Mosfellingur - 01.04.2021, Qupperneq 2

Mosfellingur - 01.04.2021, Qupperneq 2
Í þá gömlu góðu... Umsjón: Birgir D. Sveinsson (birgird@simnet.is) MOSFELLINGUR www.mosfellingur.is - mosfellingur@mosfellingur.is Næsti Mosfellingur kemur út 22. apríl Útgefandi: Mosfellingur ehf., Spóahöfða 26, sími: 694-6426 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hilmar Gunnarsson, hilmar@mosfellingur.is Ritstjórn: Anna Ólöf Sveinbjörnsdóttir, annaolof@mosfellingur.is Ragnar Þór Ólason, raggiola@mosfellingur.is Ruth Örnólfsdóttir, ruth@mosfellingur.is Prentun: Landsprent. Upplag: 5.000 eintök. Dreifing: Afturelding. Umbrot og hönnun: Mosfellingur ehf. Próförk: Hjördís Kvaran Einarsdóttir ISSN 2547-8265 Tekið er við aðsendum greinum á mosfellingur@mosfellingur.is og skulu þær ekki vera lengri en 500 orð. Efni og auglýsingar skulu berast fyrir kl. 12, mánudegi fyrir útgáfudag. Mosfellingur kemur út að jafnaði á þriggja vikna fresti. Páskablað Mosfellings er komið út og þú ert blessunarlega að lesa það. Forsíðuna prýða Önnur tvær sem gengið hafa í gegnum sömu lífsreynsluna, að missa maka langt fyrir aldur fram. Nú veita þær góð ráð til þeirra sem þurfa á hjálp að halda og ekki síst þeirra sem vilja vera til staðar fyrir þá sem eiga um sárt að binda. Hver tengir ekki við það að vita ekkert hvernig skal haga sér þegar mest á reynir? En nú er hægt að leita í reynslubankann hjá þeim sem virkilega vita hvað kemur sér best. Við að sjálfsögðu sendum þriðju Önnuna á staðinn til að taka viðtalið. Takk fyrir að deila reynslunni með okkur Anna Lilja, Anna Sigga og Anna Ólöf. Við óskum ykkur Mosfellingum gleðilegra páska og farið varlega í fjórðu bylgjunni. Fólk er beðið um að ferðast ekki á milli landshluta né fara í sumarbústaði. Skíðasvæðin eru lokuð enda er 10 manna samkomu- bann í gildi. Guð sé lof að gosið er opið. Fjórðu bylgju páskar Hilmar Gunnarsson, ritstjóri Mosfellings www.isfugl.is - Fréttir úr bæjarlífinu62 Mosfellspósturinn 1988 Hringtorg og undirgöng við Brúarland og Álafossvegamót Á myndinni sér yfir framkvæmd- irnar við Brúarland. Næst eru undirgöngin, sem tryggja eiga örugga umferð fótgangandi á milli Teigahverfis og skólasvæð- isins að Varmá en fjær sést í hringtorgið við Álafossveg. Mynd og texti: Mosfellspósturinn í september 1988. Héðan og þaðan

x

Mosfellingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.