Mosfellingur - 22.04.2021, Síða 2
Í þá gömlu góðu...
Umsjón: Birgir D. Sveinsson (birgird@simnet.is)
MOSFELLINGUR
www.mosfellingur.is - mosfellingur@mosfellingur.is
Næsti Mosfellingur kemur út 13. maí
Útgefandi: Mosfellingur ehf., Spóahöfða 26, sími: 694-6426
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Hilmar Gunnarsson, hilmar@mosfellingur.is
Ritstjórn:
Anna Ólöf Sveinbjörnsdóttir, annaolof@mosfellingur.is
Ragnar Þór Ólason, raggiola@mosfellingur.is
Ruth Örnólfsdóttir, ruth@mosfellingur.is
Prentun: Landsprent. Upplag: 5.000 eintök. Dreifing: Afturelding.
Umbrot og hönnun: Mosfellingur ehf.
Próförk: Ingibjörg Valsdóttir ISSN 2547-8265
Tekið er við aðsendum greinum á mosfellingur@mosfellingur.is
og skulu þær ekki vera lengri en 500 orð. Efni og auglýsingar
skulu berast fyrir kl. 12, mánudegi fyrir útgáfudag.
Mosfellingur kemur út að jafnaði á þriggja vikna fresti.
Gleðilegt sumar kæru bæjarbúar. Það hefur ekki beint verið
sumarlegt um að litast síðustu daga
en eigum við ekki að trúa því að úr
rætist með hækkandi sól.
Mikið er rætt um hegðun ung-
mennanna okkar hér
í Mosó og var haldinn
góður íbúafundur á
dögunum þar sem
hugur virtist vera
í Mosfellingum
að gera
betur sem
samfélag.
Það þarf víst heilt þorp til að ala upp barn og ég held að íbú-
fundurinn og sú umræða sem hefur
skapast að undanförnu hafi vakið
marga upp af værum blundi.
Stundum verður mönnum á, styrka hönd þeir þurfa þá...
Höldum utan um krakkana okkar og
beinum þeim á rétta braut. Lang-
flestir unglingar í dag eru til mikillar
fyrirmyndar og þeim skulum við
heldur ekki gleyma að hrósa. Eflum
forvarnir, fræðum og upplýsum. Það
er árangursríkt.
Áfram Mosó og áfram unga fólkið.
Framtíðin er í okkar höndum.
Það er komið sumar
Hilmar Gunnarsson, ritstjóri Mosfellings
www.isfugl.is
- Fréttir úr bæjarlífinu62
Sinfóníuhljómsveit Íslands hélt tón-
leika undir stjórn Páls P. Pálssonar í
íþróttahúsinu þann 30. janúar sl. og var
aðsóknin allgóð.
Tónleikarnir hófust á Júpitersin-
fóníunni eftir Mozart, síðan lék Selma
Guðmundsdóttir einleik á píanó, píanó-
konsert eftir Khatsjatúrían en Selma lék
þar alveg einstaklega vel og var gaman
að heyra túlkun hennar á þessu verki.
Þetta er í fyrsti skipti sem hún leikur
með Sinfóníuhljómsveitinni en áreiðan-
lega ekki í síðasta sinn því leikur hennar
var alveg stórkostlegur. Tónleikunum
lauk með söng Karlakórsins Stefnis
sem Lárus Sveinsson trompetleikari
stjórnaði. Þeir fluttu Þér landnemar eftir
Sigurð Þórðarson og Finlandia eftir J.
Sibelius.
Það má segja að allir viðstaddir hafi
verið afskaplega stoltir af söng kórsins,
og getum við öll tekið undir orð Leifs
Þórarinssonar í gagnrýni sinni í DV þann
1. febrúar en þar segir hann: „Mega
Mosfellingar sannarlega vera stoltir af
kór sínum; hann er ljómandi góður.“
Það er von allra sem þarna voru
að það verði ekki langt þangað til við
fáum aftur svona góða gesti til okkar.
Þetta lyftir öllum upp í skammdeginu
að hlusta á góða tónlist vel flutta. Hafi
sinfónían og kórinn þökk fyrir.
Héðan og þaðan
Mosfellspósturinn 1988
Stórgóðir
sinfóníutónleikar
KarlaKórinn stefnir ásamt sinfóníuhljómsveit
íslands sem léK undir stjórn páls p. pálssonar
Rafíþróttadeild í Mosfellsbæ!
Rafrænn stofnfundur verður haldinn 29. apríl kl. 20:00 á Zoom.
Hvetjum alla áhugasama að stökkva með, iðkendur, foreldra og fleiri áhugasama sem vilja
taka þátt. Komnar eru tillögur um aðila í stjórn svo flestir geta óhræddir fylgst með.
Á fundinum verður rætt um aðstöðu, tölvukaup, þjálfun, leiki, keppnislið o.fl.
Upplýsingar um fundinn og skráningar eru á FB undir „Rafíþróttadeild Mosó“
Þeir sem eru áhugasamir að vera með og hjálpa ti l geta haft samband.