Morgunblaðið - 06.01.2021, Síða 15

Morgunblaðið - 06.01.2021, Síða 15
Ég man varla eftir Hauki nema með Stellu sér við hlið. Þau rugluðu reytum sínum saman mjög ung og eignuðust frum- burðinn, Rúnar, sama ár og áð- urnefnd mynd var tekin, í febr- úar. Þá var Stella tæplega 18 ára. Fyrir mér voru Haukur og Stella glæsilegir fulltrúar rokkkynslóð- arinnar. Það var hálfs árs aldurs- munur á Elvis og Hauki. Ég sá Hauk og Stellu að vísu aldrei dansa eða rokka, en af þeim geisl- aði lífsfjörið, gleðin og ástin. Þau voru óskaplega ástfangin þegar ég sá þau fyrst saman. Og alla tíð síðan. Auðvitað skiptust á skin og skúrir í hjónabandi Hauks og Stellu, eins og gerir í öllum hjónaböndum. En ég held og full- yrði að ástin á milli þeirra kólnaði aldrei. Fyrir fjórum árum missti Haukur hetjuna sína, lífsföru- nautinn sinn, hana Stellu. Eftir það var hann svolítið eins og vængbrotinn fugl. Og nú hefur hann kvatt okkur líka. Við, afkomendur Daníels Daníelssonar og Guðrúnar S. Guðmundsdóttur í Guttorms- haga, ætluðum að halda ættar- mót síðastliðið haust austur í Holtum og á Rangárvöllum, en þurftum að fresta því. Þar átti Haukur frændi að sitja í öndvegi, elstur þálifandi afkomenda afa og ömmu í Guttormshaga. Nú von- umst við til að geta haldið ætt- armótið í haust, 2021. Þar mun Haukur frændi skipa heiðurssess í hjörtum okkar allra. Blessuð sé minning Hauks Jó- hannssonar. Veri hann kært kvaddur. Trausti Steinsson. Mig langar í nokkrum orðum að minnast og um leið kveðja Hauk frænda. Haukur var móð- urbróður minn og fyllir stórt rými í mínu hjarta. Það er í raun erfitt að nefna hann án þess að minnast á Stellu konu hans, sem lést fyrir fjórum árum, en Haukur og Stella eru í mínum huga eining sem var bundin órjúfanlegum böndum, enda búin að fylgjast að frá unga aldri. Minningar mínar um heim- sóknir til þeirra, hvort heldur sem var í Hallstún eða á heimili þeirra á Hellu eru svo samofnar æsku minni og til þessa dags að maður upplifir stór kaflaskil þeg- ar þessi heiðurshjón hafa nú bæði kvatt okkur. Haukur var mikill karakter sem ég leit upp til, ljúflyndur og hnyttinn töffari, íhugull og það var mjög stutt í vel ígrunduð og meinfyndin svör, nokkuð sem telst til ættareinkenna hjá þeim systkinum á sama hátt og hlát- urinn. Hláturinn sem einkennir þau er ættaður frá Völu ömmu og lýs- ir sér svona ; Fyrst kemur ein- hverskonar hvinur djúpt úr iðr- um þeirra, þá eldroðna þau og jafnvel tárast og ef þau standa upprétt á þessum tíma, missa þau jafnan annað hnéð örlítið undan sér og standa svo skökk þar til hláturskastið er gengið yfir. Eftir að amma Vala og afi Jói kvöddu tók Haukur við keflinu sem aldursforseti ættarinnar, sannkallaður ættarhöfðingi bæði á velli og í gjörðum. Á myndinni sem ég mun ætíð hafa af honum, er hann að taka á móti okkur fagnandi á ættarmóti í Hallstúni með fallega skeggið sitt og kúrekahatt á höfðinu og Stella einhvers staðar eða nánast allsstaðar í einu að bardúsa og bralla eitthvað skemmtilegt fyrir barnabörnin sín og önnur ætt- menni. Þeirra stóra gæfa var