Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2020, Page 38

Náttúrufræðingurinn - 2020, Page 38
Náttúrufræðingurinn 258 SAMANTEKT Út frá þeim upplýsingum sem bylgjuvíxlgreiningin sýnir og því sem þekkt er úr fyrri rannsóknum2 má gera ráð fyrir að ummerki eftir skjálftann sé víðar að finna en hér hefur verið gerð grein fyrir. Nákvæmari kortlagning ummerkja gæti leitt það í ljós. Samanborið við afleiðingar jarðskjálfta á Norður- og Suðurlandi er dreifing skriðufalla í kjölfar jarðskjálfta á Reykjanesskaga lítið þekkt. Það vakti athygli í vettvangs- skoðun að ekki hafði hrunið á mörgum þekktum skriðu- svæðum, eins og búast mátti við. Engar fréttir hafa borist af grjóthruni í hellum á svæðinu samkvæmt upplýsingum frá Hellarannsóknafélaginu. Hins vegar hrundi úr hillum stór- markaða á höfuðborgarsvæðinu en skemmdir á mannvirkjum af völdum skjálftans eru taldar óverulegar. 11. mynd. Sprungur í Krýsuvíkurbergi, bæði eldri (fyrir miðju) og nýjar. Ljósm.: Dagur Jónsson. Esther Hlíðar Jensen (f. 1969) lauk BS-prófi í jarðfræði við Háskóla Íslands árið 1993 og MS-prófi í landmót- unarfræði við Victoria University of Wellington, Nýja Sjálandi, árið 1998. Esther starfaði hjá Veðurstofu Ís- lands á árunum 2000–2008 við skriðurannsóknir. Hún starfaði hjá Vatnamælingum Orkustofnunar frá árinu 2008 við landupplýsingar og aurburðarrannsóknir þar til þær sameinuðust Veðurstofu Íslands árið 2009. Hún starfar nú á Veðurstofu Íslands, m.a. við flóðahættumat og aurburðarrannsóknir ásamt því að sinna skriðuvökt- un. Hún hefur einnig unnið ýmis önnur verkefni tengd landmótun, m.a. að rannsókn á sandfoki, útreikning- um á hraunflæði í eldgosum, kortlagningu ummerkja eftir jarðskjálfta, ásamt ýmsum verkefnum tengdum landupplýsingum. UM HÖFUNDINN PÓST- OG NETFANG HÖFUNDAR / AUTHOR'S ADDRESS Esther Hlíðar Jensen Veðurstofu Íslands Bústaðavegi 7–9 105 Reykjavík esther@vedur.is 1. mbl.is 2020, 23. nóvember. Þrír fengið bætur vegna skjálftans. Frétt. Slóð (sótt 28.11. 2020): https://www.mbl.is/frettir/innlent/2020/11/23/thrir_fengid_bae tur_vegna_skjalftans/ 2. Clifton, A.E., Paglia, C., Jóna Finndís Jónsdóttir, Kristjana Eyþórsdóttir, Kristín Vogfjörð 2003. Surface effects of triggered fault slip on Reykjanes Peninsula, SW Iceland. Tectonophysics 369. 145–154. 3. vedur.is 2020, 30. október. Áhrif jarðskjálftans á Núpshlíðarhálsi á yfir- borð umtalsverð. Frétt á vefsetri Veðurstofu Ísland. Slóð (sótt 28.11.2020): https://www.vedur.is/um-vi/frettir/ahrif-jardskjalftans-a-nupshlidarhalsi-a- yfirbord-umtalsverd HEIMILDIR

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.