Morgunblaðið - 06.01.2021, Page 13

Morgunblaðið - 06.01.2021, Page 13
13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 2021 Reykjadalur Jólahátíðinni er að ljúka og daginn tekur smám saman að lengja. Þó að Reykjadalur við Hveragerði hafi skartað sínu fegursta úr lofti í gær verður hann jafnvel enn fegurri í sumar. Eggert Í byrjun síðasta árs var sá er hér skrifar ágætlega bjartsýnn, eins og líklega flestir. Við Íslendingar höfð- um komist sæmilega klakklaust í gegnum árið 2019 þótt á köflum ekki blési byrlega. Fátt benti til annars en að vöxtur efnahags- lífsins gæti orðið þokkalegur á nýju ári og góður á því næsta. „Til að svo verði þurfa stjórnvöld að halda rétt á spilunum,“ voru hins vegar varnaðarorð enda gamall fjandi – atvinnuleysi – farinn að láta á sér kræla. Þá voru stýrivextir Seðlabankans í sögulegu lágmarki (og hafa lækkað hressilega síðan) en lækkunin hafði ekki náð að seytla um allan fjármálamarkaðinn. Heim- ilin, lítil og meðalstór fyrirtæki nutu því í litlu vaxtalækkunar. Fjár- málamarkaðurinn var og er enn óhagkvæmur, arðsemi lítil, skatt- heimta of mikil og séríslenskar regl- ur gera fjármálakerfið illa sam- keppnishæft. Eignarhald ríkisins á stórum hluta fjármálakerfisins eyk- ur vandann. Ég hafði áhyggjur af fleiri þáttum efnahagslífsins. Atvinnuvegafjárfesting hafði dregist saman árið 2019, annað árið í röð. Fjárfesting hins opinbera varð einnig minni en á móti kom verulegur vöxtur í íbúðafjárfestingu en vísbendingar voru um að farið væri að hægja á byggingargeir- anum. Viðvörunarljósin blikkuðu á fyrstu vikum liðins árs líkt á áminning um að stjórnvöld yrðu að halda vel á spilunum. En það var ekkert sem benti til að meiri hátt- ar efnahagsleg áföll væru fram undan þótt vissulega hefði sam- keppnishæfni atvinnu- lífsins orðið lakari og vöxtur útgjalda hins opinbera síðustu árin gerði verkefnið erf- iðara. Tvö einföld mál Í þessari fyrstu grein síðasta árs benti ég á tvö frumvörp sem mér væri umhugað um að koma í gegn- um Alþingi, en ég var fyrsti flutn- ingsmaður þeirra. Hvort um sig ynni gegn efnahagslegum sam- drætti með því að örva fjárfestingu og styrkja fjárhagslega stöðu ein- staklinga. Fyrra málið var frumvarp um að virðisaukaskattur af vinnu við bygg- ingu eða viðhald íbúðarhúsnæðis yrði endurgreiddur að fullu. Rökin voru einföld: Byggingakostnaður íbúða lækki um allt að 3% auk þess sem stuðlað verði að heilbrigðari vinnumarkaði og bættum skatt- skilum (tryggingagjald, tekjuskatt- ur o.s.frv.). Allir hagnist, ekki síst ríkissjóður til lengri tíma litið. Síðara frumvarpið var innleiðing skattaafsláttar vegna hlutabréfa- kaupa. Markmiðið var og er að efla hlutabréfamarkaðinn og þar með auka aðgengi fyrirtækja að nauð- synlegu áhættufé. Um leið skjóta stoðum undir eignamyndun launa- fólks. Frumvarpið náði ekki fram að ganga en var lagt fram að nýju síð- asta haust. En svo skall kórónuveirufarald- urinn á með þeim alvarlegu efna- hagslegu og félagslegu afleiðingum sem óþarfi er að fjalla um að þessu sinni. Hófleg bjartsýni í upphafi árs fauk þar með út í veður og vind. Tekið af skarið Varnarbarátta síðasta árs kom ekki í veg fyrir að fjármálaráðherra tæki af skarið í virðisaukaskatt- smálinu. Full endurgreiðsla varð hluti af viðamiklum aðgerðum rík- isins til að milda efahagsleg áhrif kórónuveirufaraldursins. Endur- greiðslan náði ekki aðeins til íbúða, heldur einnig frístundahúsa og bíla- viðgerða, auk þess sem almanna- heillasamtök gátu notið endur- greiðslunnar sem og sveitarfélög. Þetta var tímabundin aðgerð en skömmu fyrir