Morgunblaðið - 04.01.2021, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 04.01.2021, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 2021 VIÐSKIPTA Viðskiptapúlsinn er hlaðvarpsþáttur um viðskipti og efnahagsmál. Þar setjast blaðamenn ViðskiptaMoggans niður ásamt góðum gestum og ræða stærstu viðskiptafréttir vikunnar hverju sinni og hvað um er að vera í íslensku viðskiptalífi. Þættirnir fara í loftið á miðvikudögum í kjölfar útgáfu ViðskiptaMoggans og eru í samstarfi við Arion banka. Hlaðvarpið má nálgast á iTunes, Spotify og á öðrum hlaðvarpsrásum. Þættirnir eru einnig aðgengilegir á mbl.is VIÐSKIPTAPÚLSINN VIÐSKIPTAPÚLSINN NÝTTU TÍMANN OG FYLGSTU MEÐ 30 ára Hildur Ýr ólst upp í Grafarvogi og í Búðardal í Dala- byggð en býr núna í Borgarnesi. Hildur Ýr vinnur hjá Húsa- smiðjunni í Borg- arnesi. Helsta áhuga- mál hennar er hestamennska og hún er með fjögur hross. Hún segir að útreiðarleiðirnar í Borgarfirði séu mjög skemmtilegar. Maki: Stefán Dal, f. 1988, vinnur í Norðuráli á Grundartanga. Sonur: Björn Ágúst, f. 2016. Foreldrar: Ingibjörg Marteinsdóttir, f. 1968, starfar í Lyfju á Borgarnesi og Haraldur Harðarson, f. 1962, kennari í Fjöltækniskólanum í Reykjavík. Hildur Ýr Haraldsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það hefur ekkert upp á sig að vera að skæla út af hlutum sem lítill vandi er að kippa í liðinn. Farðu og finndu þér félaga; margar hendur vinna létt verk. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú álítur þig mjög hagsýna/n en ertu það? Það má alltaf fara betur í saum- ana á hlutunum. Ættingi þinn á við vanda að stríða, kannski þú getir hjálpað. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú getur búist við að gamlir vinir skjóti upp kollinum. Haltu þínu striki og þá mun allt fara vel. Komandi mánuðir verða spennandi fyrir fjölskylduna. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú munt bæta samskipti við þína nánustu á komandi ári með ánægjulegum hætti. Gæludýr kemur inn á heimilið. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þér er alveg óhætt að taka minni- háttar áhættu til að setja svolítið líf í tusk- urnar. Breytingar á heimili takast vel og eru allir sáttir við útkomuna. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Farðu í gegnum geymsluna og gefðu til að búa til pláss fyrir það nýja. Þér finnst þú á réttri leið í lífinu og því ber að fagna. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það lítur út fyrir að þú sitjir uppi með hálfgert leiðindaverk í dag. Nú kemur sér vel að eiga góða samstarfsmenn. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú ert forvitin/n og kemst að því sem þú þarft að vita. Ekki taka vanda- mál annarra inn á þig. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Framvindan er oft hröð og þú nýtur þess að hafa mikið fyrir stafni. Hugsaðu vel um þig og reyndu að fá tíma fyrir einveru á hverjum degi. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú lætur einskis ófreistað í leit að sannleikanum í dag, jafnvel þótt það baki þér óvinsældir. Þú vilt helst slíta sig lausa/n en það er ekki hægt núna. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú ert að reyna að gleyma óþægilegum aðstæðum en hver einasta hugsun og reynsla er rituð í frumurnar. Segðu því aðeins skoðun þína ef þú ert beðin/n um það. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þeir sem leita ráða hjá þér hafa stundum á orði að þú ættir að gerast laun- aður ráðgjafi. Reyndu að einbeita þér að starfi þínu. meðfram kennslunni og segir að þessi beina tenging við atvinnulífið hafi bæði eflt kennsluna og bætt ráðgjöf- ina, enda gott að blanda saman fræð- um og framkvæmd. Það er langur listi ráðgjafarverkefna sem Kristján hefur sinnt og má þar nefna fyrir Norrænu ráðherranefndina í Kaup- mannahöfn; Evrópuráðið; IESE- viðskiptaháskólann á Spáni svo ein- hver séu nefnd. Hann var formaður Félags viðskiptafræðinga og hag- þessum störfum var ég búinn að vera aðstoðarkennari Gylfa Þ. Gíslasonar frá því ég kom heim frá Danmörku og síðan árið 1991, þegar ég hætti hjá AB, varð ég lektor við Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands. Kennslan hefur verið kjölfestan á mínum starfsferli og ég hef haft um og yfir 5.000 nemendur á ferlinum og margir hverjir hafa orðið samstarfs- menn í atvinnulífinu og vinir.