Morgunblaðið - 06.01.2021, Síða 16
16 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 2021
✝ Anna Hall-grímsdóttir
fæddist á Helgu-
stöðum í Helgu-
staðahreppi 7.
ágúst 1917. Hún lést
á dvalarheimilinu
Hulduhlíð 27. des-
ember 2020. For-
eldrar hennar voru
Hallgrímur Stef-
ánsson, f. 1885, d.
1923, og Sveinlaug
Helgadóttir, f. 1886, d. 1971.
Systkini Önnu voru Ari Þórir, f.
1910, d. 1989, Guðný Stefanía, f.
1913, d. 1943, Gunnar Valgeir, f.
1915, d. 2008, Helga Þuríður, f.
1919, d. 1938, og Óli Ríkharð, f.
1923, d. 1941.
Anna giftist eiginmanni sínum
Einari Kristjánssyni, f. 1912, d.
1994, hinn 15. maí 1937. Börn
þeirra eru:
1) Halla, f. 1941, maki Gunnar
Hjaltason, f. 1942. Börn: Anna
Ragnheiður, f. 1964, Hjalti, f.
1969, og Sturla, f. 1971. Barna-
börn: Gylfi, Laufey, Arnbjörg
Bára, Viktor, Emelia, Sigurd,
Stefanía, Ásta María og Ólafur
Guðmundur. Barnabarnabörn:
Ísey Hrefna, Anna Guðný, Júl-
íanna Líf, Glóey, Fanndís Harpa,
Alfred, Nikoline Diljá og Natalia
Malen.
2) Ríkharð, f. 1942, maki Óla
Hvanná. Haustið eftir fór Anna
sem vinnukona í Landsbankann
og þar fór svo að einn banka-
starfsmaðurinn og hún renndu
hýru auga hvort til annars sem
endaði með trúlofun hennar og
Einars Sveins Kristjánssonar,
hún 16 og hann 21. Þau giftu sig
15. maí 1937. Þau eignuðust
fyrsta bílinn 1955 og eftir það
voru ferðalög tíð um allt Ísland
og 1964 var fyrsta utanlands-
ferðin farin. Eftir það var ekkert
sem stöðvaði ferðaáhuga
hjónanna og ferðalög urðu fastur
þáttur í þeirra lífi.
Anna var ein af stofnendum
slysavarnadeildarinnar Haf-
rúnar 1933, þá 16 ára gömul, og
var hún gerð að heiðursfélaga.
Anna og Einar byggðu húsið
Einarsstaði og fluttu þar inn
1944 og bjó Einar þar það sem
hann átti eftir ólifað. 1999 flutti
hún á neðri hæðina í Svínaskála-
hlíð 15, var þar til 2006 þegar
hún festi kaup á íbúð í Melgerði
13 Reyðarfirði. Árið 2013 flutti
hún svo í Hjúkrunarheimilið
Hulduhlíð þar sem hún bjó til
æviloka.
Útför hennar fer fram frá
Eskifjarðarkirkju 6. janúar 2020
klukkan 13.
Í ljósi aðstæðna verður aðeins
nánasta fjölskylda viðstödd.
Streymt verður beint frá athöfn-
inni á Facebook-síðunni Eski-
fjarðarkirkja.
https://www.facebook.com/
eskifjardarkirkja/.
Virkan hlekk á streymi má
finna:
https://www.mbl.is/andlat/.
Björk Ingvars-
dóttir, f. 1942. Börn:
Guðný Anna, f.
1964, Einar Ísfeld, f.
1969, Ingvar, f.
1970, Lára, f. 1970,
og Telma, f. 1972.
Barnabörn: Víðir Ís-
feld, Anton Friðrik,
Aldís María, Hrafn-
hildur Freyja, Aron
Sölvi, Sandra Björk,
Kolbrún Þóra, Birg-
itta Dröfn, Sesselja Ósk, Emma
Rós, Ríkey Anna, Rakel Ösp, Jó-
hann Geir og Hólmfríður Björk.
Barnabarnabörn: Hallvarður
Einar, Kristín Tinna, Móheiður,
Máney Björk, Esjar Sverrir og
Hrafntinna Marín.
3) Guðný, f. 1948, maki Andres
Gunnlaugsson, f. 1947. Börn:
Lilja, f. 1972, og Einar, f. 1976.
Barnabörn: Andres Viðar, Birg-
itta, Guðný Edda og Benedikt
Alex.
