Morgunblaðið - 06.01.2021, Side 11

Morgunblaðið - 06.01.2021, Side 11
FRÉTTIR 11Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 2021 Söfnum í neyðarmatarsjóð til matarkaupa hjá Fjölskylduhjálp Íslands fyrir þá fjölmörgu sem lægstu framfærsluna hafa. Þeim sem geta lagt okkur lið er bent á bankareikning 0546-26-6609, kt. 660903-2590. Fjölskylduhjálp Íslands, Iðufelli 14 Breiðholti og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ. Neyðarsöfnun í matarsjóðinn Guð blessi ykkur öll Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Verið velkomin Útsalan er hafin Samkvæmt könnun sem sænska dag- blaðið Afton- bladet birti í gær bera um 42 pró- sent þeirra sem tóku afstöðu „mjög lítið traust“ til Stef- ans Löfvens, for- sætisráðherra Svíþjóðar. Hefur sú tala hækkað um tíu prósentustig frá sambæri- legri könnun blaðsins í síðasta mán- uði. Einungis um 31% svarenda sagðist bera „mjög mikið“ eða „frekar mikið“ traust til Löfvens, og hafði sú tala lækkað um sjö pró- sentustig milli mánaða. Hinar auknu óvinsældir Löfvens eru raktar til þess að hann sást heimsækja úrabúð í miðbæ Stokk- hólms, eftir að ríkisstjórnin hafði hvatt fólk til þess að halda að sér höndum í verslunarferðum vegna kórónuveirufaraldursins. Þá voru aðrir ráðherrar í ríkis- stjórn hans „gripnir“ í búðar- ferðum í aðdraganda jólanna, og Dan Eliasson, yfirmaður almanna- varna, fór til Kanaríeyja yfir jólin, eftir að Svíar höfðu verið hvattir til að láta af „ónauðsynlegum ferða- lögum“. 62% svarenda í könnun Aftonbladet báru mjög lítið traust til Eliassons. Bera minna traust til Löfvens en áður Stefan Löfven SVÍÞJÓÐ Saksóknarar í Wisconsin-ríki greindu frá því í gær að lyfsalinn Steve Brandenberg, sem eyðilagði um 570 skammta af bóluefni Mod- erna-fyrirtækisins í desember síð- astliðnum, tryði á samsæriskenn- ingar og væri þeirrar skoðunar að bóluefnið væri hættulegt mönnum og gæti breytt DNA þeirra sem tækju það. Brandenberg var handtekinn í síðustu viku, en hann skildi 57 glös af bóluefninu eftir utan frystis og sá þannig til þess að það skemmd- ist, en um tíu skammtar voru í hverju glasi. Taldi bóluefnið geta breytt DNA manna BANDARÍKIN Breski ráðherrann Michael Gove varaði við því í gær að útgöngu- banni ríkisstjórnarinnar yrði mögu- lega ekki aflétt fyrr en í mars- mánuði. Boris Johnson, forsætis- ráðherra Bretlands, tilkynnti um útgöngubannið í ávarpi sínu í fyrra- kvöld, en það nær einungis til íbúa Englands. Felur bannið í sér að Englend- ingar mega ekki yfirgefa heimili sín nema til þess að versla nauð- synjar eða sinna líkamsrækt næstu sex vikurnar. Þá hefur öllum skól- um á Englandi verið lokað vegna uppgangs kórónuveirunnar. Gove sagði við fréttastofu Sky News að ekki væri hægt að segja nákvæmlega fyrir um hvenær banninu yrði aflétt, en það á að standa til 15. febrúar hið minnsta. Sagði Gove að mögulega yrði hægt að aflétta sumum af þeim takmörk- unum sem settar voru á í gær í marsmánuði, en ekki öllum. Þá væru „mjög erfiðar vikur“ fram undan. Almenningur á Englandi virðist styðja útgöngubannið samkvæmt könnunum, en ríkisstjórnin hefur verið gagnrýnd fyrir að hafa ekki lokað skólum strax á mánudaginn. Gætu framlengt útgöngubannið BRETLAND Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Búist er við stormasömum degi á Bandaríkjaþingi í dag, en þá munu báðar deildir þingsins koma saman á sameiginlegum þingfundi til þess að staðfesta formlega niðurstöðu for- setakosninganna, sem fram fóru í nóvember síðastliðnum, en þar hafði demókratinn Joe Biden, fyrrverandi varaforseti, betur gegn sitjandi for- seta, repúblikanum Donald Trump, en forsetinn hefur neitað að viður- kenna ósigur. Að öllu jöfnu væri um