Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2020, Síða 9

Náttúrufræðingurinn - 2020, Síða 9
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 229 Ritrýnd grein / Peer reviewed Hnitunargreining (Principal Com- ponent Analysis; proc PrinComp í SAS 14.3) var notuð til að bera saman breytingar á tegundasamsetningu æð- plantna. Þar var gróðurþekja í öllum föstum vöktunarreitum í Káraskeri og Bræðraskeri notuð fyrir tímabilið 1965 til 2016, annars vegar þekja einstakra æðplöntutegunda og hins vegar heildar- þekja mosa og fléttna. Æðplöntu- tegundir sem einungis fundust einu sinni í einum reit voru ekki hafðar með í hnitunargreiningunni. Þekjugögnum var log-umbreytt og tegundum sem ekki fundust í reitum (e. missing values) var gefið lágmarksgildi (0,00001% þekja) fyrir log-umbreytingu, sem er ad hoc- aðferð til að draga úr vægi þeirra í keyrslunni.26 Sérstök hnitunargreining var gerð fyrir alla reiti síðasta árið sem þeir voru gróðurmældir (2016). Breytingar á jarðvegsþáttum voru greindar með einþátta fervikagreiningu og ad hoc-LSD-prófum í SAS 14.3, og einnig með fylgnigreiningu í Sigmaplot 12.2. NIÐURSTÖÐUR Gróðurbreytingar 1965–2016 Æðplöntur námu fyrstar land í jökul- skerjunum og einkenna þær fyrstu skref framvindunnar umfram mosa og fléttur (4. mynd). Í reitunum í Bræðraskeri fundust æðplöntur í þremur reitum (43% elstu reita) árið 1965 þegar skerið var fimm ára. Ári síðar fundust æðplöntur í sex reitum (88% elstu reita) og í síðasta reitnum höfðu æðplöntur komið sér fyrir tólf árum eftir að skerið kom upp (4. mynd). Flestir reitirnir í báðum skerjum höfðu stöðuga æð- plöntuþekju þegar farið var að vakta þá 5–29 árum eftir að þeir komu upp úr jökli (gögn ekki sýnd). Í Bræðraskeri voru þrjár æðplöntu- tegundir, músareyra (Cerastium alpi- num), fjallasveifgras (Poa alpina) og þúfusteinbrjótur (Saxifraga cespitosa) í fyrstu sjö reitunum þegar þeir voru lagðir út 1965. Árið 1979 (19 árum eftir að skerið kom upp) voru æðplöntutegund- irnar þar orðnar 19 í alls tíu reitum. Þær fundust einnig allar í reitunum í Káraskeri árið 1965 (29 árum eftir að það kom upp). Þá uxu í Káraskeri einnig 5 tegundir sem ekki höfðu numið land í yngri reitum í Bræðraskeri, blávingull (Festuca vivipara), fjallafoxgras (Phleum alpinum), fjallapuntur (Deschampsia alpina), fjallavíðir (Salix arctica) og ljósadúnurt (Epilobium lactiflorum). Því höfðu alls 24 tegundir æðplantna numið land í reitunum á innan við 30 árum eftir að skerin komu upp (4. mynd). Allar þessar fyrstu tegundir hafa verið til staðar í reitunum allan vöktunartímann nema steindepla (Veronica fruticans), sem fannst bara eitt ár, og svo skamm- krækill (Sagina procumbens) og þúfu- steinbrjótur sem hafa fundist ítrekað en alltaf horfið aftur. Fjórar æðplöntu- tegundir bættust við í reitina þegar skerin voru orðin 31–40 ára gömul en af þeim hafa einungis túnfífill (Taraxacum sp.) og fjalladúnurt (Epilobium ana- gallidifolium) fundist í reitum til ársins 2016. Hvítmaðra (Galium normanii) og snæsteinbrjótur (Saxifraga nivalis) hurfu aftur. Þegar skerin voru orðin 40–50 ára gömul bættust enn við fjórar æðplöntutegundir, þ.e. melablóm (Arabidiopsis petraea), fjallasmári (Sibb- aldia procumbens), melanóra (Minuartia rubella) og undafífill (Hieracium sp.), en undafífill hvarf fljótt aftur. Nýjustu landnemar í Káraskeri, 51–80 árum eftir að það kom upp (þ.e. síðustu 30 ár vökt- unarinnar), eru ljónslappi (Alchemilla alpina), grámulla (Omalotheca supina) og smjörgras (Bartsia alpina), auk tungl- jurtar (Botrychium lunaria) sem hefur bara verið skráð eitt ár innan reita. Af þeim 36 tegundum æðplantna sem hafa verið skráðar í reitum frá 1965 fundust 29 í síðustu úttekt árið 2016 (4. mynd). Mosar fóru einnig snemma að nema land í skerjunum og fundust mosar í öllum reitunum nema einum við 29 ára aldur. Mosar námu land í síðasta reitnum eftir 31 ár. Mosaþekjan viðhélst eftir fyrsta landnám í 8 af 17 reitum (48% reita) en var ekki til staðar öll árin í öðrum átta reitum og í einum hvarf mosi aftur þegar reiturinn hafði náð 50 ára aldri (4. mynd). Fléttur, þ.e. blað- og runnfléttur, fundust seinast í reitunum. Tilraunir þeirra til landnáms á fyrstu áratugunum tókust ekki og það var ekki fyrr en reitir náðu 40–50 ára aldri sem fléttur tóku að finnast í einhverjum reitum í hverri úttekt. Landnámsfasa fléttna er ekki lokið og í tveimur reitum (12%) höfðu ekki enn ekki fundist fléttur eftir 80 ár (4. mynd). Fléttur voru ekki alltaf greindar til tegundar fyrir 2005 en breyskjur (Stereocaulon spp.) fundust fyrst í reit í Bræðraskeri eftir 10 ár og flannaskóf (Peltigera aphthosa) fannst fyrst í reit í Káraskeri eftir 30 ár, en hvarf síðan aftur. Tvær tegundir af öðrum ættkvíslum fléttna hafa verið skráðar í Káraskeri, barmbrydda (Psoroma hypnorum) sem fannst í tveimur reitum eftir 69 ár, en hvarf aftur, og torfubikar (Cladonia pocillum) sem fannst fyrst í reit eftir 74 ár og er þar enn. Eftir 45–56 ár í reitum í Bræðraskeri hefur flagbreyskja (Stereocaulon glareosum) verið ríkjandi með ívafi af melbreyskju (Stereocaulon rivulorum) en aðrar fléttur ekki fundist. Fléttufungan í Káraskeri er fjölbreytt- ari. Þar hefur þriðja breyskjutegundin, grábreyskja (Stereocaulon alpinum), fundist í reitum eftir 74 og 80 ár en hinar tvær verið álíka algengar. Þar hafa engja- skófir einnig náð fótfestu. Hefur fjalla- skóf (Peltigera rufescens) verið þeirra algengust og haft álíka stöðuga viðveru og flag- og melbreyskja. Einnig fannst þar hosuskóf (Peltigera lepidophora) í reit eftir 69 ár en hvarf svo aftur. Fjölbreytni og þekja gróðurs Frumframvinda í Bræðraskeri hefur fylgt mjög svipuðu mynstri í öllum tíu föstu reitunum. Það er helst í þróun mosaþekju sem reitir hafa verið mis- munandi og var því reitunum skipt í tvo hópa eftir þróun hennar (5. mynd a). Æðplöntur námu smátt og smátt land E in ku nn G ra d e H lu tf al l þ ek ju C o ve r ra tio s Þ ek ju b il C o ve r cl as se s M ið g ild i þ ek ju M ed ia n co ve r w ith in c la ss + Rétt finnst Sporadic <0,5% 0,3% 1 <1/16 0,5% – 6,2% 3,4% 2 <1/8 6,3% – 12,5% 9,4% 3 <1/4 12,6% – 25% 18,8% 4 <1/2 25,1% – 50% 37,6% 5 <1/1 50,1% – 100% 75,1% 1. tafla. Hult-Sernander-mælikvarði til að mæla gróðurþekju. – Hult-Sernander vegeta- tion cover scale.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.