Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2020, Qupperneq 17

Náttúrufræðingurinn - 2020, Qupperneq 17
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 237 Ritrýnd grein / Peer reviewed gróðurþekjunnar. Sterk fylgni milli magns næringarefna í jarðvegi og gróð- urþekju reitanna (13. mynd) bendir þó til að það sé ekki síður skortur á köfn- unarefni (N) sem takmarkar gróður- þekju. Magn köfnunarefnis sem berst inn í vistkerfið og geta vistkerfisins til að halda í það og endurnýta virðist vera sá þáttur sem helst takmarkar upp- byggingu samfelldrar gróðurþekju við þessar aðstæður. Mjög líkir þættir virð- ast því takmarka hraða frumframvindu í jökulskerjunum og á svæðum á Surtsey þar sem sjófuglar hafa ekki borið nær- ingarefni inn í vistkerfið.5,6,9,13 Þessi tvö ólíku vistkerfi, eldfjallaeyjan og „jökul- eyjarnar“, virðast því eiga fleira sam- eiginlegt en margan hefði grunað, þrátt fyrir að plöntutegundirnar sem ein- kenna frumframvindu þessara tveggja svæða séu gjörólíkar. LOKAORÐ Mólendi vaxið smjörlaufi (grasvíði) og fjallavíði virðist vera það gróðurlendi sem reitirnir í Kára- og Bræðraskeri stefna að, þótt aðstæður eða nýir rask- þættir geti að sjálfsögðu breytt fram- vindunni. Það er gróðursamfélag sem einkennir til dæmis skjólgóð svæði í Skálabjörgum í Esjufjöllum sem standa aðeins ofar í jöklinum en Kára- og Bræðrasker og hafa staðið upp úr jökli frá lokum síðustu ísaldar.19 Fróðlegt verður að fylgjast áfram með frumfram- vindu og jarðvegsmyndun á Káraskeri og Bræðraskeri. Þrátt fyrir 50–80 ára sögu er gróðurinn í skerjunum enn almennt mjög gisinn, frumframvindan skammt á veg komin og jarðvegur ófrjór. Ýmislegt í okkar niðurstöðum bendir þó til að eftir 2005–2010 sé að hefjast nýtt framvindustig þar sem nýjar tegundir æðplantna eru að hefja land- nám og gróðurþekjan farin að þéttast að nýju. Mosar og fléttur eru þar að auki farin að leika mikilvægara hlutverk en áður í gróðurfarinu. Höfundar spá því umtalsverðum gróðurbreytingum næstu ár og áratugi. Erfitt er þó að spá um það hvort gróðurlendin í skerj- unum verða sambærileg þeim sem er að finna í Skálabjörgum í Esjufjöllum, og þá hvenær. SUMMARY Eighty years of primary succession on nunataks on Breidamerkur- jökull in SE-Iceland The nunataks Kárasker and Bræðra- sker became apparent in Breiðamerkur- jökull glacier in 1936 and 1960, respec- tively. In 1965 a monitoring project was initiated, and the vegetation measure- ments have been repeated 17 times. In 2010 soil samples were collected in all monitoring plots. The primary succes- sion has been dominated by vascular plants rather than mosses or lichens. Initially, number of vascular plants on Bræðrasker increased with age, but later it stabilized in both nunataks until a new colonising phase started as they became >40–50 years old. In 2016, spe- cies richness within the plots was 36 vascular plants and 8 lichens. Biodiver- sity indices followed species richness in Bræðrasker, but in Kárasker they started to decrease in later years as the primary succession was proceeded fur- ther. Unlike the species richness, vas- cular plant cover decreased in Bræðra sker after ca. 15 years of age while in the older Kárasker it was rather stable until in recent years. We propose that this was due to deteriorating growing conditions on the nunatak when the glacier receded and the pioneers had to modify the environment before condi- tions became favourable for other plant species. Soil measurements, measure- ments of plant cover and diversity, as well as ordination analysis showed that the primary succession was com- parable on both nunataks. The succes- sion reached a relatively stable stage within 80 years where Salix arctica had become dominant. 14. mynd. Leiðangur á heimleið úr Esjufjöllum 1. ágúst 2012. Framundan er Kárasker og Bræðrasker í baksýn, til hægri gnæfa Mávabyggðir og frá vinstri Þuríðartindur og Mikill. – Expedition on its way home after field work in Esjufjöll mts on August 1st 2012. Ahead the nunataks, Kárasker in front and Bræðrasker in the back, are apparent. More nunataks are visible, to right Mávabyggðir and to left Fjölsvinnsfjöll followed by Mikill. Ljósm./Photo: Starri Heiðmarsson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.