Morgunblaðið - 04.01.2021, Blaðsíða 12
AFP
Stökk Áhugavert verður að sjá hvort þróunin heldur áfram á sömu braut.
Rafmyntin bitcoin hækkaði skarplega
í verði á laugardag og sunnudag og
fór hæst upp í rúmlega 34.000 dali í
viðskiptum á sunnudagsmorgun.
Mælt í bandaríkjadölum rauf bit-
coin 30.000 dala markið á hádegi á
laugardag en var komið upp í 33.000
dali um kvöldmatarleytið sama dag.
Hefur verð rafmyntarinnar hækkað
hratt á undanförnum tólf mánuðum
en tók að þjóta upp 10. desember.
Er verð bitcoin nú meira en tvöfalt
hærra en í bólunni sem sprakk í árs-
lok 2017 og um þrefalt hærra en þeg-
ar verð rafmyntarinnar tók stökk
sumarið 2019.
Þó bitcoin hafi aldrei verið dýrari
en nú þá er hlutfallsleg hækkun und-
anfarins árs minni en í bólunni 2017
þegar verð rafmyntarinnar átjánfald-
aðist. Undanfarna tólf mánuði hefur
bitcoin nærri fimmfaldast í verði, en
rösklega sexfaldast ef miðað er við
lægsta verðpunkt ársins í miðjum
mars síðastliðnum.
Skiptar skoðanir eru um verðþróun
bitcoin og fjallaði Morgunblaðið um
það á laugardag að margt benti til að
um bólu væri að ræða og að styrking
rafmyntarinnar væri mögulega drifin
áfram af markaðsmisnotkun.
Forbes segir þó hægt að skýra
styrkingu bitcoin að hluta með því að
bandaríski greiðslumiðlunarrisinn
PayPal ákvað í október að leyfa not-
endum sínum að nota bitcoin í við-
skiptum, með ákveðnum kvöðum.
Bitcoin fékk líka byr undir báða
vængi þegar Citibank og JPMorgan
lýstu áhuga sínum á rafmyntinni en
skýrslu var lekið frá Citi þar sem einn
af reyndustu markaðsgreinendum
bankans spáði því að verð bitcoin gæti
farið upp í 318.000 dali í árslok 2021.
Gagnrýnendur vilja hins vegar
líkja bitcoin við píramídasvindl þar
sem þeir sem voru fyrri til að fjárfesta
í rafmyntinni geta innleyst hagnað
með því að selja til þeirra sem kaupa
bitcoin í gróðavon þegar verðþróunin
virðist liggja þráðbeint upp á við og
fátt haldi verði rafmiðilsins uppi ann-
að en loftið sem blásið er í bóluna með
þessum hætti. ai@mbl.is
Áfram blæs
bitcoin út
30.000 á hádegi en 33.000 um kvöldið
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 2021
- meira fyrir áskrifendur
Lestumeira
með vikupassa!
Fyrir aðeins 1.890 kr. færð þú netaðgang
að öllu efni úr blaði dagsins og næstu 6 daga.
- Fréttir
- Ritstjórnargreinar
- Menning
- Íþróttir
- Daglegt líf
- Viðskipti
- Fastir þættir
- Aðsendar greinar
- Aukablöð
- Viðtöl
- Minningargreinar
- Umræðan
Vikupassi er auðveldari
leið til að lesaMorgunblaðið
á netinu.
Fáðu þér vikupassa af
netútgáfu Morgunblaðsins.
FRÉTTASKÝRING
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Furðu vekur að kínverski millj-
arðamæringurinn Jack Ma virðist
ekki hafa sýnt sig opinberlega í
margar vikur og að hann er m.a.
hættur að birta færslur á Twitter
þar sem hann hafði verið nokkuð
duglegur að tjá sig.
Fóru vangaveltur um möguleg
vandamál Ma á kreik á dögunum
þegar hann mætti ekki í tökur á
veruleikaþættinum Africa‘s Bus-
iness Heroes þar sem afrískir
frumkvöðlar kynna verkefni sín í
von um að tryggja sér fjár-
mögnun. Átti Ma að sitja í dóm-
nefnd þáttarins og ritaði m.a. á
Twitter í ágúst að hann hlakkaði
mikið til að hitta keppendur.
