Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.03.2021, Blaðsíða 11

Víkurfréttir - 17.03.2021, Blaðsíða 11
Bellissimo! Nýr ítalskur matseðill alla daga frá kl 17:00 til 15. apríl www.TheBridge.is Tjarnargötu 3 Keflavík - Sími 421-3855 #draumaland230 Georg Jensen gjafavörurnar í miklu úrvali FERMINGARGJAFIR OG BLÓMIN Deilileiga með rafskútur opnar í Reykjanesbæ í apríl. Opnað verður með 50 rafskútum í byrjun apríl og verður hægt að leigja þær í gegnum app í snjallsíma. Þjónustan verður opnuð sem sér- leyfi (e. franchise) og mun fyrirtækið heita Hopp Reykjanesbæ ehf. Samn- ingur milli þess og Reykjanesbæjar var undirritaður nýlega. Hopp er íslenskt fyrirtæki sem býður upp á þjónustu þar sem sem hægt er að leigja rafskútur innan ákveðins þjónustusvæðis. Notendur aflæsa rafskútunum með appi og geta síðan keyrt um á þeim gegn vægu gjaldi. Þegar ferðinni er lokið er hægt að rafskútinni hvar sem er innan þjónustusvæðisins. Líkt og í Reykjavík mun Hopp í Reykjanesbæ sjá til þess að þjón- ustan gagnist heimamönnum fyrst og fremst. Markmiðið er að bjóða einstaklingum upp á umhverfis- vænan og handhægan ferðamáta til þess að komast leiðar sinnar á svæðinu, segir í tilkynningu frá fyrir- tækinu. Guðlaugur H. Sigurjónsson, sviðsstjóri hjá Reykjanesbæ (t.h.), Joseph Feyen, eigandi Hopp í Reykjanesbæ, og Þorgrímur Emilsson frá Hopp Reykjavík. Deilileiga með rafskútur opnar í Reykjanesbæ í apríl U m hve r f i s - o g fe rð a m á l a - nefnd Grindavíkur minnir á að lausaganga hunda er bönnuð í Grindavík, bæði í þéttbýlinu sem og á útivistarsvæðum bæjarins. Málið var tekið fyrir á síðasta fundi nefndarinnar þar sem segir einnig: „Að gefnu tilefni eru hunda- eigendur beðnir um að hirða upp eftir hundana sína.“ Lausaganga hunda bönnuð vf is vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM Í 40 ár // 11

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.