að eign- ast börnin sín; Rúnar, Jóhönnu og Össa sem hafa svo aftur fært þeim hjörð afkomenda sem nú, líkt og ég, horfa fram á kaflaskil. Þeim öllum votta ég og fjölskylda mín dýpstu samúð. Blessuð sé minning Hauks frænda. Karl Jóhann. MINNINGAR 15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 2021 ✝ Hannes Lár-usson fæddist 11. apríl 1940 á Leysingjastöðum í Austur-Húnavatns- sýslu. Hann lést á dvalarheimilinu Brákarhlíð í Borg- arnesi 25. desember 2020. Foreldrar hans voru Lárus Jak- obsson, f. 12.10. 1892 í Syðra Tungukoti, A- Húnavatnssýslu, d. 27.2. 1967 og Sigríður Jónsdóttir, f. 10.1. 1914 í Öxnatungu, V-Húnavatnssýslu, d. 12.4. 1999. Systur Hannesar eru Erla, f. 28.12. 1934, d. 10.12. 1983, Lilja, f. 26.2. 1937, d. 12.1. 2014, Elín Birna, f. 2.7. 1947 og Inga Þóra, f. 31.7. 1949, d. 1.8. 2002. Hannes giftist eftirlifandi eig- inkonu sinni, Sólveigu Sig- urbjörnsdóttur frá Sauðadalsá í V-Húnavatnssýslu, 1964. Börn þeirra eru: 1. Jón Ingi Hannesson, f. 10.7. 1962, sambýliskona hans er Anja Arai, f. 3.10. 1974. Börn Jóns Inga frá fyrra sambandi eru: Hannes Jón Jónsson, f. 23.2. 1980. Eiginkona hans er Harpa dóttir, f. 26.6. 2006. Barn Hjör- leifs frá fyrra sambandi er Vikt- or Sindri Hjörvar, f. 28.1. 1988. Eiginkona hans er Gabriella Ba- nic Hjörvar, f. 4.3. 1988. Þeirra börn eru Sindri Emanuel, f. 2018 og Alisia, f. 2020. Hannes ólst upp á Leysingja- stöðum í Austur-Húnavatnssýslu en flutti 9 ára gamall að Upp- sölum í Miðfirði, árið 1949. Árið 1959 flutti hann ásamt fjölskyldu sinni á Óspaksstaði í Hrútafirði, þar sem hann bjó alla tíð síðan. Hannes sótti þá menntun sem í boði var á þeim tíma að Skeggjastöðum í Miðfirði, en ungur var hann farinn að stunda bústörf með föður sínum að Uppsölum og tók snemma við búskap á Óspaksstöðum. Með bústörfum vann hann í mörg ár við póstdreifingu í Hrútafirði. Hannes hafði gaman af söng og var virkur í mörg ár í Kirkju- kór Staðarkirkju. Einnig var hann virkur í Veiðifélagi Hrúta- fjarðarár og sat í stjórn þess nokkrum sinnum í gegnum tíð- ina. Útför Hannesar fer fram frá Akraneskirkju í dag, 6. janúar 2021, klukkan 13. Streymt verður frá: https://www.akraneskirkja.is/. Virkan hlekk á streymi má finna: https://www.mbl.is/andlat/. Jóhannsdóttir, f. 16.6. 1986. Þeirra börn eru: Sólveig Birta, f. 2009, Jó- hann Úlfur, f. 2011, Jón Jökull, f. 2016. Andri Valur Jónsson, f. 3.11. 1983, sambýlis- kona hans er Ragnheiður Þórdís Jónsdóttir, f. 19.11. 1982. Zahra Inga Jónsdóttir, f. 18.10. 1997. 2. Sigrún Lára Hannesdóttir, f. 23.2. 1964. Börn hennar eru: Rúna Björg Hannesdóttir, f. 18.8. 1987, sambýlismaður henn- ar er Aron Ingi Agnarsson, f. 20.11. 1991, barn þeirra er Hanna Mjöll Aronsdóttir, f. 2017. Guðjón Þorsteinsson, f. 8.9. 1989, sambýliskona hans er Ásdís Jónína Halldórsdóttir, f. 13.2. 1995, barn þeirra er Írena Máney Guðjónsdóttir, f. 2018. 3. Hjörleifur Þór Hannesson, f. 12.8. 1970, eiginkona hans er Guðrún Jóhanna Halldórsdóttir, f. 3.5. 1972. Þeirra börn eru: Gunnhildur Hjörleifsdóttir, f. 12.11. 