Mosfellingur - 22.04.2021, Síða 24
- Aðsendar greinar24
Skemmdarverk og eyðilegging er
alltaf leiðinleg og það fara mjög
miklir peningar á hverju ári í
viðgerðir eftir þessi ömurlegu
skemmdarverk.
Nýjasta afleiðingin af skemmd-
averkum í Mosó, okkar frábærar
bæjarfélagi, er nú sú að búið er
að loka Kósí Kjarna sem var mjög
flottur og naut mikilla vinsælda.
Húsgögn og annað sem var búið að setja
þarna upp hefur ítrekað verið eyðilagt og
því þurfti að fjarlægja þetta flotta umhverfi,
sem var ein af frábærum hugmyndum úr
Okkar Mosó.
Því miður hefur margt annað verið
skemmt í Mosó. Síðasta sumar var t.d
skorið á nýja ærslabelginn okkar í Æv-
intýragarðinum sem var mjög dýrt að að
gera við, glerstrætóskýlið í Háholti hefur
verið brotið og bramlað ítrekað og mörg
fleiri dæmi má nefna þar sem framin hafa
verið skemmdarverk sem kosta Mosfellsbæ
margar milljónir á ári.
Það er alveg glatað að þetta sé staðan
í okkar flotta bæ og við getum og viljum
fækka þessum skemmdum og þeim kostn-
aði sem þeim fylgir.
Hættið þessu rugli
Þið sem eruð að gera þetta, eruð þið
ekki til í að hugsa aðeins um hvað þetta
er glötuð hegðun og hvaða leiðindi þetta
hefur í för með sér? Nýtið endilega tímann
ykkar í eitthvað annað uppbyggilegra og
skemmtilegra.
Þessar skemmdir sem þið valdið kosta
margar milljónir á ári, milljónir sem við
viljum og ættum að nota í að gera bæinn
okkar skemmtilegri og flottari. Til dæmis að
framkvæma fleiri geggjaðar tillögur úr Okk-
ar Mosó, auk þess sem við gætum
notað peningana í alls konar nýjar
og skemmtilegar framkvæmdir fyr-
ir alla aldurshópa í bænum okkar.
Hvað getum við gert?
Við Mosfellingar erum þekktir
fyrir að geta gert nánast hvað sem
er og nú tökum við höndum saman
og förum í herferð til að útrýma þessu rugli
í bænum okkar.
Nú virkjum við alla sem okkur dettur í
hug í fræðslu og umræðu um þessi mál,
foreldra- og skólasamfélag, íþróttafélögin,
krakkana í félagsmiðstöðvum, vinahópinn
okkar, fjölskyldurnar o.fl. Við ákveðum hér
og nú að þetta sé ekki í boði og við stöndum
saman öll sem eitt um að uppræta svona
framkomu.
Hverjir eru að skemma og eyðileggja?
Ef þú veist hverjir það eru sem eru að
skemma fyrir okkur íbúum Mosó, taktu þá
umræðuna við þá og segðu þeim að þetta er
alls ekki „kúl“. Ef þeir skilja það ekki, láttu
þá vita og þá verður talað við þessa aðila og
reynt að fá þá til að skilja að við viljum nota
peninga okkar Mosfellinga í eitthvað annað
og skemmtilegra en að gera við skemmdir
eftir þá.
Þetta eru væntanlega mjög fáir einstakl-
ingar sem standa á bakvið flestar þessar
skemmdir og ef við öll leggjumst á eitt að
hjálpa til við að stoppa þetta rugl er ég viss
um um þessir aðilar hætti þessu.
Með sameiginlegu átaki náum við að
stoppa þessa hegðun sem skilar engu nema
leiðindum og miklum kostnaði fyrir okkur
og bæinn okkar.
Ásgeir Sveinsson
Hey þú, hættu að skemma
og eyðileggja!
Nú þegar vonandi fer að líða að því
að við Íslendingar getum farið að
lifa eðlilegra lífi, hugsa ég til margs
sem kófið hefur haft í för með sér.
Að mörgu leyti höfum við Ís-
lendingar haft það gott og betra
en aðrar þjóðir. Margt mætti þó
gagnrýna eins og hæga viðspyrnu
við efnahagsvanda þjóðarinnar,
lélegt aðstreymi bóluefnis og lítil sem engin
viðbrögð við versandi líðan og heilsu fólks.
Hér hafa skólar verið opnir, enda þekkjast
síður dæmi um mikil alvarleg veikindi
barna vegna veirunnar. Sömu sögu er ekki
að segja t.d. frá Bandaríkjunum þar sem
barnafjölskyldur hafa tekið sig upp og flutt
á milli fylkja í þeim eina tilgangi að börnin
þeirra kæmust í skóla og fengju menntun
eftir árs lokun.
