Víkurfréttir - 17.03.2021, Qupperneq 23
„Ég var reyndar lengi sannfærð um að verða
flugmaður en ég var svo hrædd um að sjá
eftir því seinna að hafa ekki drifið mig út.
Ég sé alls ekki eftir því núna og er mjög fegin
að ég nýtti mér möguleikana sem sundið gaf
mér,“ segir Gunnhildur Björg Baldursdóttir,
afrekssundkona úr Keflavík og háskólanemi
í Bandaríkjunum.
Gunnhildur hefur náð góðum árangri í
lauginni og meðal annars synt með landsliði
Íslands á Norðurlandameistaramóti. Hún
hefur í mörg ár synt með ÍRB en var það
alltaf draumur hjá henni að fara út í skóla?
„Já, þetta hefur alltaf verið draumurinn.
Ég var heppin að hafa margar fyrirmyndir í
ÍRB, t.d. Erlu Dögg, Davíð Hildiberg og Jónu
Helenu sem fóru öll til Bandaríkjanna á
sundstyrk. Ég heillaðist snemma af ævintýra-
sögunum þeirra sem þau sögðu okkur yngri
sundkrökkunum á sumrin þegar þau voru í
fríi í skólanum, þá var ég bara um tólf ára.“
– Í hvaða greinum ertu best í?
„Ég hef alltaf verið sterkust í 200 metra flug-
sundi og svo 200 og 400 metra fjórsundi og
ég náði þar inn á Norðurlandameistaramótið
árin 2018 og 2019. Það var frábær reynsla
að fá að keppa fyrir Íslands hönd og skapaði
fullt af nýjum tækifærum fyrir mig.“
– Hvernig endaðir þú í Ohio?
„Þetta er spurning sem margir spyrja mig
að hérna úti. Þetta var allt saman ákveðið
ferli en ég byrjaði á að finna mér umboðs-
mann sem hafði tengsl við marga góða sund-
þjálfara í bandarískum háskólum. Það sem
við gerðum var í raun ekki mikið flóknara en
að senda fjöldapóst á um 250 sundþjálfara og
svo biðum við spennt eftir svörum. Það voru
margir sem höfðu samband til baka og þar á
meðal skólinn minn, Youngstown State Uni-
versity. Samskiptin eru fyrst bara í gegnum
tölvupóst og síðan hringja þjálfarar yfirleitt í
mann á Skype til að ræða markmið og samn-
inga. Til þess að landa samningi er mikilvægt
að vera sterkur námsmaður því sundið og
skólinn helst mikið í hendur. Þjálfarar eru líka
að leitast mikið eftir karakterum sem geta
haldið góðum liðsanda því sund er mun meiri
liðsíþrótt hér úti heldur en heima.“
– Hvernig gengur námið?
„Það gengur mjög vel en ég ákvað að skella
mér í fjölmiðlafræði í Youngstown State Uni-
versity. Ég hef alltaf verið mikið sögunörd og
hef gríðarlegan áhuga á samfélaginu, stjórn-
málum og fólki. Fjölmiðlafræðin er mjög
fjölbreytt svið þar sem ég læri ekki aðeins að
skrifa greinar, heldur líka hvernig á að koma
fram, hvernig maður tekur góð viðtöl og svo
margt fleira. Við förum líka djúpt í siðfræðina
og hvernig fjölmiðlafólk tekur ákvarðanir
samkvæmt henni.
Ég held að ég sé
á akkúrat réttum
stað á réttum tíma.
Það er sérstaklega
spennandi að læra
fjölmiðlafræði
á tímum sem
heimurinn er að
breytast hratt
og með Banda-
ríkin sem stærsta
sögusviðið beint
fyrir framan
nefið á mér,“
en í skólanum
ytra er hún
meðlimur
kvennablaðs
háskólans sem
heitir „Her
Campus“.
– Hverjar eru stærstu áskoranirnar við að
vera í háskólanámi í miðjum heimsfaraldri?
