Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2020, Page 70

Náttúrufræðingurinn - 2020, Page 70
Náttúrufræðingurinn 290 Ritrýnd grein / Peer reviewed 10. mynd. Aðgerðir sem landsmenn telja mikilvægar til að varðveita víðerni. – Actions that Icelanders consider important in order to preserve Icelandic wilderness. (60%) og að takmarka uppbyggingu raflína og fjarskiptamastra (58%). Aðrir þættir vega minna (10. mynd). Þátttakendur voru að síðustu spurðir um atriði sem þeir teldu mikilvæg þegar þeir ferðast um íslensk víðerni (11. mynd). Spurningin sem stuðst var við hefur verið notuð í mörgum rannsóknum hér á landi til að greina tegundir ferðamanna eftir fyrrnefndum viðhorfskvarða.28,29 Niðurstöður sýna að þátttakendum finnst mikilvægast að ekki sjáist ummerki eftir utanvega- akstur, að hægt sé að njóta kyrrðar og að geta upplifað óraskaða náttúru. Þeim finnst enn fremur mikilvægt að geta gengið í náttúrunni án þess að mann- virki sjáist eða ummerki um ferða- mennsku. Upplýsingar um áhugaverða staði, merktar gönguleiðir, göngubrýr og skipulögð tjaldsvæði eru atriði sem ekki vega jafn þungt í hugum lands- manna. Þátttakendur leggja mikla áherslu á óspillta ásýnd náttúrunnar á víðernum og að geta upplifað kyrrð og ró, en telja skipta minna máli að hafa þar uppbyggða áningarstaði eða lagða göngustíga. Viðhorf þátttakenda til víðerna kristallast fyrst og fremst í því að mannvirki draga úr víðernisupp- lifun þeirra. Undantekning frá þessu eru ummerki um búsetu manna fyrr á öldum, svo sem eyðibýli, tóttir, vörður og aðrar fornminjar. Greining niðurstaðna eftir viðhorfs- kvarðanum sýnir að ríflega helmingur þátttakenda (52%) flokkast sem þjón- ustusinnar, tæp 40% eru hlutlaus, tæp 8% náttúrusinnar og minna en 1% eindregnir náttúrusinnar (12. mynd). Rannsóknir á samsetningu erlendra ferðamanna á hinum ýmsu náttúru- skoðunarstöðum hér á landi25,28,29 sýna hins vegar að hlutlausir ferðamenn eru fjölmennastir eða rúmlega helmingur, þjónustusinnar um fjórðungur og nátt- úrusinnar um fimmtungur. UMRÆÐUR OG ÁLYKTANIR Óbyggð landsvæði með víðáttu- mikið útsýni og lítil mannleg ummerki falla helst að hugmyndum Íslendinga um víðerni. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar höfðar landslag sem einkennist af mikilli víðáttu, með fáum áberandi formum og er fremur auðvelt og öruggt að ferðast um fremur til víð- ernisupplifunar landsmanna en hrika- legt landslag sem einkennist af óstöð- ugleika og ólíkum en áberandi formum, og er erfitt og óöruggt yfirferðar. Þessir síðarnefndu staðhættir eru hins vegar þeir þættir sem höfða mest til víðernis- upplifunar almennings í Skotlandi.27 Þá er eftirtektarvert að náttúrlegt gróður- lendi höfðar sterkar til víðernisupplif- unar Íslendinga en ógróin, óstöðug og óörugg landsvæði. Möguleg skýring á þessu getur verið sú staðreynd að gróð- urvinjar í óbyggðum hafa löngum verið álitnar verðmæti í hugum Íslendinga og verið segull ferðalanga á hálendinu. 0 10 20 30 40 50 60 70 80 90 100 Að ekki sjáist ummerki um utanvegaakstur / No visible signs of off road driving Að hægt sé að njóta kyrrðar / That one can enjoy tranquility Að hægt sé að upplifa óraskaða náttúru / That one can experience pristine nature Að geta gengið án þess að sjá mannvirki (önnur en fjallaskála) / To be able to hike around without seeing human structures (other than mountain huts) Að ekki sjáist ummerki eftir aðra ferðamenn / No visible traces of other tourists Að það séu fáir aðrir ferðamenn / That there are few other tourists Að skoðunarverðir staðir séu merktir / That places of interest are marked Að verða ekki fyrir ónæði af flugumferð / Not to be disturbed by air traffic Merktar gönguleiðir / Marked hiking routs Skipulögð tjaldsvæði / Organized campsites Göngubrýr / Walking bridges Að geta tjaldað þar sem þú verður ekki var við aðra / To be able to camp in solitude Lagðir göngustígar / Maintained hiking trails Að mega tjalda hvar sem er innan svæðisins / To be able to camp anywhere Áningarstaðir (bekkir og borð) / Picnic places (benches and tables) Mjög mikilvægt / Very important Frekar mikilvægt / Rather important Hvorki né / Neither nor Ekki mikilvægt / Not important Alls ekki mikilvægt / Not at all important

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.