2004 og Sólveig Hjörleifs- Hann pabbi minn er farinn í sína síðustu ferð og hún liggur yfir móðuna miklu. Hann ferðaðist ekki mikið en hann naut þess að fara um og sjá hvað menn væru að bardúsa eins og hann kallaði það. Hann pabbi minn var fámáll maður, harður af sér, kvartaði aldrei og heyrðist aldrei kveinka sér þótt á móti blési. Ég lærði af honum að maður gerir hlutina af því að þess er þörf, en ekki af því að þeir séu skemmtilegir. Þó var aldrei langt í bros og glettur þó svo hann virkaði þungur á svip. Þó að hann og mamma væru ekki alltaf sammála í sinni bú- skapartíð þá var tryggðin við hjónabandið og búskapinn allt- af sú sama; maður hleypur ekki undan bagga, maður réttir úr sér. Ég hef búið erlendis síðustu 20 ár, sem gerði það að verkum að við sáumst ekki jafn oft og áður, en þó oftast um sauðburð, réttir og um jól. Þetta voru góðar samverustundir og við tókum upp þráðinn þar sem við slepptum honum síðast. Geng- um í verkin saman eins og við höfum alltaf gert og þau gerð eftir þínu höfði sem féll mér nánast alltaf vel. Stundum gat ég ekki ekki annað en brosað yfir því að ég, um fimmtugt, fann fyrir stolti þegar pabbi minn treysti mér fyrir einföld- um verkum eins og að bera áburð á túnin. Þú markaðir djúp spor í okk- ur öll, mig og börnin mín Hannes Jón, Andra Val og Zöhru Ingu. Djúp spor af virð- ingu og ástúð til þín sem föður og afa sem bjó yfir lífsreynslu sem við skynjuðum og virtum. Ég sakna þín mikið elsku pabbi minn og okkar samveru- stunda. Minning þín mun lifa áfram í þeim minnismerkjum sem þú hefur sjálfur reist hér á Óspaksstöðum. Jón Ingi Hannesson. Komið er að kveðjustund. Öll vitum við hvernig þetta endar hjá okkur öllum en samt kemur þetta alltaf á óvart. Pabbi vissi fyrir víst að það var farið að húma að kveldi og þrátt fyrir að eiga alltaf kraft og nýtt líf til að hefja aftur eftir hvert áfallið á fætur öðru síðastliðin tvö ár vissi hann sem var að kveðju- stundin nálgaðist. En hún kom fullfljótt eins og hún gerir allt- af. Eftir lifa minningar um föð- ur sem sagði ekki alltaf það sem honum fannst, tjáði ekki mikið tilfinningar sínar en sýndi þær með því að vilja hafa mann með sér. Ég man kvöld- ferðirnar sem snáði í fjósið með mömmu og pabba þar sem ég lærði, kvöld eftir kvöld, að syngja Guttavísur. Alla túrana sem ég sníkti um smala- mennskur á hnakkkúlunni, sem var sársaukafullt þægindi en um leið vel þess virði því ég var með pabba. Allar póstferðirnar um sveit- ina sem við fórum í og öll kaffi- stoppin heima á bæjunum sem stóðu til boða og um leið að fá að kynnast sveitungunum í gegnum hann. Pabbi nennti að hafa okkur krakkana með, ekki bara fyrir félagsskapinn heldur líka til að kenna okkur handbrögðin og ganga úr skugga um að við gætum ráðið við hlutina því þá vorum við gjaldgeng til vinnu. Hann treysti okkur til að sinna ákveðnum störfum um leið og við höfðum krafta og vit til. Hann lagði áherslu á að við myndum sinna okkar störfum vel og kenndi okkur metnað til að standa okkur og láta verkin tala. Það er gaman að rifja upp að við vorum farin að smala