Þrátt fyrir minni takmarkanir hér á landi
en víða í mörgum öðrum löndum, þá er
hér vaxandi atvinnuleysi og fólk býr við
einsemd og vanlíðan sem sumt má skrifa á
afleiðingar kóvids. Bæði eldra fólk og yngra
hefur einangrað sig og forðast samneyti við
aðra. Það leiðir hugann að því hvort þetta
fólk leiti síður til læknis en þeir sem svo er
ekki ástatt um?
Hvernig er aðgengi að læknum og þjón-
ustu hjá heilsugæslunni í heimabyggð?
Heilsugæslan í Mosfellsbæ heyrir undir
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og er
nú komin í nýtt húsnæði. Því miður hafa
þær sögur gengið að löng bið hafi verið eftir
tíma hjá lækni. Það leiddi án efa til þess að
einhverjir skráðu sig á aðrar heilsugæslu-
stöðvar sem ekki eru í heimabyggð. Má
þar nefna Höfða í Reykjavík eða
í Urðarhvarfi í Kópavogi. Kenni
fólk sér meins er bið óboðleg og
skaðleg. Vonandi verða breytingar
til batnaðar og ber að fagna nýrri
heilsugæslustöð við Sunnukrika í
Mosfellsbæ.
Mér virðist blasa við að end-
urskipuleggja þurfi heilbrigð-
isþjónustuna að einhverju leyti þar sem
búast má við að þegar kófinu slotar muni
fleiri þurfa þjónustu og einnig sérhæfðari
þjónustu. Heilsugæslan er skilgreind sem
fyrsti viðkomustaður sjúklinga. Þar vill fólk
geta fengið þjónustu síns læknis eða sinna
lækna og myndi án efa auka líkurnar á því
að rétt greining fengist sem fyrst.
Það er einnig umhugsunarvert hvort
inn í kerfið eigi ekki að vera innbyggt
ríkara eftirlit/eftirfylgni með sjúklingum
en nú virðist raunin. Ef einstaklingur fer
t.d. í uppskurð þar sem mein er fjarlægt,
væri þá ekki eðlilegt að honum yrði fylgt
eftir næstu árin ef einhverjar líkur væru
á upptöku meinsins? Auðvitað eigum við
sjálf að fylgjast með heilsu okkar eins vel
og við getum. Leita aðstoðar fyrr en seinna
enda skilar það betri andlegri og líkamlegri
heilsu. Það er eðlileg krafa að aðgengi að
þjónustu heilbrigðisstarfsfólks sé gott, vel
sé hlustað á sjúkrasöguna og að bið eftir
sérfræðilækningum verði ekki til skaða.
Una María Óskarsdóttir
uppeldis-, menntunar- og lýðheilsufræðingur
varaþingmaður Miðflokksins
í Suðvesturkjördæmi
Hvernig er heilsugæslan mín og
hver passar upp á heilsu mína?
Ég starfa sem stuðningsfulltrúi
við Helgafellsskóla. Meðal þeirra
verkefna sem ég sinni er að fara ein
með um 40 nemendur í rútu tvisv-
ar sinnum í viku niður að Varmá í
íþróttatíma.
Ferðin tekur okkur 80-85 mín-
útur frá því við förum frá Helga-
fellsskóla og þar til við komum til
baka. Íþróttatíminn er 40 mínútur og það
fara aðrar 40 mínútur í ferðir. Það hlýtur
að vera eitthvað skakkt í þessu! Auk tímans
sem þessi ferðalög taka þá er þetta mjög
stressandi og kvíðavaldandi fyrir nem-
endur.
Á teikningum Helgafellsskóla er gert ráð
fyrir íþróttahúsi en mér skilst að ekki sé enn
búið að taka endanlega ákvörðun
um hvenær það verði byggt. Við
stuðningsfulltrúar sem störfum
við Helgafellsskóla skorum á
stjórn bæjarins að setja íþrótta-
hús við Helgafellsskóla í algeran
forgang.
Helgafellsskóli er ört stækkandi
skóli í vaxandi íbúahverfi og er gert
ráð fyrir um 450 nemendum í skólanum á
næsta skólaári og því finnst okkur brýnt
að drifið verði í því að setja íþróttahúsið á
fjárhagsáætlun hið fyrsta.
Fyrir hönd stuðningsfulltrúa í Helgafellsskóla
Margrét Gróa Björnsdóttir
Íþróttahús við Helgafellsskóla
Sumarnámskeið Lágafellssóknar
fyrir 6 - 9 ára krakka
- 4. bekkur, fædd 2012 - 20151.
Leikir, ævintýri, söngur & fjör!