Anna ólst upp á Helgustöðum
til sex ára aldurs og flutti til
Eskifjarðar með móður sinni eft-
ir andlát föður síns. Innan við
fermingu var hún send í vist og
16 ára varð hún vinnukona hjá
Rögnu og Jóni bakara og það
fannst henni sem besti hús-
mæðraskóli sem hún bjó að alla
ævi. Sumarið eftir lá leiðin upp á
Jökuldal sem kaupakona að
Stundum höfum við leitt hug-
ann að þeirri staðreynd að tími
Önnu ömmu myndi koma en eftir
því sem árin með henni urðu fleiri
og minningarnar betri vorum við
bara ekkert svo viss um það að
hún myndi kveðja á næstunni 103
ára gömul.
Alla mína grunnskólagöngu
þegar Anna amma og Einar afi
bjuggu á Lambeyrarbrautinni
fór ég ósjaldan í hádegismat til
þeirra, enda bjuggu þau stein-
snar frá grunnskólanum á Eski-
firði. Þetta voru gæðastundir
sem ég átti með þeim ömmu og
afa og einnig Ara bróður ömmu
en hann var daglegur gestur í há-
degismat hjá ömmu. Lambeyrar-
braut 2 var mitt annað heimili
æskuárin og undi ég mér vel þar.
Fyrsta utanlandsferð okkar
systkina (Einar og Lilja) var um
sumarið 1986 en þá buðu Anna
amma og Einar afi okkur með til
Færeyja með Norrænu. Það var
óskaplega gaman fyrir pjakk eins
og mig að fá að fara til útlanda og
það með ömmu og afa en þau
voru veraldarvön og höfðu gam-
an af því að ferðast.
Eftir að við Sandra fluttum til
Danmörku heyrðum við reglu-
lega í ömmu í gegnum síma. Það
var þó sérstaklega skemmtilegt
símtalið hinn 7. ágúst 2003 þegar
ég hringdi í ömmu til að segja
henni að hún hefði fengið litla
stúlku í afmælisgjöf, en Birgitta
okkar fæddist einmitt á afmæl-
isdegi Önnu ömmu. Þær Birgitta
áttu alltaf alveg sérstakt sam-
band sem einkenndist af kær-
leika og virðingu. Þær voru ófáar
veislurnar sem þær stöllur héldu
og buðu ættingjum að koma og
fagna með sér. Afmælisóskir
þeirra voru oft af sama meiði
enda óskuðu þær sér þess alltaf
að fá föt. Þær elskuðu báðar að
vera fínar. Ein eftirminnilegasta
veislan var haldin í Vöðlavík, þá
tókum við með okkur nesti og
eyddum deginum í allsherjar
fjöruferð með tilheyrandi sulli,
hlátri og gleði.
Hún Anna amma var einstök
kona, hún átti næga hlýju í hjarta
sér fyrir sérhvert barn. Hún var
afar hrifin af öllum afkomendum
sínum og við fjölskyldan vorum
svo heppin að fá að eyða mörgum
skemmtilegum stundum með
henni. Okkur fannst gaman að
sækja hana og fá hana í heimsókn
til okkar, þá kom hún og gisti hjá
okkur yfir helgi. Hún settist oft-
ast í stól í stofunni og óskaði
strax eftir því að fá eitthvert
verkefni eins og það að brjóta
saman þvottinn eða spila við
krakkana. Guðný Edda hafði
mikið dálæti á því að spila við
ömmu enda vann hún ömmu sína
iðulega. Anna amma sat aldrei
auðum höndum, því hún notaði
sérhvert tækifæri til að grípa í
prjónana. Hún sá svo sannarlega
til þess að engum yrði kalt á
fingrum eða tám. Amma spjallaði
mikið við krakkana og forvitnað-
ist um það hvað þau væru að bar-
dúsa alla daga. Hún sagði þeim
sögur frá gömlum tímum og
minnti þau á mikilvægi þess að
vera duglegur að lesa og skrifa.
Síðustu ár höfum við verið reglu-
legir gestir á Hulduhlíð til að
heimsækja ömmu, þar tók hún
alltaf vel á móti okkur, sýndi okk-
ur gamlar myndir, gaf okkur kon-
fekt og leyfði Benedikt Alex að
nota göngugrindina sem kapp-
akstursbíl. Okkur þótti öllum
ósköp vænt um þessu dásamlegu
konu og henni þótti svo vænt um
okkur. Hvíldu í friði elsku amma,
við munum sakna þín mikið.
Einar, Sandra og börn.
