Morgunblaðið - 04.01.2021, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 2021
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 8008 – UNDRAVERÐUR SVEIGJANLEIKI
Háþróuð tækni, alvöru handverk, strangar prófanir og vandlega valin efni tryggja góðan nætursvefn
og passa upp á að líkaminn fái góða hvíld þegar þú þarf mest á því að halda.
Á laugardag var hér í blaðinumjög athyglisvert samtal við
Pál Pálsson, fasteigna- og fyrir-
tækjasala, um húsnæðismarkaðinn,
en verð íbúða hefur hækkað tölu-
vert síðasta árið.
Páll telur brýnt að
auka framboð á hús-
næði og auðvelda
markaðnum að leita
jafnvægis. Sveitar-
félögin séu stærsta
hindrunin, sér-
staklega á höfuð-
borgarsvæðinu þar sem lóðafram-
boð hafi verið með minnsta móti,
lóðaverð í hæstu hæðum og stjórn-
kerfið flókið og hægvirkt.
Þannig segir Páll að það getihæglega tekið allt að þrjú ár
frá því að lóð er keypt og þar til
hægt er að hefja framkvæmdir!
Og hann bætir við: „Þetta þýðirað um þrjú til fimm ár líða frá
kaupum á lóð og þar til hægt er að
fá einhvern arð af verkefninu.“ Þá
sé stjórnsýslan dyntótt og ófyrir-
sjáanleg og hann segist vita um
„marga verktaka sem þurfa að
setja upp sparibrosið og tipla á tán-
um í kringum fulltrúa bæjar-
félaganna sem hafa valdið til að
segja af eða á um byggingar-
framkvæmdir og minnstu breyt-
ingar“.
Þetta er lýsing á mjög óeðlileguástandi og augljóst að bæði
stjórnendur og kjörnir fulltrúar á
svæðinu verða að taka slíka ábend-
ingu alvarlega. Það á ekki síst við
um stærsta sveitarfélagið en margt
bendir til að vandinn sé mestur þar.
Kerfið í höfuðborginni er orðið
mjög flókið og gagnsæi er lítið. Við
það bætist að áherslur borgaryfir-
valda eru allar á að byggja þar sem
það er dýrast og tekur lengstan
tíma. Þessi blanda er augljóslega
afskaplega óheppileg svo ekki sé
dýpra í árinni tekið.
Páll Pálsson
Tiplað á tám um
þunglamalegt kerfi
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Fyrstu skóflustungur að viðbygg-
ingu við hátæknisetur líftæknifyr-
irtækisins Alvotech í Vatnsmýri í
Reykjavík voru teknar síðastliðinn
fimmtudag. Róbert Wessman,
stjórnarformaður fyrirtækisins,
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
og Jón Atli Benediktsson, rektor
Háskóla Íslands, tóku fyrstu skóflu-
stungurnar ásamt lykilstarfs-
mönnum sem komið hafa að verk-
efninu.
Viðbyggingin, sem verður 12.500
fermetrar að flatarmáli, er nánast
tvöföldun á núverandi aðstöðu Alvo-
tech í Vísindagörðum HÍ í Vatns-
mýri og eru verklok áætluð í lok árs
2022.
Alvotech er með átta líftæknilyf í
þróun, sem munu fara á markað á
næstu árum. Gert er ráð fyrir að
starfsmannafjöldi fyrirtækisins á Ís-
landi muni fara úr 410 í um það bil
580 þegar hátæknisetrið verður
tilbúið, að megninu til sérfræðingar
með háskólamenntun.
Róbert Wessman, stjórnar-
formaður Alvotech, sagði við þetta
tilefni: „Það er einstaklega ánægju-
legt að ljúka þessu erfiða ári sem
einkenndist af baráttunni við Co-
vid-19-veiruna með svona jákvæðu
skrefi til framtíðaruppbyggingar
fyrirtækisins.“
Fjárfesting í stækkuninni er áætl-
uð ríflega 10 milljarðar króna.
Tvöfalda nánast aðstöðu Alvotech
Ljósmynd/Aðsend
Mokað Hér má sjá fyrstu skóflu-
stungurnar að viðbyggingunni.
Fyrstu skóflustungurnar teknar fyrir helgi 10 milljarða fjárfesting
Athafnamaðurinn og
körfuboltaþjálfarinn
Ágúst H. Guðmundsson
er látinn. Hann andaðist
að kvöldi nýársdags í
faðmi fjölskyldu sinnar,
aðeins 53 ára gamall.
Ágúst fæddist 26.
ágúst árið 1967 á Pat-
reksfirði. Hann var ný-
orðinn fimmtugur þegar
hann greindist með
MND-sjúkdóminn, sem
dró hann til dauða.
Eiginkona Ágústs er
Guðrún Gísladóttir, lík-
amsræktarfrömuður og
stöðvarstjóri World Class á Akureyri.
Þau eiga þrjú börn, Júlíus Orra, Ás-
gerði Jönu og Berglindi Evu.
Ágúst flutti ungur til Hafnar-
fjarðar og hóf að spila körfubolta með
Haukum. Hann gekk síðan til liðs við
Þór eftir að hann fluttist til Akureyr-
ar 16 ára. Þar lék hann með meist-
araflokki árum saman. Einnig þjálf-
aði hann meistaraflokk félagsins og
yngri flokka.
Hjónin Guðrún og Ágúst stofnuðu
líkamsræktarstöðina
Átak á Akureyri árið
2003 og ráku allt til árs-
loka 2017, þegar World
Class keypti stöðina.
Síðan þá hefur Guðrún
stýrt starfsemi fyrir-
tækisins á Akureyri.
Ágúst fór ungur til
sjós en starfaði síðar
hjá Ásprenti og Kassa-
gerðinni. Hann stofnaði
ásamt fleirum fyrir-
tækið Neptune í því
skyni að gera út rann-
sóknarskip og þjónusta
olíuiðnaðinn. Ágúst var
framkvæmdastjóri fyrirtækisins á
meðan heilsan leyfði.
Fyrir nokkrum árum fékk hann
hugmynd að smávirkjun innst í Eyja-
fjarðarsveit og lét ekki deigan síga
þrátt fyrir veikindin. Tjarnarvirkjun
var formlega tekin í notkun í sumar
og eru þau hjónin aðaleigendur fyrir-
tækisins.
Ágústs var í gær minnst á vefsíðu
Þórs, vefmiðlinum Akureyri.net og á
Karfan.is.
Andlát
Ágúst H. Guðmundsson
Allt um sjávarútveg