jól samþykkti Alþingi að framlengja hana út þetta ár. Ég lít á það sem hlutverk Sjálfstæð- isflokksins að tryggja að full endur- greiðsla virðisaukaskatts vegna vinnu á byggingarstað verði til frambúðar enda hagsmunamál fyrir launafólk. Fjármálaráðherra hefur einnig boðað breytingar á lögum um tekju- skatt þar sem innleiddir verði skattalegir hvatar fyrir launafólk – því gert auðveldara að taka þátt með beinum hætti í atvinnulífinu með kaupum á skráðum hlutabréf- um. Ég líkt og aðrir Sjálfstæð- ismenn el þann draum í brjósti að allir Íslendingar verði eignafólk og búi við fjárhagslegt sjálfstæði. Þátt- taka almennings í hlutabréfamark- aði er og á að vera órjúfanlegur hluti af stefnu Sjálfstæðisflokksins - samofin séreignastefnunni. Þannig ná góð mál hægt og bít- andi fram að ganga, þrátt fyrir og kannski vegna erfiðra efnahags- legra aðstæðna. Verkefnin á nýju ári eru mörg en mestu skiptir að við komumst út úr kófinu sem fyrst. Aðgengi að bóluefni og bólusetning þjóðarinnar er stærsta og mikilvæg- asta verkefni stjórnvalda í upphafi kosningaárs. Efnahagsleg velferð er í húfi og þar með geta okkar til að standa undir góðum lífskjörum og öflugu velferðarsamfélagi til fram- tíðar. Við höfum ekki endalaust út- hald til verja fyrirtæki, heimili og velferðarkerfið með þeim hætti sem gert hefur verið síðustu mánuði. Regla þumalputtans Til einföldunar getum við stuðst við þumalputtareglu. Hver dagur þar sem barist er við kórónuveiruna og efnahagslífið er lamað með þeim hætti sem raun er, kostar ríkissjóð um einn milljarð króna – hver vika sjö milljarða. Það má því halda því fram að janúar kosti sameiginlegan sjóð okkar 30 milljarða, annars veg- ar í auknum útgjöldum og hins veg- ar lægri tekjum. Að óbreyttu bæt- ast 28 milljarðar við í febrúar. Og þannig koll af kolli uns hjólin kom- ast aftur af stað. Þá er ekki talinn með kostnaður sveitarfélaga, fyr- irtækja eða heimila, eða sá efna- hagslegi fórnarkostnaður sem er samfara faraldrinum. Lakari lífs- gæði og félagslegur kostnaður verða aldrei metin til fjár. Auðvitað er þumalputtareglan ekki nákvæmur mælikvarði, ekki fremur en aðrar slíkar mælistikur. En hún gefur þokkalega sýn á hvaða hagsmunir eru í húfi – hversu mikilvægt það er að ná tökum á far- aldrinum þannig að daglegt líf kom- ist aftur í eðlilegt horf. Og þar skiptir bólusetning líklega mestu. Þegar horft er á hagsmunina sem eru í húfi, þann gríðarlega kostnað sem hver dagur hefur í för með sér, er það því hreint aukaatriði hvað skammtur af bóluefni kostar. Bjarni Benediktsson fjármála- ráðherra vakti athygli á því í sam- tali við Morgunblaðið fyrir tveimur dögum að til greina kæmi að íslensk stjórnvöld veiti bráðaleyfi fyrir notkun nýrra bóluefna. Það ráðist þó af því að hægt sé að gera það hraðar en Lyfjastofnun Evrópu, en Bretland, Bandaríkin og fleiri lönd hafa haft hraðari hendur í þeim efn- um. Undir þetta hefur Kári Stef- ánsson tekið. Það er fráleitt annað en að eiga náið og gott samstarf við fleiri vinaþjóðir en á meginlandi Evrópu þegar kemur að því að gefa út bráðaleyfi fyrir bóluefni. Kostn- aðurinn við að tryggja að Lyfja- stofnun hafi bolmagn til að eiga samstarfið og nýta það, er skipti- mynt í samanburði við þá hagsmuni sem eru undir. Eftir Óla Björn Kárason » Aðgengi að bóluefni og bólusetning þjóð- arinnar er stærsta og mikilvægasta verkefni stjórnvalda í upphafi kosningaárs. Efnahags- leg velferð er í húfi. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Í upphafi kosningaárs

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.