Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2020, Blaðsíða 54

Náttúrufræðingurinn - 2020, Blaðsíða 54
Náttúrufræðingurinn 274 Ritrýnd grein / Peer reviewed skreið borist heim í skreiðarskemm- una á Skriðu. Stærsti fiskurinn getur hafa komið sunnan úr Borgarhöfn. Beinin eru að minnsta kosti úr sunn- lenskum vertíðarþorski en einnig af tegundum sem eingöngu veiðast sunnan Horns. Athygli vekur þó að hausabeinin af fiskinum vantaði en það bendir til að hann hafi verið fluttur þangað verkaður. Á öðrum stað18 bendir Steinunn á að fiskbein sem grafin voru upp á Skriðuklaustri „eru yfirleitt af meira en eins metra löngum fiski, einkum stórýsu, stórri löngu og rígaþorski. Það sýnir svo ekki verður um villst að fiskur þessi hefur verið veiddur við suður- ströndina og síðan borist alla leið að Skriðu í Fljótsdal. ... Við nánari skoðun er nefnilega ljóst að Skriðuklaustur var í alfaraleið á þeim tíma er umsvif voru þar sem mest, þótt staðsetning þess kunni að virka einkennileg í dag.“ Forvitnilegt er að geta sér til um leiðina frá Skriðuklaustri inn á Vatna- jökul, þaðan sem haldið var suðvestur að Hálsatindi og síðan niður eftir Staðardal að Hálsahöfn. Nærtækasti kosturinn sýnist vera að leiðin hafi legið inn eftir Norðurdal (Kleifardal) í Fljóts- dal vestan Jökulsár að Ófæruseli, þaðan inn og upp brekkurnar í Kleifarskógi og að Laugarfelli (15. mynd). Þetta fær stuðning af örnefnum eins og Götuhjalli og Hvíldarhnjúkar, innri og ytri, sem eru neðan við brún Lönguhlíðar. Síðan heitir Vegaslakki þar sem gatan heldur áfram inn til Laugarfells og afréttar.19 Frá Laugarfelli var hægt að halda áfram vestur með Laugará og yfir á Vesturör- æfi eða austan undir Snæfelli og sveigja um Mosdal milli Þjófahnjúka vestur í Maríutungur (16. mynd). Skógur þess tíma gat hins vegar verið til trafala utan til á þessari leið, ekki síst fyrir hesta undir burði, og kallaði á grisjun fram með reiðgötum. Annar hugsanlegur kostur er að farið hafi verið með hestalestir frá Skriðuklaustri inn eftir Norðurdal og sveigt upp á Fljótsdalsheiði milli Egils- staða og Kleifar. Þar lá heybandsvegur utan við Hestahjalla og fjárgötur eru upp hjá Vegamel til heiðar. Sjá má hér götutroðninga á stöku stað og á þessum slóðum lá Aðalbólsvegur vestur til Hrafnkelsdals.20 Eftir að náð var heiðar- brún inn af Svartöldu hefði mátt halda suðvestur um Bræðraöldu og drög Þór- isstaðakvíslar austan við Þrælaháls og sveigja sunnan hans yfir á Vesturöræfi ekki fjarri núverandi Kárahnjúkavegi. Áfram hefði mátt halda um Herjólfs- drag inn yfir Sauðá, síðan vestan undir Sauðahnjúkum inn í Maríutungur, yfir Jökulkvísl og suður um þáverandi dalverpi inn á jökul austan við upp- tök Jöklu þess tíma. Til að kanna þetta nánar þyrfti að huga betur að vörðum og troðningum á þessum slóðum. 13. mynd. Frá Hestgerðiskambi norðvestur yfir Kambstún til Borgarhafnar. Vagnstaðir til vinstri. Kálfafellsfjöll handan Staðardals. – A view from Hestgerðiskambur over Kambstún towards Borgarhöfn. Vagnstaðir farm to the left. Staðardalur and Kálfafell mountain ridge behind. Ljósm./Photo: Hjörleifur Guttormsson 2016. 14. mynd. Uppgröftur á klausturrústum á Skriðuklaustri varpaði ljósi á tengsl klaustursins við Borgarhöfn. Frá Hálsahöfn barst skreiðin norður yfir Vatnajökul. – Research on the ruins of the monastery at Skriðuklaustur revealed the connections be- tween Borgarhöfn and the cloister. Ljósm./ Photo: Hjörleifur Guttormsson 2007.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.