Morgunblaðið - 06.01.2021, Page 1
M I Ð V I K U D A G U R 6. J A N Ú A R 2 0 2 1
Stofnað 1913 4. tölublað 109. árgangur
SNÚIN STAÐA
Í BARÁTTU UM
SKELJUNG SMEKKLEYSA Í 33 ÁR OGÞRIÐJUNGI BETUR
MIKIL ÁSKOR-
UN AÐ SPILA
Í FRAKKLANDI
AFMÆLISRIT 24 SVAVA RÓS 23VIÐSKIPTAMOGGINN
Andrés Magnússon
Stefán Einar Stefánsson
Ætla má að búið verði að bólusetja
8,1% þjóðarinnar í lok fyrsta ársfjórð-
ungs. Heilbrigðisráðuneytið segir að
von sé á 5.000 bóluefnisskömmtum
frá Moderna fyrir febrúarlok, en auk
10.000 skammta frá Pfizer í fyrra, er
búist við 45.000 skömmtum öðrum til
loka mars. Ráðuneytið treystir sér
hins vegar ekki til þess að greina frá
frekari afhendingu bóluefnis, en von-
ar að hún verði örari er á líður.
Þessir 60 þúsund skammtar ættu
að duga til þess að bólusetja 30 þús-
und manns. Í landinu búa liðlega 368
þúsund manns, svo þar er um að ræða
8,1% Íslendinga.
Öll ríki í Evrópusamstarfi um bólu-
efnisinnkaup eiga að fá hlutfallslega
jafnmikið og stýrist afhending og
skammtafjöldi af því. Innkaup á bólu-
efni undir forystu Evrópusambands-
ins hafa sætt mikilli gagnrýni, þar
sem stjórnmálaíhlutun, viðskipta-
sjónarmið og skriffinnska eru sögð
hafa tafið ákaflega fyrir.
Efnahagslífið háð bóluefni
Miklu getur varðað hversu hratt og
vel bólusetning gengur og ekki aðeins
fyrir heilbrigði einstaklinga. Þannig
gerir Alþjóðabankinn ráð fyrir því að
vaxtarhorfur helmingist frá fyrra
mati ef hökt verður á bólusetningu.
Forystumenn í ferðaþjónustu segja
þessa þróun ekki gefa tilefni til bjart-
sýni, sem hafi „beinar efnahagslegar
afleiðingar“.
„Við erum nú í þeirri stöðu að geta
ekki treyst því að bólusetning muni
bjarga einhverju umfram það sem við
áttum von á áður en bóluefnið fór að
berast,“ segir Jóhannes Þór Skúla-
son, framkvæmdastjóri SAF.
Aðeins bóluefni fyrir 8%
60.000 skammtar á fyrsta ársfjórðungi Aukin svartsýni á efnahagsafleiðingar
MBóluefni »2, 4, ViðskiptaMogginn
Kvikmyndaleikstjórinn Baltasar
Kormákur segir upptökuver
Reykjavík Studios í Gufunesi skapa
nýja möguleika í íslenskri kvik-
myndagerð. Það sé enda eitt stærsta
kvikmyndaver Evrópu sem geri
kleift að fullvinna erlendar kvik-
myndir á Íslandi. Með því geti
tekjur þjóðarbúsins af kvikmynda-
gerðinni stóraukist.
„Rökin fyrir því að koma til Ís-
lands og taka upp mynd í þessu
stúdíói, frá sjónarhóli þeirra sem
stýra málum í Hollywood, eru að
hægt er að fulltaka myndina á Ís-
landi, ef hún hentar í útitökur hér á
landi, í stað þess að þurfa að skipta
um starfslið og fara eitthvað annað í
millitíðinni,“ segir Baltasar í ítar-
legu viðtali við ViðskiptaMoggann.
Áskrifendur um heim allan
Þá feli sókn streymisveita, á borð
við Netflix, í sér mikil tækifæri til
framleiðslu fyrir sístækkandi hóp
áskrifenda um heim allan.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Mörg járn í eldinum Baltasar undirbýr tökur á kvikmynd í Suður-Afríku í
maí. Kostnaður við verkefnið er áætlaður tæplega átta milljarðar króna.
Skapar ný tæki-
færi fyrir Ísland
Baltasar segir nýtt stúdíó byltingu
Frank Michelsen úrsmíðameist-
ari segir söluna hafa stóraukist eft-
ir að hann flutti verslun Michelsen
frá Laugavegi á Hafnartorg.
Raunar sé sú ákvörðun ein sú
besta sem fjölskyldan hafi tekið í
110 ára sögu verslunarinnar.
Veltuaukningin sé gríðarleg en
að öðru leyti trúnaðarmál.
Frank segir í samtali við Við-
skiptaMoggann að gott aðgengi að
versluninni og bílakjallari eigi þátt
í auknum viðskiptum.
Salan jókst
á Hafnartorgi
Nú í janúar 2021 eru 19.749 lands-
menn metnir með 75% örorku en
þeir voru 20.078 fyrir réttu ári og
19.999 í janúar 2019, samkvæmt upp-
lýsingum á heimasíðu Trygginga-
stofnunar. Nýgengi 75% örorkumats,
fjöldi þeirra sem metnir eru með 75%
örorku, fer lækkandi. „Við erum að
fá fleiri mál inn til okkar en áður þar
sem fólk hefur ekki fengið örorku-
mat sem það telur sig þurfa,“ sagði
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, for-
maður Öryrkjabandalagsins. „Þetta
er fólk sem hefur ekki lengur færni
til að stunda vinnu vegna heilsu-
brests eða slysa. Einnig hefur komið
fleira fólk sem var með 75% örorku-
mat en fór svo í endurmat og var
lækkað niður í 50% örorku.“
Hún segir að með slíkri lækkun á
örorkumati eigi fólk ekki lengur rétt
á örorkulífeyri en geti fengið
örorkustyrk sem er um 36 þúsund
krónur á mánuði. Upphæð örorkulíf-
eyris er hærri og ræðst af mörgum
þáttum. »12
Færri fá 75%
örorkumat
Kennsla hófst í mörgum framhaldsskólum í gær. Eftir að sótt-
varnareglur voru rýmkaðar var tekið á móti nemendum í
staðnám á ný þar sem aðeins hafði verið fjarnám í boði. Aug-
ljóst var að þessar stúlkur í Menntaskólanum í Reykjavík voru
ánægðar með að fá að hitta skólafélagana á ný. Grímurnar
skyggðu ekki á gleðina sem skein úr augum stúlknanna.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gleðin skein í gegnum grímurnar á fyrsta skóladeginum