Morgunblaðið - 04.01.2021, Síða 29

Morgunblaðið - 04.01.2021, Síða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 2021 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Ég hef fengist við yrkingar síðan ég man eftir mér, en dróttkvæðum hætti kynntist ég fyrst í íslensku- tíma í menntaskóla og dáðist að hon- um. Hugsaði með mér hvílíkir höfuð- snillingar tungunnar það væru sem gætu ort í þessum hætti. Ég hef af og til spreytt mig á dróttkvæðum hætti síðan ég var unglingur, en þetta er það fyrsta sem ég yrki í þessum hætti sem ekki er kerskni- kveðskapur,“ segir Davíð Þór Jóns- son sem nýlega sendi frá sér ljóða- bókna Allt uns festing brestur, en bókin sú geymir trúarljóð sem Davíð yrkir við 13 liði hinnar klassísku messu. „Ég hef svolítið fengist við að leika mér að því hvernig hægt er að orða hluti á mismunandi vegu. Ég hef verið að reyna að yrkja sálma og ein- hverntíma náði ég að setja faðirvorið í bundið mál, en það kom til af því að þegar ég las Sjálfstætt fólk sá ég að Bjartur í Sumarhúsum hafði aldrei nennt að hafa fyrir því að læra faðir- vorið af því honum þótti ekki mikið til frelsara koma sem gat ekki komið frá sér rímaðri bæn. Ég vildi að Bjartarnir á meðal okkar ættu eina stuðlaða og rímaða útgáfu af faðir- vorinu, og tókst því á við verkefnið.“ Ort í tveimur fæðingarorlofum Davíð segist hafa samið trúar- ljóðin í nýju bókinni fyrst og fremst til trúarsvölunar. „Ég vinn mikið með messutexta í mínu prestsstarfi og mér finnst gam- an að hugleiða þá, því það er svo auð- velt að detta í það far að ryðja þeim upp úr sér eins og formúlum án þess að gefa merkingu þeirra raunveru- legan gaum. Þegar ég var í fæðingarorlofi með dóttur mína fyrir fjórum árum þá byrjaði ég að leika mér að þessum textum messuforms- ins. Þegar fæðingarorlofi lauk fór ég aftur að vinna og hugsaði ekkert meira um þetta. Tveimur árum síð- ar, nánast upp á dag, fæddist okkur annað barn, ég fór aftur í fæðingar- orlof og tók þá upp þráðinn í yrking- unum. Ég lagfærði það sem þurfti að laga og mér tókst að ganga frá því í þeirri mynd að ég treysti mér til að sýna öðrum það.“ Vel hægt að messa með þeim Ekki er það létt verk að yrkja undir dróttkvæðum hætti, með öll- um þeim reglum um atkvæðafjölda, stuðla og höfuðstafi, hrynjandi og innrím sem það krefst. Þegar Davíð er spurður hvers vegna hann hafi valið svo snúinn bragarhátt segir hann það sumpart hafa verið vegna þess að hann vildi gera sér þetta erf- itt. „Þessi bragarháttur ber með sér blæ hefðarinnar, hann er gamall og íslenskur og mér fannst eitthvað rétt við að gera þetta dróttkvætt. Mér fannst það gefa textanum ákveðinn hugleiðslublæ. Kannski finnst ein- hverjum að þetta sé ekki almenni- legt dróttkvæði af því að þetta er skiljanlegt hjá mér, en með því öðl- ast merking textans vonandi meiri dýpt eða opnast á einhvern hátt fyrir fólki. Ég er ekki að umorða eða yrkja upp messutextana, heldur er ég miklu frekar að spinna við þá,“ segir Davíð og bætir við að vel sé hægt að messa með þessum nýju textum hans í stað hinna hefðbundnu messutexta. „Grunnhugsunin er sú að öll al- vöru tónskáld í gegnum tíðina hafa samið sínar messur. Ég er ekki tón- skáld en mitt form er hið bundna mál og mig langaði að leggja mitt af mörkum með því að yrkja mína messu.“ Hroki, hégómi og aðrir brestir Ljóð Davíðs eru sannarlega lof- gjörð til Drottins og ljóssins, en hann kemur líka inn á hroka, hé- góma og aðra bresti hjá mannfólk- inu. „Fyrir mér er ástæða þess að við byrjum hverja messu á miskunnar- bæn sú að áður en við getum gengið fram fyrir Guð þá þurfum við að við- urkenna bæði fyrir honum og sjálf- um okkur að við þurfum hjálp. Þar kem ég inn á það sem mér finnst vera hroki heimsins, að halda að við séum svo stór, sterk og sjálfstæð að við getum allt sjálf. Þess vegna segi ég í ljóðinu: „Heimi hrokans stæka, hlotnist miskunn, Drottinn.“ Ljóðin eru líka óður til sköpunar- verksins, náttúrunnar: „Allt sem er og hrærist, ómar Guðs af rómi.“ Davíð segist hafa vilj- að leggja út frá því að vera ekki mjög dogmatískur heldur tala um ástina, fegurðina og kærleikann. „Fyrir mér er það Guð,“ segir hann og bæt- ir við að hann brenni fyrir því að opna augu fólks fyrir þeim kærleika og friði sem trúin veitir. „Ef ég væri ekki að leitast við það í mínu starfi, þá væri ég einfaldlega ekki starfi mínu vaxinn. Þessi ljóð yrki ég samt ekki sem prestur, held- ur sem trúaður maður, og er meira umhugað um mína persónulegu trúarsannfæringu heldur en ein- hverjar kenningar rétttrúnaðar. Ég lít ekki á þetta sem trúboð eða hluta af minni vinnu, heldur er ég fyrst og fremst að þessu af knýjandi þörf til að yrkja,“ segir Davíð og bætir við að hann voni að fólki finnist gott að lesa bókina. „Ég hef fengið góð og hlý viðbrögð frá lesendum, og mér þykir vænt um það.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Davíð Þór „Hroki heimsins að halda að við séum svo stór, sterk og sjálfstæð að við getum allt sjálf.“ Ég vildi gera mér þetta erfitt  Davíð Þór Jónsson sendir frá sér bók með trúarljóðum sem hann yrkir undir dróttkvæðum hætti  Gerir þetta af knýjandi þörf til að yrkja  „Fyrir mér er Guð ástin, fegurðin og kærleikurinn“ Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI. TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI FRÁBÆR NÝ JÓLA TEIKNIMYND JÓLAMYNDIN 2020 Jarðargróði góður, græna engið væna, lækur sem um sumar, silfurtær sem blærinn, seytlar milli syllna, senn í hafið rennur; fegurð láðs og lagar lotning tjáir Drottni. Líf og yndi lofa lilja vallar falleg, dýr í skreipu djúpi, dröfnótt lóa í móa. Allt sem er og hrærist ómar Guðs af rómi, Guðs í himingeimi, Guðs í ranni manna. Exitus

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.