með honum upp úr sex ára aldri, keyra bíla og dráttarvélar upp úr átta ára aldri og 12 ára gát- um við sinnt búinu ef þess þurfti. Hann hafði líka gaman af að kenna okkur það sem hann undi sér best við; silungsveiði í vötnum og rjúpnaveiði. Ég var varla farinn að ganga þegar við vorum farin að veiða á stöng og 12 ára fór ég með honum í fyrstu veiðiferðina til að veiða rjúpur í jólamatinn, hæfilegt magn, enga ofveiði, nokkuð sem hefur verið rík hefð síðan. Þrautseigja pabba í veikind- um sínum einkenna hvernig hann hugsaði. Fyrst og fremst þurfti að sinna búinu, sama hvernig honum leið, og hann kappkostaði að ná bata síðast- liðið vor til þess að hann kæm- ist heim í sauðburð og heyskap. Það gekk því miður ekki eft- ir. Pabbi var fyrst og síðast bóndi, hafði gaman af dýrum og þeim störfum sem fylgja bú- störfum. Hápunkturinn hjá honum í þeim störfum voru göngur og réttir. Uppi á heiði með góða sveitunga og góða hesta undi hann sér best og nóttin í gangnaskálanum var best ef lítið var sofið en mikið sungið. Elsku pabbi, sumarlandið hefur fengið öflugan bónda til sín og þangað til að við hitt- umst á ný treysti ég á að söng- urinn ómi á heiðinni þar. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Hjörleifur Þór. Með ólýsanlegum söknuði kveð ég elsku afa, minn allra einasta. Við afi áttum alveg einstakt samband, þurftum yfirleitt bara að horfa hvort á annað og þá vissum við hvað hitt var að hugsa. Mér er svo minnisstæð ein réttarhelgin, það var fullt út að dyrum á Óspaksstöðum vegna ættingja og vina sem komu til að aðstoða í göngum og réttum. Mig vantaði bara smá frið þannig að ég fór og settist inn í herbergið mitt. Kom hann þá inn til mín stuttu seinna, settist á rúmið og andvarpaði. Þá læddist að okkur báðum bros, því við vorum nefnilega bæði að fela okkur. Bara til að fá augnablik í ró og næði. Svo sátum við bara, í þögninni. Afi var ekki maður margra orða og þess vegna þótti honum gott að vera í kringum dýrin sín, hann þurfti ekki að halda uppi samræðum við þau. Það var svo einstakt að sjá hvað kindurnar urðu uppveðraðar þegar hann kom inn í fjárhúsin. Jú, þær vissu að nú væri mat- artími, en það var svo greini- legt að þær voru líka glaðar að sjá hann. Ég kallaði hann alltaf „kindahvíslarann“, hann gat klappað og knúsað þær kindur sem voru vanalega svo styggar að þær litu ekki einu sinni á mig. Ég var svo heppin að fá að alast upp á Óspaksstöðum hjá ömmu og afa. Afi var ekki bara afi minn, hann ól mig upp að miklu leyti, var vinur minn, var mín föðurímynd. Ég er Hann- esdóttir í dag vegna hans, ég vildi ekki vera neitt annað. Afi var mér svo dýrmætur, eini afinn sem ég átti. Það verður erfitt að fylla tómarúm- ið innra með mér. Að ég geti ekki lengur hringt í hann þegar Hanna er sofnuð á kvöldin og við segjum hvort öðru hvað við gerðum yfir daginn. Þótt ekk- ert væri að frétta þá var þetta bara fastur liður hjá okkur. Ef ég tafðist eitthvað með að hringja, þá hringdi hann í mig til að athuga af hverju ég væri ekki búin að hringja í hann. Síðastliðið ár var langt