Morgunblaðið - 06.01.2021, Page 17
áttum. Blessuð börnin eru þó oft-
ast fljót að finna nýja vini. Það
var mitt lán að þar var Anna
Hallgrímsdóttir, sem nú hefur
horfið til annarra heima. Það var
einmitt á afmælisdaginn hennar
7. ágúst 1976 sem ég og fjöl-
skylda mín urðum nágrannar
þeirra Önnu og Einars Krist-
jánssonar á Lambeyrarbraut-
inni á Eskifirði. Seint og
snemma voru þau tilbúin að
rétta okkur hjálparhönd árin ell-
efu sem við vorum í næsta húsi
við þau og það verður aldrei full-
þakkað.
Anna var fædd og uppalin á
Eskifirði og hafði ætíð átt sitt
heimili þar.
Eftir lát Einars tók hún sig
upp og flutti yfir Hólmahálsinn
og satt að segja kom það mér og
mörgum öðrum á óvart. Á Reyð-
arfirði keypti hún sér notalega
íbúð í blokk og undi þar vel um
tíma eða þangað til að hún flutti
aftur til Eskifjarðar á dvalar-
heimilið Hulduhlíð þegar það var
opnað. Það var notalegt að heim-
sækja Önnu hvar sem hún bjó,
hún tók ætíð vel á móti okkur og
alltaf bar hún sig vel og var glöð
og hress.
Það var ánægjulegt að vera
gestur í fjölmennri veislu á 100
ára afmælisdegi hennar. Þar tók
hún á móti gestum kát, fín og
flott og leit út eins og sjötug
væri. Við hittumst í síðasta sinn
sl. sumar daginn eftir að hún
varð 103 ára. Veiran stjórnaði
þeirri heimsókn eins og öllum
samskiptum fólks á liðnu ári. En
við fengum að hitta hana. Hún
sat inni í stofu sinni en við úti á
veröndinni hennar öll dúðuð
teppum. Enn bar hún sig vel og
gladdist með okkur yfir að hitt-
ast skamma stund. Starfsstúlka
opnaði dyrnar aðeins svo við gát-
um talað saman en ekki máttum
við þiggja konfektmola hjá henni
og það þótti henni leitt. En
marga góða mola hef ég þegið
hjá henni vinkonu minni frá okk-
ar fyrstu kynnum.
Mér þótti vænt um hve vel
þær náðu saman, nöfnurnar
Anna og móðir mín, sem kom
stundum að sunnan í heimsókn
og til aðstoðar við okkur fjöl-
skylduna. Þær voru mér elsku
Anna og elsku mamma. Ég er
þakklát fyrir að hafa átt vináttu
Önnu og fyrir allt það sem hún
gerði fyrir mig og mína.
Með ástarþökk ertu kvödd í hinsta
sinni hér
og hlýhug allra vannstu er fengu að
kynnast þér.
Þín blessuð minning vakir og býr í
vinahjörtum
á brautir okkar stráðir þú, yl og
geislum björtum.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Við Bogi sendum Höllu, Rík-
harði, Guðnýju og fjölskyldum
þeirra innilegar samúðarkveðj-
ur.
Guð blessi minningu Önnu
Hallgrímsdóttur.
Elsa Petersen.
Anna Hallgríms og fólkið
hennar á Einarsstöðum hafa
verið hluti af lífi mínu síðan ég
fyrst man eftir. Ég lagði
snemma leið mína á stuttum fót-
um út Mölina, upp með Lamb-
eyraránni og yfir gömlu tré-
brúna til þess að hitta leiksystur
mína Guðnýju. Við lékum okkur
úti og inni undir verndarvæng
Önnu. Í minningunni var hún
alltaf glöð og í góðu skapi. Ef vit-
leysan í okkur keyrði úr hófi var
kannski sagt í sposkum tón:
Þetta er viskulegt.
Í garðinum uxu rifsberjarunn-
ar. Okkur stöllum þóttu rifsberin
herramannsmatur þótt græn
væru. Og Anna sagði glettnis-
lega: Bannsettir fuglarnir éta öll
rifsberin af trjánum mínum. Það
er ekkert eftir þegar ég ætla að
fara að gera sultu. Þetta dugði.
