Morgunblaðið - 04.01.2021, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 04.01.2021, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 2021 HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI Hágæða vinnuföt í miklu úrvali Sérmerkjum fyrir fyrirtæki Verkfæri og festingar vinnuföt fást í Mikið úrval af öryggisvörum Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Að leggja rækt við eigin heilsu er meira en bara stunda hreyfingu og borða hollan mat, segir Halla Karen Kristjánsdóttir í Mos- fellsbæ. „Mikilvægt er að draga úr streitu í daglegum störfum, eiga jákvæð samskipti við fólk, sofa nóg og hafa lífið í jafnvægi. Nú í janúar fara margir af stað og ætla að bæta líf og líðan með öflugri hreyfingu. Þar er mikilvægt að hver finni sína fjöl.“ Að synda 200 metra eða ganga í tuttugu mínútur á dag er mátulegt fyrir suma, sem geta svo bætt við sig og gert stærri hluti eftir því sem þrekið verður meira. Öðrum hentar, segir Halla, að taka klukkutíma styrktaræfingu eða hlaupa 10 kílómetra. Að taka of stór skref í byrjun eru ótrúlega algeng mistök. Hver og einn þurfi þarf að minna sig á að góðir hlutir gerast hægt. Tími til að taka á rás Á síðustu dögum nýliðins árs var Gulrótin, lýðheilsuviðurkenn- ing Mosfellsbæjar, veitt í fjórða sinn. Að henni standa sveitarfé- lagið og Heilsuvin, klasi fyrir- tækja, stofnana og fólks sem vilja efla starfsemi á sviði heilsu- tengdrar þjónustu bænum. Að þessu sinni kom Gulrótin í hlut Höllu Karenar Kristjánsdóttur sem í áraraðir hefur sinnt marg- víslegu starfi og hvatningu til Mosfellinga um að hreyfa sig og taka tilveruna með heilbrigðum lífsstíl og jákvæðni. Segja má að allt nýliðið ár hafi flest hver mannanna börn verið í híði sínu vegna kórónu- veirunnar. Nú er hins vegar kom- inn tími til að taka á rás. Um það segir Halla Karen að líkaminn sé gerður til þess að hreyfa sig. Auðvelt að komast á toppinn „Síðustu misseri hafa verið mjög krefjandi en um leið lær- dómsrík. Margar fjölskyldur hafa haft meiri tíma saman, og lífið hefur verið á hægari snúning en venjulega. Þetta hefur mín fjöl- skylda fundið og haft gott af. Vissulega er ekki gott að allar skipulagðar æfingar, hópastarf sem og annað hafi legið niðri í langan tíma. Allt hefur þetta þó bjargast,“ segir Halla Karen og heldur áfram: „Margir hafa fundið sér aðrar leiðir til hreyfingar, svo sem gönguferðir og fjallgöngur. Hér í Mosfellsbæ - sem er heilsueflandi samfélag – liggja merktir göngu- stígar út um allt enda eru fallegir staðir og fjöll sem létt er að ganga á. Sjálf bý ég við Helgafellið, bæj- arfjallið í Mosfellsbæ, þar sem fólk er mikið á gangi enda er fjallið þægilegt til útiveru og auðvelt að komast á toppinn. En veit ég vel að marga vantar félagsskap, hvatningu og gleðina við það að vera í skipulögðu íþróttastarfið.“ Síðustu árin hefur Halla Kar- en verið verið með leikfimi fyrir 67 ára og eldri í Mosfellsbæ og hefur starfið mælst vel fyrir og gerir þátttakendum gott. Um það eru allir á einu máli. Tilfinningin engu lík „Flestir – alveg sama á hvaða aldri fólk er – hafa líka reynt að eftir góðan hlaupasprett, sund, fjallgöngu eða hjólatúr verður líð- an betri, bæði í líkama og sál. Erf- ið verkefni verða auðleystari. En- dorfínið, taugaboðefnið sem veitir vellíðan, streymir fram og tilfinn- ingin verður bókstaflega engu lík,“ segir Halla Karen og bætir við að síðustu: „Ég hef kennt íþróttir um árabil og finnst sem skólakerfið í heild sinni þurfi hefja