Elsku amma. Tíminn þegar ég
var yngri á Einarsstöðum rifjar
bara upp góðar minningar, bobb-
spilið í kjallaranum, allar góðu
kökurnar og dönsku Andrés önd-
blöðin. Ég man líka eftir steins-
lípivélinni sem stundum var í
gangi heilu sólarhringana. Þegar
ég var 13 ára tók ég 8. bekk á
Eskifirði og var þá hjá ömmu og
afa á Einarsstöðum og ekki var
langt í skólann. Það var alltaf
fyrsta mál, eftir að við fluttum til
Danmerkur, að koma og heim-
sækja þig þegar við komum til Ís-
lands. Og takk fyrir allar ullar-
flíkurnar sem þú ert búin að
prjóna á mig og mína í gegnum
tíðina, þær hafa vermt okkur alla
tíð, eins og minningin um þig
mun gera.
Elsku besta amma, takk fyrir
góðan tíma og góðar minningar.
Sturla Gunnarsson.
Elsku besta amma mín, lang-
stærsta fyrirmynd mín í lífinu.
Takk fyrir allt, takk fyrir að
kenna mér að prjóna, takk fyrir
að kenna mér að tína ber og njóta
náttúrunnar, takk fyrir að kenna
mér að rækta garðinn, takk fyrir
að kenna mér æðruleysi.
Takk fyrir að reyna að kenna
mér að steikja kleinur og búa til
slátur, og takk fyrir að kenna
mér að baka pönnukökur.
Takk fyrir allar útilegurnar,
lautarferðirnar og sumarbú-
staðaferðirnar.
Takk fyrir öll skemmtilegu
jólaboðin.
Takk fyrir að passa mig þegar
ég var lítil og síðar börnin mín
eftir að þau fæddust.
Takk fyrir að vera alltaf svona
fín, flott og umfram allt glöð og
kát og þakklát því sem lífið hafði
upp á að bjóða.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni.
Sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
Elsku amma, takk og góða
ferð.
Anna Ragnheiður
(Anna Heiða).
Elsku langamma. Þakklæti er
það fyrsta sem okkur kemur í
huga, sitjandi hér að skrifa minn-
ingargrein um þig langamma
okkar, við á aldrinum 24-33 og öll
orðin foreldrar. Vonandi erfum
við eitthvað af langlífi þínu í
gegnum genin þín, en einnig get-
um við lært af jákvæðninni, lýs-
isinntöku og ástríku hjónaband-
inu sem þú talaðir oft um. Þú
hefur verið okkur svo kær í
gegnum árin, og minningarnar
eru óteljandi sem við eigum um
þig. Þú varst ávallt höfðingi heim
að sækja, og stundum þótti okk-
ur nóg um þegar þú hafðir staðið
í 40 mínútur og borið fram allar
kræsingarnar úr ísskápnum án
þess að við næðum að setjast nið-
ur saman og spjalla. Það var í
raun ekki fyrr en í Hulduhlíð sem
það róaðist hjá þér í uppvaskinu
og við gátum spjallað almenni-
lega saman.
Sterkasta minningin hjá okk-
ur öllum eru þau skipti sem við
fórum í berjamó með þér fyrir of-
an bæinn, komum heim með af-
raksturinn og fengum okkur ber
með rjóma og nóg af sykri.
Ásamt því að spila rommý dag-
inn út og inn, með rás eitt í bak-
grunninn.
Það er mjög minnisstætt þeg-
ar Abba fékk að gista í Svína-
skálahlíð rétt fyrir jólin. Skórinn
var settur út í glugga á efri hæð-
inni og um morguninn vaknaði
hún með tvær gjafir í þetta sinn;
eina í skónum í glugganum og
aðra í skónum í anddyrinu. Við
skildum ekkert hvað jólasveinn-
inn var að rugla þessa nóttina og
töluðum oft um þennan misskiln-
ing hjá honum.
Þú varst alltaf svo gjafmild,
það eru ótal margir sokkar, tusk-
ur og alls konar handverk sem þú
hefur gefið okkur gegnum tíðina.
Það varst alltaf svo lagin í hönd-
unum fram á síðasta dag, sama
hvað það var. Það er búið að vera
gaman að geta heimsótt þig á
Hulduhlíð, fá hlýjar móttökur og
rúnt um gangana. Það vakti
mikla lukku hjá yngstu kynslóð-
inni.
Við kveðjum þig með hlýhug
og þakklæti. Þú ert nú loksins
komin til langafa, 26 árum eftir
að hann fór, sem þú elskaðir svo
heitt og hlakkaðir alla tíð til að
hitta aftur. Stelpurnar okkar
munu muna eftir þér í gegnum
minningar og ljósmyndir enda
ekki margir sem eiga langalang-
ömmu.