Við sáum rifsberin í friði eftir
það.
Eitt af því sem ég dáðist að í
fari Önnu er hvað hún talaði blæ-
brigðaríkt og fallegt mál. Ég
þekki engan sem talar fallegri ís-
lensku en hún gerði. Hikorð, tafs
eða hálfar setningar komu aldrei
úr hennar munni.
Anna kynntist sorginni ung.
Þegar hún var sex ára fórst faðir
hennar, Hallgrímur Stefánsson,
ásamt þremur öðrum með mb.
Kára frá Helgustöðum. Móðir
hennar, Sveinlaug Helgadóttir,
stóð ein eftir með sex börn. Báðar
systur Önnu dóu í blóma lífsins úr
berklum og bróðir hennar dó ung-
ur á sóttarsæng.
Á efri árum auðnaðist henni
betri heilsa og lengra líf en flest-
um. Hún hélt heimili til 97 ára
aldurs en þá fluttist hún í Huldu-
hlíð á Eskifirði. Þar tók hún á
móti gestum og gangandi í fallegu
herbergi með útsýni til Bleiksár-
fossa, þokkafull og tíguleg, fal-
lega klædd og fín um hárið og oft-
ast með eitthvað handa yngstu
kynslóðinni á prjónunum eða
heklunálinni.
Þegar mig langaði, í seinni tíð,
að vita eitthvað um gamla daga á
Eskifirði, gömul vinnubrögð eða
þjóðhætti var lausnin alltaf sú
sama: Ég spyr Önnu. Það var orð-
ið svo margt sem enginn vissi
nema hún.
Ullarnærbolirnir úr prjónavél-
inni hennar Önnu vörðu mig fyrir
vetrarkuldanum öll mín bernsku-
ár. Ég óx upp úr bolunum en yl-
urinn fylgir mér alla tíð.
Að leiðarlokum vil ég þakka
okkar löngu kynni, allt frá því að
hún benti mér ungri á hvað væri
viskulegt – eða hitt þó heldur, til
þess er hún fagnaði mér með kaffi
og konfekti í kóf-uppstyttunni í
sumar.
Guðnýju, Höllu, Ríkharð og
fjölskyldum þeirra sendi ég sam-
úðarkveðjur.
Sigurborg Hilmarsdóttir.
Hátíð ljóssins og áramótin
gera tilfinningar gjarnan litríkari
og kalla m.a. fram það fegursta og
gæfuríkasta sem borið hefur við á
lífsleiðinni. Meðal þess eru kynn-
in af samferðamönnum sem vöktu
í brjósti hugrenningar um gleði
og stolt. Ein þeirra sem sam-
fylgdin gaf var Anna Hallgríms-
dóttir brosmild og hlý. Þar fór
vönduð kona og verklagin. Næm
á það sem háleitt var og fagurt.
Hógvær miðlaði úr djúpri for-
tíð og þar af mörgu að taka. Þar á
meðal manngæsku og trúfesti.
Yfirlætislaus lagði hún samtíð
sinni til staðfestu, styrk og rétt-
sýni og slíkir máttarstólpar
hverju samfélagi kjölfesta. Vand-
fýsin valdi hún það besta úr and-
legum sjóðum en lét sér fátt um
annað finnast.
Anna fyllti öldina í aldri og gott
betur. Gerði það að hætti örlátrar
húsmóður sem fagnaði gestum
innilega sem að garði komu. Veg-
leg samkoma haldin í safnaðarsal
Eskifjarðarkirkju og vel veitt.
Hún hænd að góðri tónlist og
sótti eftir föngum tónleika og
samkomur. Æskan henni hug-
leikin og fylgst grannt með fram-
vindu.
Anna bar sig alla tíð vel, falleg
kona og bjó reisn yfir. Unni sínu
samfélagi og gladdist yfir öllum
umbótum mannlífi og framþróun
til hagsbóta. Hún eignaðist bless-
unarríkt líf, átti góða að og góðri
heilsu að fagna. Síðustu árin hlaut
hún kærkomið athvarf í Huldu-
hlíð.