formsatriði að ræða, en bandamenn Donalds Trumps Bandaríkjaforseta í báðum deildum hafa lýst því yfir að þeir hyggist reyna að snúa niðurstöðu kosninganna við á þingfundinum með því að knýja fram atkvæða- greiðslu um hvort þingið samþykki að kjörmenn frá vissum ríkjum verði taldir með. Til þess að knýja fram slíka at- kvæðagreiðslu þarf að minnsta kosti einn þingmaður úr fulltrúadeild og einn úr öldungadeildinni að gera at- hugasemd við kjörmenn ákveðins ríkis. Um leið og það liggur fyrir halda þingdeildirnar hvor um sig umræðu um athugasemdirnar, og þurfa báðar deildir að samþykkja þær til þess að kjörmönnunum verði vikið frá. Í ljósi þess að demókratar eru með meirihluta í fulltrúadeild- inni eru nær engar líkur á því. Hollustupróf fyrir 2024? Þá þykir næsta víst að athuga- semdirnar verði einnig felldar í öld- ungadeildinni þó að repúblikanar séu þar með meirihluta, en nokkrir þeirra, þar á meðal Mitt Romney, forsetaframbjóðandi repúblikana árið 2012, og Susan Collins, þing- maður Maine, hafa þegar viðurkennt sigur Bidens og fordæmt tilraunir kollega sinna til þess að snúa niður- stöðu kosninganna við. Engu að síður hafa 13 öldunga- deildarþingmenn flokksins í hyggju að gera athugasemdir við niðurstöð- una, og er þar í fararbroddi Ted Cruz, þingmaður Texasríkis. Stjórn- málaskýrendur vestanhafs telja að þingmönnunum 13 megi vera ljóst að tillaga þeirra verði felld, en fyrir þeim vaki einkum að sýna stuðnings- mönnum Trumps að þeir styðji áfram við bakið á honum. Þá beri einhverjir þingmannanna, sér í lagi Cruz, þá von í brjósti að stuðningur þeirra við Trump núna muni skila sér í auknu fylgi þegar kemur að því að velja frambjóðanda flokksins fyrir kosningarnar 2024. Málið hefur engu að síður ýtt und- ir innanflokksátök meðal repúblik- ana, þar sem Mitch McConnell, leið- togi þeirra í öldungadeildinni, reyndi í síðustu viku að koma í veg fyrir að kollegar hans tækju undir mótbárur repúblikana í fulltrúadeildinni. Samkvæmt heimildum Wash- ington Post vakti þar meðal annars fyrir McConnell að koma í veg fyrir að þingmenn repúblikana þyrftu að taka opinbera afstöðu, en McConnell var sagður óttast að það gæti skaðað vonir þeirra öldungadeildarþing- manna flokksins sem munu sækjast eftir endurkjöri í þingkosningunum árið 2022. Utan þinghússins er svo gert ráð fyrir að stuðningsmenn Trumps muni fjölmenna til þess að mótmæla niðurstöðu kosninganna. Trump hyggst sjálfur ávarpa mótmælendur við Hvíta húsið, en einn af skipu- leggjendum mótmælanna var hand- tekinn af lögreglunni í Washington- borg í fyrrinótt fyrir að hafa brennt fána sem tengdist Black Lives Mat- ter-hreyfingunni í áþekkum mót- mælum í síðasta mánuði. Hvor mun ráða þinginu? Það dregur ekki úr spennunni sem ríkir í Washington að kjósendur í Georgíuríki greiddu atkvæði í gær í seinni umferð kosninganna til öld- ungadeildarinnar, en bæði þingsæti ríkisins voru undir. Mun niðurstaðan ráða því hvor flokkurinn ræður öld- ungadeildinni næstu tvö árin. Síðustu skoðanakannanir bentu til þess að frambjóðendur demókrata, John Ossoff og Raphael Warnock, hefðu nauma forystu á David Purdue og Kelly Loeffler, en óvíst var hve- nær niðurstaðan myndi liggja fyrir, þar sem talning atkvæða gæti dreg- ist fram til fimmtudags. AFP Georgía Donald Trump ávarpaði stuðningsmenn sína á kosningafundi í fyrrinótt í aðdraganda seinni umferðar kosninga til öldungadeildarinnar. Bæði þingsæti ríkisins eru undir og gæti niðurstaðan skipt sköpum. Átakadagur í vændum  Báðar deildir Bandaríkjaþings koma saman í dag  Stuðningsmenn Trumps hyggjast knýja fram atkvæðagreiðslu  Óvíst um niðurstöðuna í Georgíuríki

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.