Morgunblaðið - 04.01.2021, Síða 6
Kepptust um bita frá mannfólkinu
Hlýtt var á höfuðborgarsvæðinu í gær og nutu margir veður-
blíðunnar. Til dæmis nokkrar fjölskyldur sem sóttu fugla Tjarn-
arinnar heim og gáfu þeim dýrindis brauðmeti í gogginn. Svan-
irnir og sambýlisfuglar þeirra voru hæstánægðir með gjafir
mannfólksins eins og vænta mátti og kepptust um að ná sér í bita
af brauðinu. Útlit er fyrir kólnandi veður víðast hvar á landinu í
vikunni. Miðað við veðurspá Veðurstofu Íslands frystir þó ekki í
Reykjavík fyrr en á miðvikudag. Þá er spurning hverjir fagna því
heldur, fuglar Tjarnarinnar eða tvífættir aðdáendur þeirra.
Morgunblaðið/Sigurður Ragnarsson
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 2021
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
Kæli- & frystiklefar
í öllum stærðum
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Útfærsla vinnutímastyttingar er
mismunandi á milli vinnustaða op-
inberra starfsmanna. Sumir virðast
ætla að taka styttinguna vikulega út
á meðan aðrir safna réttindunum
upp og taka þá frí heila daga eða
vikur síðar á árinu. Vinnutímastytt-
ingin tekur gildi hjá opinberum
starfsmönnum nú í upphafi árs
nema hvað framkvæmdin gagnvart
vaktavinnufólki hefst 1. maí.
Vinnuvikan hjá dagvinnufólki
verður 36 tímar þar sem starfsfólkið
kýs að afsala sér forræði yfir kaffi-
tímum en er nú 40 tímar. Haraldur
F. Gíslason, formaður Félags leik-
skólakennara, segir að við undir-
búning framkvæmdar styttingar
vinnuvikunnar hafi farið fram sam-
töl á hverjum vinnustað. Telur hann
að víðast hvar hafi þessi undirbún-
ingur gengið vel en sums staðar
verið ljón á veginum. „Það er mis-
jafnt að hversu miklu leyti fólk vill
afsala sér forræði yfir kaffitímum.
Sums staðar er farið í 36 stunda
vinnuviku strax en annars staðar
ákveður fólkið að byrja rólega með
13 mínútum á dag,“ segir Haraldur.
Einnig er fjölbreytni í því hvernig
styttingin er framkvæmd, hvort það
er gert nokkurn veginn jafnóðum
eða henni safnað upp og tekin heila
daga eða samfelld tímabil.
Segir Haraldur að útfærslan sé
flókin á vinnustöðum eins og leik-
skólum þar sem ekkert fjármagn
fylgi styttingu. Erfitt sé að hliðra til
verkefnum þar sem til dæmis unnið
er með börn.
Vaktavinnan flóknari
„Ég hef ekki fundið annað en að
viðbrögð séu góð enda hefur þetta
verið baráttumál okkar í fjörutíu ár
og við höfum séð þessa þróun í
fjölda ára hjá hjúkrunarfræðingum
í hinum norrænu löndunum, sér-
staklega varðandi vaktavinnu,“ seg-
ir Guðbjörg Pálsdóttir, formaður
Félags íslenskra hjúkrunarfræð-
inga.
Hún segir að skjöl frá einstökum
stofnunum hafi verið að berast al-
veg til áramóta og hún hafi ekki yf-
irlit um útfærslur. „Samtalið hefur
átt sér stað á vinnustöðunum. Nið-
urstaðan þarf að koma báðum til
góða og vera sameiginleg,“ segir
Guðbjörg. Stytting vinnutímans eigi
ekki að skerða gæði eða öryggi
þjónustunnar og þess vegna sé mis-
jafnt hvaða útfærsla hentar hverj-
um vinnustað.
Tveir þriðju
hlutar hjúkrunar-
fræðinga vinna í
vaktavinnu og
tekur stytting
vinnuvikunnar
hjá vaktavinnu-
fólki gildi 1. maí.
Guðbjörg segir
að undirbúningur
sé hafinn en segir
ljóst að samningur um það verði
mun flóknari en fyrir dagvinnufólk-
ið.