og strembið fyrir afa en ég verð að eilífu þakklát fyrir tímann sem við fengum saman. Ég gerði mitt besta í að vera til staðar fyrir hann á meðan hann gerði sitt besta til að ná aftur heilsu. Ómetanleg samvera. Djúp og varanleg vinátta er dýrmætari en veraldlegar viðurkenningar, og allt heimsins gull og silfur. Henni þarf ekki endilega alltaf að fylgja svo mörg orð heldur gagnkvæmt traust og raunveruleg umhyggja. Kærleikur, sem ekki yfirgefur. (Sigurbjörn Þorkelsson) Rúna Hannesdóttir. Afi minn og nafni Hannes Lárusson bóndi á Óspaksstöð- um er látinn. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að eyða miklum tíma æsku minnar í Hrútafirðinum hjá honum og ömmu og minnist hans fullur af þakklæti. Afi bar ekki tilfinningar sín- ar né skoðanir utan á sér, hann var maður fárra orða og oft var erfitt að átta sig á hvað honum fannst um menn eða málefni. Hann talaði ekki illa um nokk- urn mann en var að sama skapi lítið í því að hlaða menn lofi. Ef hann virkilega hreifst af ein- hverju svo að aðrir tækju eftir voru það helst skepnur. Ég held og vona að hann hafi verið stoltur af ævistarfi sínu, uppbyggingunni heima á Óspaksstöðum, börnunum sín- um þremur og búskapnum. Heimurinn sem tók á móti hon- um og hann ólst upp í hentaði honum, að ég held, miklu betur en sá heimur sem hann kvaddi nú á milli jóla og nýárs. Hann var hreinræktaður íslenskur sauðfjárbóndi af gamla skólan- um og því hlutverki sinnti hann af lífi og sál án þess að velta því eitthvað frekar fyrir sér. Nægjusemi, dugnaður og þrjóska eru orð sem lýsa hon- um og hans lífi ágætlega. Hann hafði gaman af því að ríða út og fara til veiða en það var samt eins og honum fyndist að það sem hann gerði þyrfti alltaf að vera til einhvers gagns og hann hafði afar takmarkaðan skiln- ing á því sem hann kallaði endalaust flandur mitt inn á Holtavörðuheiðina í algjöru til- gangsleysi, öðru en bara til þess að njóta. Munurinn á hugsunarhætti kynslóða okkar kom þar mjög skýrt fram. Hann var ekki mikill á velli en ótrúlega hraustur og þrótt- mikill þangað til allra síðustu árin, rúmt síðasta árið dvaldi hann á mismunandi sjúkra- stofnunum og mikið sem mér fannst það eiga illa við hann. Ég hefði óskað honum þess að draga síðasta andardráttinn við bústörf heima á Óspaksstöðum, klæddur lopapeysu í kvöldsól. Afi og amma á Óspaksstöð- um hafa alltaf verið festan í mínu lífi, ræturnar og burð- arbitarnir, þar hefur maður getað gengið að öllu vísu, hjá þeim hefur alltaf allt bara verið eins og það er og umfram allt eins og það var, það hefur verið mér ómetanlegt og fyrir það verð ég ævinlega þakklátur. Ég held að afi minn hafi kvatt þetta líf eins sáttur og ís- lenskur sauðfjárbóndi getur orðið og ég er nokkuð viss um að hann kvaddi áhyggjulaus, held að hann treysti okkur sem eftir erum til þess að sjá um það sem ég held að honum hafi verið kærast; ömmu, Óspak- sstaðina og fylgjast með veð- urskeytunum. Með þakklæti og söknuði óska ég nafna mínum góðrar ferðar. Hannes Jón Jónsson. Á jóladagskvöld bárust okk- ur þær fréttir að