Morgunblaðið - 04.01.2021, Page 32

Morgunblaðið - 04.01.2021, Page 32
Verk eftir Mozart, Haydn, Walker og Hauk Tómasson verða leikin á fyrstu tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Ís- lands á nýju ári sem fram fara í Eldborg Hörpu fimmtu- daginn 7. janúar kl. 20 undir stjórn Bjarna Frímanns Bjarnasonar. Einleikarar eru Katie Buckley á hörpu og Frank Aarnink á slagverk. Í samræmi við sóttvarnalög er sætaframboð á tónleikana takmarkað við 50 manns í hvert sóttvarnarhólf og ber gestum að bera grímu. Tón- leikarnir eru um klukkustundarlangir og án hlés. Meistarar Vínarklassíkurinnar Þórska ffi á K1 00 - öll laug ardags kvöldm illi 8 og 12 Á Þórsk affi spilu m við gö mul og góð d anslög í bland vi ð það vinsæla sta í dag - Hver v ar þinn uppáh aldssk emmt istaðu r? Var það Ingólfs kaffi, T unglið, Sportk affi, Ka ffi Ólive r eða Thorva ldsen? Við rifju m upp s kemmti legar sö gur af skem mtistöð um og h eyrum í fólki sem van n á þess um stöð um og auðvitað líka í þei m sem s kemmtu sér á þe ssum st öðum. Þór Bæring sér um að allir skemmti sér vel á Þórskaffi - öll laugardagskvöld á K100 frá 20.00 til 00.00 MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 4. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. „Þetta eru 38 stig í sextán leikjum. Það eru 2,4 stig eða svo að meðaltali í leik. Það þarf rúmlega tvö stig að meðaltali í leik til að fara upp svo það hefur gengið vel hingað til,“ sagði knattspyrnuþjálfarinn Ólafur Helgi Kristjánsson í samtali við Morgunblaðið. Ólafur hætti með karlalið FH og tók við danska liðinu Esbjerg um miðjan júlí á síðasta ári. Esbjerg var þá nýfallið niður í B-deild Danmerkur eftir tvö ár í deild þeirra bestu. Ólafi hefur tekist vel til við að koma sigurhugarfari í liðið eins og átta deildarsigrar í röð gefa til kynna. »27 Lærisveinar Ólafs í Danmörku unnu átta leiki í röð fyrir vetrarfrí ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Tveir verslunarstjórar og einn verslunarmaður Samkaupa braut- skráðust úr fagnámi verslunar og þjónustu í Verzlunarskóla Íslands skömmu fyrir jól og urðu þar með fyrstir til þess að ljúka þessum áfanga. „Ég er mjög þakklátur fyr- ir að hafa fengið þetta tækifæri,“ segir Jón Steinar Brynjarsson, verslunarstjóri í Nettó Búðakór í Kópavogi. Hann lauk jafnframt stúdentsprófi, en Aðalbjörg Valdi- marsdóttir, verslunarmaður Kjör- búðarinnar á Blönduósi, og Sara Líf Fells Elíasdóttir, verslunar- stjóri Iceland Arnarbakka í Reykjavík, brautskráðust með honum úr fagnáminu. Námið er 90 einingar og fer fram í lotum. Það hófst í janúar í fyrra og má rekja til þess að fulltrúar frá VR og SVÞ leituðu til Verzlunarskólans og þróunarhópur var myndaður með fulltrúum Sam- kaupa, Húsasmiðjunnar og Lyfju. Þremenningarnir riðu á vaðið en um 20 nemendur eru í náminu. Hvatning og stuðningur „Framkvæmdastjóri mannauðs- sviðs Samkaupa hvatti mig til þess að fara í fagnámið,“ segir Jón Steinar, sem hefur verið í núver- andi starfi síðan í maí 2019. Fyrir nokkrum árum byrjaði hann í Fjöl- brautaskóla Suðurnesja en segir að hann hafi ekki almennilega fundið sig í náminu, hætt og farið út á vinnumarkaðinn. Frekara nám hafi samt blundað í sér en það hafi verið hægara sagt en í að komast. „Ekki er auðvelt að missa tekjur til þess að fara í dagskóla,“ út- skýrir hann og bætir við að fag- námið hafi verið sem himnasend- ing. Starfsreynslan og fyrra nám hafi verið metið og þar sem hann hafi átt lítið eftir til þess að ljúka stúdentsprófi hafi hann ákveðið að taka það líka. Hann hafi því tekið nokkra kúrsa aukalega í sumar og haust. „Ég var strax spenntur fyr- ir fagnáminu og ekki síst vegna þess að ég gat stundað það og haldið 100% starfi á sama tíma. Það var tækifæri sem ekki var hægt að sleppa.“ Jón Steinar segist hafa fundið fyrir miklum létti þegar stúdents- prófið var í höfn. „Það var asna- skapur að ljúka því ekki fyrr en gleðin er þeim mun meiri núna og prófið opnar ansi margar dyr því nú get ég haldið áfram í háskóla- nám, farið í sérhæft nám sem gagnast í starfi til framtíðar.“ Samkaup hafa staðið þétt við bakið á Jóni Steinari og hann er ánægður með stuðninginn. „Ég er mjög ánægður og held að ég geti ekki unnið fyrir betra fyrirtæki enda sé ég framtíð mína hjá Sam- kaupum.“ Hann bætir við að álagið hafi verið mikið undanfarna mán- uði vegna námsins, sem hann bætti við sig til að ljúka stúdentsprófinu, og því ætli hann að hlaða batteríin áður en hann ákveði með fram- haldið. Hann hafi hug á að fara í viðskiptafræði og taka lögfræði með að hluta en hafi ekki hugsað það nánar. „Ég stefni á áframhald- andi nám í haust. Viðskiptafræðin hefur alltaf heillað mig og sama er að segja um lögfræðina. Þetta verður væntanlega einhver blanda.“ Námið himnasending Menntun Jón Steinar Brynjarsson með viðurkenningar sínar.  Jón Steinar segir fagnám í VÍ opna margar dyr Brautskráning Aðalbjörg Valdimarsdóttir og Sara Líf Fells Elíasdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.