BSRB verður með eftirlit
Starfsgreinasambandið hefur ver-
ið í samfloti við BSRB í undirbún-
ingi vinnutímastyttingar. Flosi Ei-
ríksson, framkvæmdastjóri
Starfsgreinasambands Íslands, seg-
ir að undirbúningi sé lokið á flestum
stærri heilbrigðisstofnunum ríkisins
en ekki öllum. Vinnan hafi gengið
hægar á vinnustöðum hjá sveitar-
félögum. „Okkur hefur fundist
sveitarfélögin vera stífari í viðræð-
um. Þau hafi ekki tileinkað sér hug-
myndafræðina að fram fari samtal á
hverjum vinnustað um útfærslu.
Hjá mörgum sveitarfélögum virðist
ætlunin að ákveða fyrirkomulagið
miðlægt fyrir allar stofnanir,“ segir
Flosi en tekur fram að hann treysti
því að viðsemjendur hjá ríki og
sveitarfélögum standi við samninga
sína.
Stytting vinnuvikunnar hefur
áhrif á 22 þúsund félagsmenn
BSRB. Sonja Ýr Þorbergsdóttir,
formaður BSRB, segir að samtökin
muni hafa eftirlit með því að stytt-
ingu vinnuvikunnar verði framfylgt,
í samstarfi við önnur stéttarfélög og
launagreiðendur.
Fyrsta skrefið til styttingar
vinnuvikunnar var tekið í lífskjara-
samningunum á almenna vinnu-
markaðnum og tók gildi fyrir ári.
VR samdi um styttingu um 9 mín-
útur á dag sem svarar til 45 mín-
útna á viku en útfærslan var aðeins
mismunandi eftir samböndum.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður
VR, segir að framkvæmdin hafi al-
mennt gengið vel. Spurður um
framhaldið í næstu samningum seg-
ist Ragnar horfa til þess að vinnu-
tíminn verði styttur enn frekar.
Útfærslan misjöfn á milli vinnustaða
Stytting vinnutíma opinberra starfsmanna tók gildi um áramót nema hvað vaktavinnufólk bíður
Framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands segir að sveitarfélögin séu stíf í viðræðum
Ragnar Þór
Ingólfsson
Flosi
Eiríksson
Haraldur Freyr
Gíslason
Guðbjörg
Pálsdóttir
Sonja Ýr
Þorbergsdóttir
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Mun fleiri komu saman við messu-
hald í Landakotskirkju á öðrum tím-
anum í gær en sóttvarnareglur leyfa.
Lögreglan þurfti að hafa afskipti af
guðsþjónustunni. Þetta er í annað
skiptið á stuttum tíma sem lögregla
hefur afskipti af messuhaldi í Landa-
kotskirkju. Á jóladag var greint frá
því að hátt í 130 manns hefðu verið
við messu á aðfangadagskvöld í
Landakotskirkju.
„Málið er til rannsóknar hjá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ein-
hver er ósáttur við reglurnar. En
þegar svoleiðis kemur upp þá á fólk
að sækja um undanþágu hjá heil-
brigðisráðuneytinu, sem síðan tekur
afstöðu,“ segir Rögnvaldur Ólafsson,
aðstoðaryfirlögregluþjónn almanna-
varnadeildar.
Aðspurður segist Rögnvaldur ekki
vilja tjá sig sérstaklega um umrætt
atvik. Það sé þó alltaf leiðinlegt þeg-
ar fólk reynir að komast hjá þeim
takmörkunum sem nú eru í gildi.
„Maður er bara leiður þegar það ger-
ist að fólk fer framhjá reglunum,“
segir Rögnvaldur og bætir við að all-
ir verði að standa saman.
„Það er heimsfaraldur í gangi og
það er alveg vitað af hverju við erum
að gera þetta. Ég ætla samt ekki að
skammast út í þennan einstaka hóp.
Það er bara alltaf leiðinlegt þegar
fólk spilar ekki með.“
Aftur of margir viðstaddir
messu í Landakotskirkju
Lögregla hafði afskipti af messunni og rannsakar nú málið
Morgunblaðið/Þorvaldur Kristinsson
Frá Landakotskirkju Þar voru of
margir samankomnir í gær.