Stjórnandi kínverska vefversl-
unarrisans Alibaba fyllti í skarðið
fyrir Ma, sem stofnaði félagið ár-
ið 1999, og hefur FT eftir tals-
manni fyrirtækisins að upptökur
hafi stangast á við önnur verkefni
á dagskrá milljarðamæringsins.
Þykir þó mörgum líklegri skýr-
ing að Ma sé að súpa seyðið af
því að hafa gagnrýnt stjórnvöld í
Kína í ræðu sem hann flutti seint
í október á fundi fjármála-
sérfræðinga í Sjanghaí. Skaut
hann þar föstum skotum á kín-
verska banka- og fjármálakerfið
sem hann sagði standa í vegi fyr-
ir nýsköpun og framförum.
Stóð þá til að skrá Ant Group,
dótturfélag Alibaba, á markað og
stefndi í stærsta hlutafjárútboð
sögunnar en kínversk stjórnvöld
stöðvuðu skráninguna á seinustu
stundu. Greindi WSJ frá því í
nóvember að þar hefði sjálfur Xi
Jinping Kínaforseti verið að verki
og tilgangurinn verið að koma
böndum á Ma. Á aðfangadag upp-
lýstu kínversk stjórnvöld síðan að
rannsókn væri hafin á meintum
einokunartilburðum Alibaba og
var Ant Group sömuleiðis skipað
að gera róttækar breytingar á
rekstri sínum og vöruframboði til
að fullnægja betur körfum kín-
verskra laga.
Öðrum víti til varnaðar
Staða Ma hafði þótt mjög sterk
enda vel liðinn í kínversku sam-
félagi og almenningur hrifinn af
árangri hans sem frumkvöðuls.
Hefur Ma einnig eignast volduga
vini um allan heim og t.d. starfað
náið með Sameinuðu þjóðunum og
ýmsum góðgerðarsamtökum.
Brást Ma m.a. hratt við í kórónu-
veirufaraldrinum og kom því í
kring að New York bárust 2.000
nýjar öndunarvélar. Þá hefur
hann sent andlitsgrímur og veiru-
próf í tugmilljónavís til margra
fátækari landa heims.
En þrátt fyrir að vera valda-
mikill, vellauðugur og vinmargur
þá virðist sem Ma hafi ekki getað
komist upp með að benda á
mögulega bresti í stjórnarfari
Kína og margt bendir til að ráða-
menn í Peking vilji tryggja að
vandræði Ma sendi öðrum sterk-
efnuðum kínverskum frum-
kvöðlum skýr skilaboð svo þeir
freistist ekki til að færa sig upp á
skaftið.
Hvar er Jack Ma?
Ekki hefur sést til auðjöfursins eftir að hann gagnrýndi
kínversk stjórnvöld Peking líklega að senda skilaboð
AFP
Falinn Ma virðist hafa misreiknað sig alvarlega þegar hann gagnrýndi regl-
ur og starfshætti innan kínverska fjármálageirans í ræðu í október.
Bandaríski rafbílaframleiðandinn
Tesla afhenti 180.570 ökutæki á fjórða
ársfjórðungi 2020 sem er töluvert um-
fram spár markaðsgreinenda sem
höfðu reiknað með 174.000 afhend-
ingum. Á liðnu ári afhenti fyrirtækið
499.550 ökutæki sem er um 36%
aukning frá árinu á undan en Elon
Musk, stofnandi og forstjóri fyrir-
tækisins, hafði sett markið á hálfa
milljón bíla að því er FT greinir frá.
Athygli vekur að Tesla skuli vera í
sókn á meðan flestir aðrir bíla-
framleiðendur þurftu að bregðast við
samdrætti í sölu á liðnu ári. Meðal
þess sem styrkti stöðu Tesla var að
sportjeppinn Model Y kom á markað
og framleiðsla komst á góðan skrið í
nýrri bílaverksmiðju sem fyrirtækið
opnaði í Sjanghaí í ársbyrjun.
Tesla stefnir á frekari vöxt og
munu nýjar verksmiðjur í Texas og
Þýskalandi hefja framleiðslu á bif-
reiðum síðar á þessu ári.
Hlutabréfaverð Tesla hækkaði um
700% árið 2020 og var fyrirtækið met-
ið á 669 milljarða dala við lokun mark-
aða í árslok. ai@mbl.is
AFP
Velgengni Elon Musk má vera ánægður með árangurinn síðustu misseri.
Árangur Tesla
fram úr væntingum
Tvær bílaverksmiðjur opnaðar á árinu