustu viku. Bæjarráð samþykkir tillöguna en kostnaður við verkefnið er rétt tæpar 2,4 milljónir króna. AÐALSKIPULAG SUÐURNESJABÆJAR SKIPULAGS- OG MATSLÝSING FYRIR HE ILDARENDURSKOÐUN BÆJARSTJÓRN SUÐURNESJABÆJAR SAMÞYKKTI ÞANN 3 . MARS 2021 AÐ SKIPULAGS- OG MATSLÝSING AÐALSKIPULAGS SUÐURNESJABÆJAR VERÐI KYNNT ÍBÚUM OG ÖÐRUM HAGSMUNAAÐILUM. JAFNFRAMT VERÐI LEITAÐ UMSAGNAR HJÁ SKIPULAGSSTOFNUN OG HJÁ ÞEIM UMSAGNARAÐILUM SEM TILGREINDIR ERU Í LÝSINGUNNI OG Í SAMRÆMI VIÐ 1 . MGR. 30 . GR. SKIPULAGSLAGA NR. 123/2010 . Nýtt aðalskipulag Suðurnesjabæjar felur í sér endurskoðun gildandi aðalskipulaga, þ.e. Aðalskipulags Garðs 2013–2030 og Aðal skipulags Sandgerðisbæjar 2008-2024. Innan sveitarfélagamarka er einnig í gildi Aðalskipulag Keflavíkurflugvallar 2013–2030, en það er ekki hluti af endurskoðuninni. Í skipulags- og matslýsingu er farið yfir ýmis atriði sem skipta máli við endurskoðun aðal- skipulaga í Suðurnesjabæ. Skipulags- og matslýsing er verklýsing þar sem m.a. er gerð grein fyrir ástæðum endurskoðunar, afmörkun, gildistíma, helstu áherslum, forsendum, fyrirliggjandi stefnu, samráði, tímaferli og umhverfismati áætlunar. Skipulags- og matslýsingin verður til sýnis á bæjarskrifstofunni að Sunnubraut 4 og á heimasíðu Suðurnesjabæjar, www.sudurnesjabaer.is frá og með þriðjudeginum 16. mars 2021 til og með miðvikudeginum 31. mars 2021. Kynning á skipulags- og matslýsingu fer fram fimmtudaginn 25. mars kl 19.30 í Vörðunni, Miðnes torgi 3. Athugið að vegna sótt- varnareglna þarf að skrá sig á viðburðinn á afgreidsla@sudurnesjabaer.is ef ætlunin er að mæta á staðinn. Einnig er hægt að tilkynna þátttöku í síma 425 3000. Fundurinn verður einnig í beinu streymi á Facebook-síðu Suðurnesjabæjar. Athugasemdir við skipulags- og matslýsinguna skulu berast til Suðurnesjabæjar á afgreidsla@sudurnesjabaer. is eða bréfleiðis á skrifstofu sveitarfélagsins Sunnubraut 4, 250 Suðurnesjabæ undir yfirskriftinni „Aðalskipu- lag Suðurnesjabæjar“. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út 31. mars 2021. Að auki er hægt að koma á framfæri hugmyndum og ábendingum í inn í gerð aðalskipulagsins í gegnum Betri Suðurnesjabæ á betraisland.is. F.h. bæjarstjórnar, Magnús Stefánsson, bæjarstjóri. 8 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM Í 40 ár

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.