Mosfellingur - 22.04.2021, Qupperneq 26
Ákvarðanir og afstaða
Í gærmorgun (þetta er skrifað á mánudagsmorgni) sat ég við
eldhúsborðið og skipulagði vorið
og sumarið út frá þeirri heimsmynd
sem þá blasti við mér. Dagatalið var
stútfullt af fótboltaleikjum, æfingum
og viðburðum sem tengdust þessu
tvennu. Tilhlökkunin var mikil.
Núna rétt rúmum sólarhring síðar
eru blikur á sóttvarnarlofti vegna
þess að örfáir einstaklingar höfðu
ekki dug í sér til þess að fara eftir
okkar einföldu sóttvarnarreglum.
Ég er venjulega geðgóður, bjartsýnn og skilningsríkur en
ég skil ekki hvað þeir sem ferðast
og fylgja ekki sóttvarnarreglum eru
að hugsa. Það eru sóttvarnarreglur
í öllum löndum heims og þeir sem
geta skipulagt ferðalög ættu að geta
skipulagt sóttkví líka. Ef ekki, ættu
þeir ekki að ferðast. Ég ferðaðist
sjálfur í febrúar og fannst sjálfsagt að
fara eftir sóttvarnarreglum, heima og
heiman.
Það skín hugsanlega í gegn að ég er smá súr yfir þessu og ekki í
skapi til að smella fram „allir geta
nú gert mistök“ frasanum. Þetta
eru einfaldlega mistök sem enginn
ætti að vera að gera núna þegar
covidið er búið að hefta okkur svona
lengi. EN, ég ætla samt ekki að vera
fúll lengi eða láta þetta eyðileggja
fyrir mér sumarið. Það er ekki búið
– þegar þetta er skrifað – að breyta
sóttvarnarreglum, en ég er viðbúinn
og klár með Plan B ef það verður
gert. Ég ætla að hafa nóg að gera og
vera mjög aktívur næstu mánuði,
það er ekki nokkur einasti möguleiki
að ég ætli að leggjast í covid-dvala
þegar sól er hæst á lofti.
Tilveran er dugleg þessa dagana að bjóða okkur upp á áskor-
anir og gleðitíðindi til skiptis. Það
sem við getum gert er að stýra
eigin viðbrögðum og
athöfnum. Finna
leiðir, sjá tækifæri
og skipuleggja
okkur þannig
að við getum
bæði notið góðra
stunda og brugðist
hratt við breyttum
aðstæðum.
Heilsumolar gaua
- Aðsent efni26
Guðjón
Svansson
gudjon@kettlebells.is
www.fastmos.is
Sími: 586 8080
Við í félagsmiðstöðinni Bóli vinn-
um með unglingunum okkar alla
virka daga. Það er fjölmennur hóp-
ur sem leggur leið sína til okkar dag
hvern, annaðhvort í skipulagt starf
eða „bara“ til þess að spjalla. Þess
á milli lesum við, á hinum ýmsu
samfélagsmiðlum, athugasemdir
um krakkana okkar.
Við, starfsfólkið, lokum ekki augunum
fyrir þeirri hópamyndun sem hefur átt sér
stað að undanförnu, en við vitum líka að
það er verið að vinna, í samvinnu við for-
eldra, með þessa örfáu einstaklinga sem
rötuðu aðeins út af sporinu.
Það er upplifun starfsmanna Bólsins að
stærsti hluti unglinganna okkar er á hár-
réttri braut og við gerum allt sem við getum
til að aðstoða þessa örfáu við að komast
aftur á rétta sporið. Hafa skal þó í huga, að
Bólstarfsmönnum þykir einstaklega vænt
um þessa örfáu, sem og aðra unglinga
Bólsins, og innan okkar veggja eru þeir
skemmtilegir, tillitsamir og kurteisir.
Við fengum nokkra einstaklinga til að
skrifa niður af hverju þeir koma
til okkar í Bólið. Rauði þráðurinn
í þeirra punktum var að þeim
finnst gott að koma og spjalla við
starfsfólkið.
Á unglingsárunum eru krakk-
arnir að taka út þroska og átta sig
á hvaða persóna þeir eru og/eða
vilja vera. Mikilvægt er að mæta
þeim á jafningjagrundvelli og virða þeirra
skoðanir. Við verðum að forðast að setjast
í dómarasætið, heldur reyna frekar að ná
fram umræðum þar sem allar hliðar eru
skoðaðar.
Í Bólinu eru samræðurnar oft mjög líf-
legar, en hvernig eiga þessir krakkar að geta
speglað sig í fullorðnum einstaklingum, ef
þeir fá ekki tækifæri til að tjá sig og finna að
á þá sé hlustað?
