Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2020, Qupperneq 24

Náttúrufræðingurinn - 2020, Qupperneq 24
Náttúrufræðingurinn 244 Dalfjalli. Samkvæmt lýsingu Brynjúlfs frá Minnanúpi líktist skriðuhaugurinn að vísu meira ummerkjum eftir eina stórskriðu en margar smáar. Á móti kemur að erfitt er að greina brotsár í hlíðinni eftir slíka skriðu. MYKITAKSGRJÓT EÐA MYKITAKSHLAUP Í Herjólfsdal er falleg berghlaupsurð sem fallið hefur úr austurhlíð dals- ins, nánar tiltekið úr Hánni (3. mynd). Tjaldsvæðið í dalnum er á urðinni. Guðjón Ármann Eyjólfsson nefnir hana Mykitaksgrjót (í fleirtölu) eða Myki- takshlaup í Árbók FÍ 200915 en Sig- urður Sigurfinnsson hreppstjóri í Vest- mannaeyjum, sem skrifað hefur um gömul örnefni í eyjunum, nefnir hana Mykjuteigshlaup eða Mykjuteigsgrjót (í eintölu) í grein frá 1913.19 Sigurður telur berghlaupið hafa átt sér stað á sögulegum tíma og dregur þá ályktun af nafninu Mykjuteigshlaup, sem ætti sem sagt að vera skriðan sem hljóp yfir „mykjuteiginn“, það er að segja yfir tún dalbúans. Að vísu er orðið mykjuteigur óþekkt eða afar fágætt eitt og sér. Þessi örnefni hafa yfir sér fornan blæ. Þau koma þó hvergi fram í fornum ritum. Elsta heimild um örnefnið er í Vestmannaeyjalýsingu séra Jóns Austmanns frá 1846 þar sem hann svarar spurningum Bókmenntafélags- ins um landshætti og mannlíf.20 Þar kemur örnefnið fyrir í kafla um fiski- mið þar sem „Mið-Sviðið“ er þetta: „Mykjuteigsgrjót við Álsey að vestan og Höfðatáin föst við Suðurey að norðan.“ Málfræðingar og örnefna- fræðingar verða að skýra það hvernig orðin Mykjuteigur og Mykitak tengj- ast. Þess má þó geta að uppi í fjallinu er tó sem heitir eftir mykjunni (eða mykinu) en hefur einnig nafnið Mið- dagstó og er eyktarmark frá bænum Ofanleiti.15 Hér í greininni er höfð myndin Mykitak vegna þess að hún er helst notuð í Vestmannaeyjalýsingum Árbókar FÍ 2009. Berghlaup þetta hefur lítið verið rannsakað. Þess er til dæmis ekki getið í ritum Ólafs Jónssonar um skriður og berghlaup. Hann minnist raunar ekki á Herjólfshaug heldur. Bæði þessi hlaup hefðu sómt sér vel í ritum hans. Myki- taksurðin er tiltölulega flöt en hallar þó lítillega upp að fjallshlíðinni. Þar taka brattari skriður við undir þverhníptu brotsárinu. Urðin er öll vel gróin og hulin jarðvegi en stórgrýtisbjörg úr móbergi standa upp úr grassverðinum víðs vegar og fellur það vel að grjóts- heitinu. Urðin er um 5,5 hektarar að stærð og er jaðarinn vel afmarkaður, víðast 1,5–3,0 metrar á hæð. Vegur- inn umhverfis tjaldsvæðið rammar inn fremsta hluta hlauptungunnar, og er ljóst að hann hefur verið lagður umhverfis urðina (3. mynd). Hraunið frá Helgafelli, sem þarna nefnist Ofan- leitishraun, liggur svo upp að henni og hverfur undir hana. Hlaupið er unglegt að sjá, brotsárið er þverhnípt og ekki mikið veðrað. Skálarskriður eru litlar og bendir það til að hrun úr bergveggnum hafi ekki verið mikið síðan hlaupið varð. Það er einnig merki um ungan aldur. Bergveggurinn virðist traust- legur og höggunarsprungur lítt áber- andi. Hér og hvar sjást losaralegir steinar en hvergi hefur sprungið fyrir stærri fyllum. 3. mynd. Mykitakshlaup, berghlaupið í Herjólfsdal. Jaðar berghlaupsins er handan vegarins. Þjóðveldisbærinn (tilgátuhúsið) er í urðinni og þar eru einnig tjaldstæðishúsið og 10 smáhýsi. Hrunskriður eru undir hömrunum en brotsár hlaupsins myndar þverhníptan hamravegg Háarinnar. Fiskhellanef er efst til hægri. – The Mykitakshlaup rock fall in Herjólfsdalur. The border of the rock fall debris can be seen behind the road. The houses are all situated on the debris. Ritrýnd grein / Peer reviewed
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.