íþróttir til meiri virðingar. Að stunda íþrótt- ir er ekki bara að hlaupa og leika sér. Við kennum nemendum allt sem viðvíkur heilsu og heil- brigðum lífsstíl sem og samskipti, traust, drengskap og að bera ábyrgð á eigin heilsu. Sjálf hleyp ég, hjóla, fer á skíði og svo förum við hjónin líka í fjallaferðir þar sem krefjandi leiðir. Þar eru Laugavegurinn, Snæfellsjökull og Hvannadalshnjúkur ofarlega á blaði fyrir utan hvað margir möguleikar til útivistar eru í Þórs- mörk og Þjórsárdal. “ Fólkið skríði úr híðinu og taki tilveruna með heilbrigðum lífsstíl og jákvæðni Lífsgleði Mikilvægt er að draga úr streitu í daglegum störfum, eiga jákvæð samskipti við fólk, sofa nóg og hafa lífið í jafnvægi, segir Halla Karen sem hefur yndi af hreyfingu og útiveru, svo sem að ganga á fjöll. Færa íþróttirnar til meiri virðingar  Halla Karen Kristjánsdóttir er fædd árið 1970. Hún er íþróttakennari að mennt og hefur starfað við Borgarholts- skóla í Grafarvogi frá 1997. Hefur lengi verið þjálfari í World Class, er með hlaupa- hópinn Mosóskokk og leikfimi fyrir 67 ára og eldri.  Hefur haldið utan um Kvennahlaupið í Mosfellsbæ sl. 15 ár auk þess að vera með fyr- irlestra, íþróttaskóla, námskeið og annað. Halla Karen er gift Elíasi Níelssyni íþróttafræðingi og eiga þau samtals þrjú börn. Hver er hún? Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hjólreiðamenn Um allt höfuðborgarsvæðið og víðar um landið hafa hjól- reiðum verið skapaðar góðar aðstæður sem er gott í þágu lýðheilsumála. Freyr Bjarnason Freyr@mbl.is Grínistinn Ari Eldjárn segir að Íslensku bjartsýnisverðlaunin sem hann hlaut á laugardag hvetji sig til að leita út fyrir þægindarammann og halda áfram að sinna nýsköpun. „Þetta kom mér skemmtilega á óvart,“ segir Ari, spurður út í verð- launin. „Þetta hvetur mann til að gera eitthvað sem er ekki alveg inni í þæginda- rammanum því mín vinna sem grínisti og uppi- standari er rosa- lega mikil ný- sköpun en hún getur staðnað mjög hratt.“ Hann segir skemmtilegt að vera kominn í hóp fjölbreyttrar flóru listamanna sem hafa hlotið bjart- sýnisverðlaunin. Hildur Guðnadóttir kvikmyndatónskáld hlaut verðlaun- in í fyrra en á meðal annarra sem hafa tekið við verðlaununum eru frænka Ara, rithöfundurinn Sigrún Eldjárn, Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndagerðarmaður og Garðar Cortes, sem vann þau fyrstur manna árið 1981, á fæðingarári Ara. Áskorun að búa til nýtt efni Hann segir það mikla áskorun að búa til nýtt efni og að mikilvægt sé að hlutirnir verði ekki of þægilegir. Uppistandið hans sem var tekið upp og er nú til sýninga á Netflix hafi verið mikil áskorun og um leið ný- sköpun því slíkt hafi hann aldrei prófað áður. Vonar að ein milljón hafi horft á Netflix-þáttinn Aðspurður segist hann ekki vita hversu margir hafi horft á þáttinn hans á Netflix en veit að hann hefur fengið mikið áhorf úti um allan heim. Það geri honum starfið auð- veldara að þurfa ekki að breiða út fagnaðarerindið í eigin persónu eins og sakir standa. Hann hlakkar þó til að geta byrjað að ferðast aftur og troða upp. Ari hefur fengið skilaboð frá yfir 70 löndum vegna þáttarins og kveðst vona að að minnsta kosti ein milljón manna hafi horft á hann. „Ég er mjög bjartsýnn þessa dag- ana á árstíð þegar það er venjulega ekki voðalega bjart yfir,“ segir hann hress. Verðlaunin komu Ara Eldjárn á óvart  Ari Eldjárn hlaut bjartsýnisverðlaunin Ari Eldjárn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.