góðvinur fjöl- skyldunnar, Hannes Lárusson, væri fallinn frá. Steinunn María frænka mín var örlagavaldur í mínu lífi þegar hún bauð mér í heimsókn norður í Brú 1982. Árið eftir var ég aftur kominn í Brú. Ekki leið á löngu, þrátt fyrir gott atlæti hjá frænku, þar til hugur minn leitaði til næsta bæjar við Brú, þetta voru Óspaksstaðir þar sem Hannes Lárusson og Sólveig Sigur- björnsdóttir bjuggu. Þarna var mikið líf, krakkar, hestar og mikið um að vera sem heillaði 10 ára pjakk. Úr varð að ég endaði á Óspaksstöðum þetta sumarið. Þarna kynntist ég þessari fjölskyldu sem hefur fylgt mér og seinna meir minni fjölskyldu síðan. Þau eru okkur öllum dýrmæt tengslin sem hafa myndast í gegnum tíðina, dætur mínar fengu þarna ann- að sett af ömmu og afa. Hannes var vinnusamur bóndi sem gerði hlutina eftir sínu höfði og venjulega var engu breytt af samferðamönnum sem hann hafði ákveðið enda stundaði hann sinn búskap af myndar- brag. Ég lærði margt undir öruggri stjórn Hannesar bæði í leik og starfi. Smölun, heyskap- ur, sauðburður, silungsveiði, berjamór, flagvinna, girðingar- vinna, umgengni um vélar, skotveiði, hestamennska og akstur ökutækja; allt var þetta ævintýraheimur fyrir 10 ára strák. Sauðburður og réttir hafa verið órjúfanlegur hluti af tilverunni frá 1982 hjá mér og fyrir börnunum mínum hefur þessi tími verið eins og jólin, alls ekki síðri. Þarna náðu dæt- ur mínar tengingu við lífið í sveitinni og tengdust störfum í sauðburði og réttum með Hannesi og Sollu. Þegar ég lagðist á koddann á jóladagskvöld komu minning- arnar um Hannes á færibandi, þær sterkustu voru þó safnið að koma af fjalli og Hannes á Tígli, lykt af slægju eldsnemma að morgni, pípulykt, veiði í Holtavörðuvatni og söngur í gangnamannaskálanum þar sem Hannes var í sínu rétta umhverfi. Hann hafði alltaf áhuga á ökutækjum og fyrr á tíð ferðaðist hann stundum hratt. Heimsókn okkar á byggðasafnið á Skógum er mér minnisstæð, sérstaklega var gaman að skoða söguna með Hannesi og Sollu, sem upplifað höfðu megnið af því sem fyrir augu bar á safninu. Seiglan og dugnaðurinn, seiglan kom vel í ljós nú í seinni tíð. Það var eins og hann ætti níu líf; þrátt fyrir að Ferguson keyrði yfir hann eða veikindi steðjuðu að reis hann alltaf aftur og var ótrú- lega fljótur að mæta í fjárhúsin á nýjan leik, þetta var maður sem hljóp og smalaði það sem við smölum akandi í dag. Hannes hafði sterkar skoð- anir og var alltaf vel inni í því sem var að gerast í þjóðfélag- inu, hann skákaði manni venju- lega þegar kom að þjóðfélags- umræðu líðandi stundar og þekkti söguna vel. En umfram allt þá var hann sterkur kar- akter. Við fjölskyldan eigum fullt af góðum minningum frá Óspak- sstöðum og góðum samveru- stundum sem við geymum í hjarta okkar. Takk kæri vinur fyrir sam- ferðina, þín verður sárt saknað. Elsku Solla, Hjölli, Rúna, Jón Ingi, Lára og fjölskyldur, okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Jónmundur Gunnar Guðmundsson og fjölskyldan Dynskógum 11. Hannes Lárusson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.