Eins og með okkur öll, þá þurfum við
mismikla aðstoð við að finna okkar hillu í
lífinu, en við getum verið sammála um það
að það er gott að fá stuðning. Öll upplifum
við það að mistakast eða taka, á einhverj-
um tímapunkti, ranga ákvörðun. Það á
jafnt við um börn, unglinga og fullorðna
einstaklinga.
Það sem unglingarnir eiga sameiginlegt
hjá okkur er að vera kurteisir og vel upp
aldir. Þeir bera oftast virðingu fyrir skoð-
unum annarra og vilja þá líka fá þá virðingu
til baka.
Við fullorðna fólkið getum lært mikið af
þessum aldurshópi því í þeirra augum er
ekkert ómögulegt og þeir eru ávallt tilbúnir
að læra eitthvað nýtt eða horfa á málin frá
fleiri sjónarhornum. Þeir eru hæfileikaríkir
og jákvæðir, en þurfa að fá tækifæri. Tæki-
færi til að gera vel, en líka tækifæri til að
misstíga sig og fá aðstoð við að standa aftur
á fætur.
Við viljum með þessum skrifum skora
á bæjarbúa að mæta unglingunum okkar
með opnum huga og jákvæðni. Þeir eiga
það svo sannalega skilið. Hjálpumst að við
að styrkja þá og styðja þannig að leiðin inn í
fullorðinsárin verði auðveld og ánægjuleg.
Fyrir hönd starfsmanna Bólsins og unglinganna
okkar, Guðrún Helgadóttir, forstöðumaður Bólsins.
Unglingarnir okkar – harðnaðir glæpamenn
eða hæfileikaríkir og kurteisir einstaklingar?
Svana Karen Kristjánsdóttir, 10. bekk
Ég er í 10. bekk og hef verið í Bólráði í 9.
og 10. bekk. Í Bólráði skipuleggjum við
geggjaða viðburði fyrir bæði krakka í Varmá og
Lágó, eins og t.d. Bólnótt og svo vorum við að
skipuleggja ferð til Vestmannaeyja. Bólráðið fór
í vinnu/skemmtiferð á Selfoss, skipulögðum og
höfðum gaman allur hópurinn saman. Ég hef mætt
í Bólið síðan í 8. bekk. Þetta er frábær staður til að vera
á í eyðum og lausum tímum, geggjað starfsfólk sem elskar að
spjalla og er alltaf til staðar.
Þórir Hlynsson, 10. bekk
Ég er í leiklist í Bólinu sem er skemmtileg
af því kennararnir eru skemmtilegir og
gaman að tala þá. Við lærum að leika eins
og alvöru leikarar með spuna og leikjum.
Krakkarnir vinna vel saman við að búa til leikrit.
Tinna Líf Óladóttir 10. bekk
Ég er að fara að keppa í Söngkeppni Samfés þann 9. maí. Ég
komst áfram úr undankeppni Samfés sem ég tók þátt í fyrir
hönd félagsmiðstöðvarinnar minnar, Bólsins.
Þegar ég fer í Bólið finnst mér skemmtilegast að
spila pool með vinum mínum eða spjalla við
skemmtilegu starfsmennina sem eru í Bólinu.
Samt er svo mikið annað skemmtilegt hægt að
gera og aldrei leiðinlegt að fara í Bólið.
Þorgeir Björgvinsson, 10. bekk
Það sem ég geri í Bólinu er
að ég spila borðtennis, pool og
tölvuleiki. Oftast samt er ég bara að spjalla
við vina mína og starfsmenn. Það sem ég geri
í Bólráði er að ég plana dagskrár, ferðir og
skemmtanir.
Hrefna Lind Óladóttir Tran 9. bekk
Ég hef mætt í Bólið síðan í 7. bekk og hef alltaf skemmt
mér svaka vel. Ég fór í Bólráðið því mér finnst gaman
að skipuleggja hluti. Bólráðið skipuleggur ferðir, til
dæmis til Vestmannaeyja, í bíó og margt fleira.
Mér finnst líka alltaf gaman að mæta í Bólið, á
milli tíma, í hádeginu og í kaffi og það er alltaf
stemning og starfsmennirnir gera tímann líka
helmingi betri!
KR. 990,- / stk
Lavender
KR. 2.990,- / búnt
STILKUR.IS
20% kynningarafslá�ur út maí
Afslá�arkóði — MOS21
Þurrkuð strá
í mörgum stærðum og gerðum
KR. 5.900,-