“ Kristján sinnti rekstrarráðgjöf K ristján Jóhannsson fæddist 4. janúar 1951 í Reykjavík og ólst upp í vesturbænum. „Gríms- staðavörin var okkar leikvöllur og það var mikill krakka- skari á Grímsstaðaholtinu. Við strák- arnir stóðum stundum þarna á stein- garði sem átti að vera bryggja og veiddum þar marhnúta, sem þá voru kallaðir massadónar. Ég man líka að engin af mömmunum vildi elda aflann.“ Kristján fór í Melaskóla og Haga- skóla og útskrifaðist frá Verslunar- skóla Íslands árið 1972. Hann kvænt- ist Ingibjörgu Sigurðardóttir, skólaástinni úr Versló, 13. október 1973. „Hún segist nú hafa tekið eftir mér í Melaskólanum og valið mig, en ég held því fram að ég hafi valið hana.“ Kristján fór með fjölskyldu sinni til Danmerkur þar sem hann nam rekstrarhagfræði og lauk cand.merc.- meistaraprófi í fjármálum frá Við- skiptaháskólanum í Kaupmannahöfn. „Við bjuggum í Danmörku í sex ár og það hefur mótað okkar lífsstíl mikið. Inga var orðin lífeindafræðingur og fór að vinna á spítalanum í Frederiks- bjerg. Við bjuggum í úthverfi á mjög fallegu svæði og fórum að gera ýmis- legt sem við höfum ekki gert heima. Fórum í skógarferðir, tíndum sveppi, ræktuðum tómata í garðinum, hjól- uðum og sigldum á kanó og fundum svona annan lífsstíl sem við höfum haldið mikið í síðan. Svo kynntist ég badminton og við feðgarnir fórum mikið á leiki.“ Kristján vann meðfram náminu í Privatbanken og einnig við afkomu- rannsóknir hjá danska efnahagsráðu- neytinu. „Við námslokin var mér boð- in staða í háskólanum í Kaupmanna- höfn, en var þá einnig komin með tilboð frá Félagi íslenskra iðnrekenda og það varð úr að við fórum heim.“ Kristján var í þrjú ár hagfræð- ingur Félags íslenskra iðnrekenda. „Þetta var mjög spennandi tími því það var verið að ræða starfsskilyrði atvinnugreina, skoða regluverkið og jafna skilyrðin.“ Næst varð Kristján forstjóri Almenna bókafélagsins og bókaverslunar Sigfúsar Eymunds- sonar, og var þar í sex ár. „Samhliða fræðinga í fjögur ár og hefur átt sæti í stjórnum margra fyrirtækja, s.s. Arion banka, Stefnis, Sagafilm, Sam- herja, Olíudreifingar, Parlogis og fleiri og hefur hlotið alþjóðlegar við- urkenningar fyrir störf sín. Kristján hefur einnig verið virkur í starfi Frímúrarareglunnar á Íslandi um margra ára skeið. Frá árinu 2007 hefur hann verið stjórnarformaður Icepharma hf. „Ég var fenginn til að vera í stjórn Austurbakka þegar hann fór á mark- að. Síðan er hann keyptur af markaði og sameinaður öðrum félögum sem urðu Icepharma 2006 í eigu Atorku. Þegar þeir ákváðu að selja félagið ár- ið 2007 spyr Jóhann sonur minn mig af hverju við kaupum ekki félagið með öðrum og það varð úr. Við erum með yfirburðastarfsfólk og undir- tónninn í allri starfseminni er lýð- heilsa og hreysti og endurspegla vörur og þjónusta okkar það.“ Kristján hefur frá Danmerkur- dvölinni hugað vel að heilsunni og þau hjónin eru mikið útivistarfólk. Hann spilaði badminton með UNION, fer á skíði, spilar golf og fer í gönguferðir í sveitinni með Ingu og nýtur þess að rækta og vinna í sumarhúsi þeirra hjóna í Út- hlíð. Hann fer reglulega í leikfimi með Vöskum öldungum í íþróttahúsi HÍ og fer í sund á morgnana í Nes- lauginni. „Síðan nýt ég þess að grúska í sagnfræði og les mikið um stríðsárin og eins um sjósókn við Ís- landsstrendur og útgerð nýsköp- Kristján Jóhannsson stjórnarformaður Icepharma hf. – 70 ára Stórfjölskyldan Öll samankomin á jólunum. Standandi f.v.: Guðveig Lísa, Kristján Ingi, Jóhann Ingi, Inga Rósa, Guðrún Helga, Eldur og Sigríður Ósk. Sitjandi f.v.: Jóhann Már, Grímheiður, Guðmundur Orri, Kristján, Ingi- björg, Ingibjörg Drífa í fangi ömmu sinnar, Helena Inga og Ísey. Ferill fræða og framkvæmda Hjónin Kristján og Ingibjörg eru mikið skíða- fólk og hér eru þau í Ölpunum í skíðaferð. Stundin okkar Kristján var ásamt æskuvinum sínum úr Haga- skóla í hljómsveitinni FØNIX. Hinrik Bjarnason fékk þá til að leika undir í fyrsta þætti Stundarinnar okkar á aðfangadag 1966, skömmu eftir stofnun Sjónvarpsins, og spiluðu þeir í nokkrum þáttum þann vetur. Stundin okkar er elsti þáttur Sjónvarpsins. 30 ára Una ólst upp í Fossvoginum og býr þar núna. Hún er tón- listarmaður, söngkona og lagasmiður og hef- ur gefið út undir nafn- inu UnaStef & the SP74. Síðan er hún líka tónskáld. Una kennir jazzsöng og samspil við Tónlistarskóla FÍH. Fyrir utan tónlistina er hún keppniskona í garð- yrkju, hörð Víkingskona og fótboltabulla. Maki: Hlynur Hallgrímsson, f. 1985, töl- fræðingur hjá Reykjavíkurborg. Sonur: Stefán Kári, f. 2015. Foreldrar: Stefán S. Stefánsson, f. 1957, tónlistarmaður og Anna Steinunn Ólafs- dóttir, f. 1957, félags- og uppeldis- ráðgjafi. Una Stefánsdóttir Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.