„Það er klárlega að vera í fjarnámi. Helming-
urinn af áföngunum mínum eru á netinu og
það krefst mikils sjálfsaga og tímastjórnunar
að gera öll verkefnin. Það sem mér finnst
líka erfitt er að í staðinn fyrir að rétta upp
hönd og kennarinn svarar spurningunni á 30
sekúndum þá þarf ég að eyða tíma í að skrifa
nákvæman tölvupóst til kennarans og síðan
er mismunandi hvað þeir eru fljótir að svara.
Sumir svara ekki fyrr en tveimur dögum
seinna. Vegna fjarnámsins er ég líka að missa
af því að upplifa ýmislegt sem fylgir því að
vera í háskóla og það er erfiðara að kynnast
nýju fólki. Samt vil ég alltaf reyna að horfa á
björtu hliðarnar. Fyrir mig er það nóg að vera
hérna úti að gera það sem mig hefur alltaf
dreymt um og ég er þakklát fyrir þá sér-
stöðu að liðið mitt er það eina í deildinni sem
getur æft á fullu. Það eru ekki allir skólar jafn
heppnir, við höfum staðið okkur vel að halda
smitum niðri.“
– Geturðu lýst skólasvæðinu?
„Háskólasvæðið er akkúrat passlegt, ekki of
stórt en samt ekki lítið. Allt sem ég þarf er í
um það bil í tíu mínútna radíus. Eins og al-
gengt er þá eru sér byggingar fyrir hvert svið
þannig ég er ekkert allt of mikið að flakka
út um allt. Ég bý líka á heimavistinni sem er
skemmtileg stemmning því stór hluti af
sundliðinu býr þar og við borðum t.d. öll
saman eftir æfingar. Það sem kom mér á
óvart var að heimavistin er nákvæmlega eins
og í bíómyndunum.
Núna er aðeins farið að vora en það er
sérstaklega fallegur árstími því það eru svo
mörg tré hérna sem fara að blómstra. Þá er
svo ljúft að geta lært á meðan maður situr
úti í sólinni með kaldan drykk og nýtur þess
að vera í fallegu umhverfi.“
– Ef við horfum aðeins fram í tímann,
hvernig líta næstu ár út hjá þér?
„Mestur fókusinn á eftir að fara í að hjálpa til
við að byggja upp sterkt lið. Við erum með
flotta sundmenn alls staðar úr heiminum,
t.d. Indlandi, Chile, Ungverjalandi, Bahama,
Spáni og Rúmeníu svo eitthvað sé nefnt.
Þetta sundlið er á mikilli uppleið og við
stefnum á að vera að minnsta kosti
í einu efstu þremur sætunum í
deildinni, það verður því spennandi
að sjá hvernig næstu meistaramót
fara.
Varðandi námið þá langar mig
að sækja mér reynslu bæði heima
á Íslandi og hér í Bandaríkjunum.
Það er nefnilega ekki alltaf það
sama að læra fjölmiðlafræði og að
starfa sem fjölmiðlakona í krefj-
andi starfsumhverfi. Annars er
þetta svo mikið ævintýri að læra
erlendis að ég leyfi hlutunum
bara að gerast. Mér finnst best
að reyna taka einn dag í einu
og njóta þess að vera hérna því
tíminn er fljótur að líða,“ segir
sunddrottningin Gunnhildur
Björg.
Heimavistin er nákvæmlega
eins og í bíómyndunum
Til þess að landa samningi er
mikilvægt að vera sterkur náms-
maður því sundið og skólinn helst
mikið í hendur. Þjálfarar eru l íka
að leitast mikið eftir karakterum
sem geta haldið góðum liðsanda
því sund er mun meiri l iðsí-
þrótt hér úti heldur en heima . . .
Keflvíkingurinn Gunn-
hildur Björg Baldurs-
dóttir, afrekskona
í sundi, stundar nám
í fjölmiðlafræðum og
syndir með sundliði
Youngstown State-
háskólans í Ohio í
Bandaríkjunum.
vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM Í 40 ár // 23