Hvíl í friði elsku amma og
góða ferð.
Gylfi Frímannsson,
Laufey Frímannsdóttir,
Arnbjörg Bára
Frímannsdóttir.
Þegar flutt er á ókunnan stað
þar sem engin elsku mamma er
fyrir getur reynst erfitt að ná
Anna
Hallgrímsdóttir
Móðir okkar, tengdamóðir, systir og amma,
THEÓDÓRA ÓLADÓTTIR
frá Siglufirði,
lést á heimili sínu, hjúkrunarheimilinu Mörk,
á aðfangadag. Útför hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Dagný Ásgeirsdóttir Jens Matthíasson
Signý Höskuldsdóttir
Inga Óladóttir Sverrir Björnsson
Ásgeir Óli, Benedikt Óliver
Okkar ástkæri
SVERRIR GUNNARSSON
skipasmíðameistari,
Herjólfsgötu 38, Hafnarfirði,
lést á líknardeild Landspítalans föstudaginn
1. janúar.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju 14. janúar klukkan 13 og í
ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir.
Kristrún Stefánsdóttir
Inga María Sverrisdóttir Guðfinnur Einarsson
Svanhildur Kr. Sverrisdóttir Bjarni Bjarnason
Marteinn Sverrisson Margrét Halldórsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
RÓBERT ÓLAFUR GRÉTAR MCKEE
kennari,
Klukkubergi 18, Hafnarfirði,
andaðist fimmtudaginn 17. desember.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn
7. janúar klukkan 13. Vegna aðstæðna verður eingöngu nánasta
fjölskylda viðstödd. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hans er bent á styrktarreikning Sorgar-
miðstöðvarinnar, banki 0513-26-009753, kt. 521118-0400.
Hægt verður að nálgast streymi á mbl.is/andlat
Helga Margrét Sveinsdóttir
Anton Sveinn McKee
Karitas Irma McKee Högni Grétar Kristjánsson
Arnar Róbertsson Marín Ólafsdóttir
og barnabörn
Ástkær eiginmaður, sonur, faðir, afi, stjúpi
og tengdafaðir,
HELGI JÓHANN KRISTJÁNSSON,
Hólagötu 39, Njarðvík,
lést á heimili sínu að morgni 30. desember.
Kristjana Aðalsteinsdóttir
Aðalsteinn G. Jóhannsson Kristrún Ólöf Sigurðardóttir
Sigríður Linda Helgadóttir Sunna Rós Helgadóttir
Þórunn Maggý Guðmundsdóttir
og barnabörn
Ástkær sambýliskona, móðir, tengdamóðir
og amma,
RAGNHILDUR GUÐNADÓTTIR
garðyrkjubóndi,
Skrúð, Reykholtsdal,
lést sunnudaginn 27. desember.
Útför hennar fer fram í Reykholtskirkju föstudaginn 8. janúar
klukkan 13. Vegna fjöldatakmarkana verða einungis nánustu
aðstandendur viðstaddir en athöfninni verður streymt á
www.kvikborg.is
Sigfús Kristinn Jónsson
Einar Guðni Jónsson Josefina Morell
og barnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÁSTA GUÐLAUGSDÓTTIR,
áður Gullsmára 8,
Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Grund að kvöldi
laugardags 19. desember. Útför fer fram
frá Langholtskirkju föstudaginn 8. janúar klukkan 13.
Vegna aðstæðna verða einungis nánustu aðstandendur
viðstaddir. Streymt verður frá athöfninni á slóðinni
https://youtu.be/ztdC6wt6jwY
Alúðarþakkir til starfsfólks Grundar fyrir einstaka umhyggju og
umönnun.
Ásgeir Grétar Sigurðsson Þorgerður Gunnarsdóttir
Gunnlaugur Sigurðsson Sólveig Edda Bjarnadóttir
Anna Dóra Sigurðardóttir Hafliði Magnús Guðmundsson
Þrándur Sigurðsson Rakel Guðmundsdóttir
og fjölskyldur
Ástkær bróðir okkar,
GUÐMUNDUR ÍVARSSON ANDERSEN,
fv. rannsóknarmaður
hjá Vegagerðinni og Snigill,
lést á Landspítalanum Hringbraut
föstudaginn 1. janúar.
Ingibjörg Ívarsdóttir
Erla Ívarsdóttir
Gretar Ívarsson
og fjölskyldur