Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2020, Síða 3

Náttúrufræðingurinn - 2020, Síða 3
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 223 Ártalið 2020 verður lengi í minnum haft. Árið þegar örsmá kórónuveira breiddist með ógnarhraða um hnött- inn, sýkti næstum 90 milljónir manna og deyddi 1700 þúsund manns. Í tæpt ár hafa þjóðir heims lagt kapp á að verjast farsóttinni, finna og framleiða bóluefni, lækna sjúka – og fást jafnframt við erfið úrlausnarefni sem fylgja í kjölfarið; tekjuhrun, atvinnuleysi og langvinn eftirköst hjá mörgum sem veikjast. Nú, ótrúlega stuttu síðar, er bólusetning hafin og við getum glöð kvatt árið 2020 og litið bjartari augum til framtíðar. SARS-CoV-2-veiran, sú sem veldur Covid-19, er eins og aðrar kórónuveirur upprunnin í villtum dýrum, trúlega leð- urblökum. Það er ekkert nýtt að skæðar veirur berist úr dýrum í menn. Þekkt dæmi eru fuglaflensan 2004–2007, svínaflensan 2009, alnæmi eða HIV/ Aids sem barst frá mannöpum og loks Sars og Ebola, sem rakin eru til leður- blaðkna. Veirur munu halda áfram að stökkbreytast og berast frá dýrum til manna, en vísindamenn benda á að tíðni slíkra sýkinga (e. zoonosis) hefur aukist verulega. Aukna tíðni má rekja til þess hversu hart við höfum leikið náttúruna; eytt jarðvegi og búsvæðum villtra dýrastofna og gerbreytt tegunda- samsetningu í heilu vistkerfunum. Baráttan gegn endurteknum heims- faröldrum felst því ekki í bóluefni einu saman, heldur þarf mannkyn að taka upp breytta siði til að forðast tíðari og skæðari dýrapestir. Við þurfum að lifa í sátt við náttúruna, snúa við blaði í neysluvenjum okkar, draga úr röskun búsvæða og ósjálfbærum orkubúskap, hindra frekari loftslagsbreytingar og vinna að viðhaldi líffræðilegrar fjöl- breytni. Þetta er mikilvægur lærdómur sem draga má af heimsfaraldrinum. Víðtækt útgöngubann, ferðatak- markanir á alþjóðavísu og lokun verk- smiðja leiddi til skyndilegs falls í losun gróðurhúsalofttegunda í upphafi Covid-19-faraldursins. Áhrifin voru víða áþreifanleg, svo sem í Punjab-hér- aði á Indlandi þar sem í fyrsta sinn í 30 ár sást til Himalaja-fjallgarðsins, og í Feneyjum þar sem fiskur synti á ný í síkjunum. Mengun frá skemmtiferða- skipum og farþegaflugvélum hvarf eins og dögg fyrir sólu. Meira að segja hér í fámenninu á Íslandi hvarf gula meng- unarrákin úti við sjóndeildarhringinn. Til lengri tíma litið verða áhrifin af þessum óvænta samdrætti í losun því miður ekki mikil. Strax í sumar reiknuðu sérfræðingar út að miðað við ólíkar spár um framgang faraldursins yrði losun á þessu ári 4–7% minni en á árinu 2019. Slíkur samdráttur, jafn- vel þótt hann væri árlegur, dugir ekki til að halda hlýnun jarðar innan við 2°C á þessari öld, sem er markmið Par- ísarsamningsins. Það sýndi sig líka að losun jókst hratt þegar lönd opnuðust á nýjan leik. Og þegar upp er staðið reynist 2020 verða eitt af fimm heitustu árum frá því að mælingar hófust. Hvað getum við þá lært af Covid-19 og nýtt í baráttunni gegn loftslagsvánni? Við höfum séð að það er hægt að breyta hegðunarmynstri fjöldans til hagsbóta fyrir samfélagið í heild með faglegri upplýsingagjöf í bland við boð og bönn sem yfirvöld geta gripið til. En til þess að það beri árangur þarf almenningur sjálfur að skynja og skilja ávinninginn af breyttri hegðun og skerðingum og áhættuna sem fylgir því ef ekkert er að gert. Veiran sýndi okkur einnig að bæði einstaklingar og samfélög geta notið beins ávinnings af samdrætti í losun koltvíoxíðs. Í öllum hinum iðnvædda heimi önduðu menn léttar, loftið var hreinna, umferðarniðurinn minni, fuglasöngurinn fegurri og nándin við náttúruna meiri. Við sáum líka að árangurinn byggist á vísindalegum gögnum og rannsóknum og á alþjóðlegri samvinnu og samtakamætti. Sú reynsla gagnast vonandi í baráttunni gegn ham- farahlýnun þar sem allir þurfa að taka til hendi og breyta hegðunarmynstri sínu. 2020 Náttúrufræðingurinn 90 (4–5) bls. 223–224, 2020
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.