Þar leið henni vel og naut að-
hlynningar eins og best gerist.
Aðeins ár liðið síðan hún rómaði
aðbúnað allan á því góða heimili
og gæfu sína að fá þess notið. Það
sem hún saknaði helst var: „að
hafa ekki nóg fyrir stafni“.
Enn þyrsti lófana í verkefni og
fingurgómarnir enn ótrúlega fim-
ir þrátt fyrir að hafa skilað drjúgu
dagsverki. Hún vildi sannarlega
sínum og sínu samfélagi allt hið
besta.
Þakklátur kveð ég hana og
sendi ástvinum og vinum innileg-
ar samúðarkveðjur. Guð blessi þá
gjöf sem hún var.
Davíð Baldursson.
MINNINGAR 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 2021
✝ Haraldur Júl-íusson fæddist á
Akureyri 18. októ-
ber 1951. Hann lést
á Sjúkrahúsi Ak-
ureyrar 27. desem-
ber 2020. Foreldrar
hans voru Júlíus
Bogason og Hrafn-
hildur Finnsdóttir,
bæði látin. Har-
aldur var næst-
yngstur sex systk-
ina: Vilborg látin, Finnbogi
Brynjar látinn, Jónína Guðný
látin, Svandís búsett í Ástralíu
og Stefán búsettur á Akureyri.
Haraldur giftist Halldóru Ei-
ríksdóttur 21. janúar 1971, börn
þeirra eru: 1) Eiríkur, f. 28. apr-
íl 1970, sonur hans Sigfús Orri,
f. 22 febrúar 2001. 2) Júlíus, f.
28. apríl 1970, d. 27. mars 1996.
3) Hrafnhildur, f. 29. júlí 1975,
gift Elvari Thorarensen, börn
þeirra Alexandra
Ýr, f. 13. október
1994, Júlíus Fann-
ar, f. 24. júní 1998,
og Elvar Hólm, f.
29. apríl 2004.
Haraldur lærði
húsasmíði í Iðn-
skólanum á Ak-
ureyri og starfaði
við það allt þar til
heilsan brást.
Jarðarförin fer
fram frá Akureyrarkirkju í dag,
6. janúar 2021, klukkan 13.30
Sökum aðstæðna verða að-
eins nánustu ættingjar við-
staddir en hægt verður að horfa
á Jarðarfarir á Akureyrarkirkju
– Beinar útsendingar. Stytt slóð
á streymið:
https://tinyurl.com/yybfk6f4/.
Hægt er að nálgast virkan
hlekk á streymið á:
https://www.mbl.is/andlat/.
Það er óraunverulegt að hugsa
til þess að pabbi, Haraldur Júl-
íusson, sé látinn aðeins 69 ára að
aldri. Pabbi barðist hetjulega við
erfiðan lungnasjúkdóm og þurfti
að lúta í lægra haldi fyrir honum
27. desember síðastliðinn.
Pabbi var frábær hlustandi og
minn helsti stuðningsmaður sem
sýndi áhuga á öllu sem ég gerði.
Við gátum rætt saman svo tím-
unum skipti um allt milli himins
og jarðar og aldrei skorti okkur
umræðuefni. Pabbi var húsa-
smíðameistari og eru þau ófá hús-
in á Akureyri sem hann byggði.
Þau hús ræddum við oft þar sem
pabbi deildi áhugamáli mínu um
byggingarstíl og fallega innréttuð
hús. Hann studdi okkur systkinin
og ráðlagði okkur og aldrei kom
maður að tómum kofunum, hvort
sem það var varðandi fram-
kvæmdir, hönnun, fatastíl eða
annað, enda hafði hann sterkar
skoðanir sem hann lá ekki á. Það
var einn af hans sterku kostum að
þú vissir alltaf hvar þú hafðir
hann. Hann var hreinn og beinn
og heiðarlegri mann var ekki
hægt að finna.
Í seinni tíð bjuggu foreldar
mínir hjá okkur hjónum og er sá
tími ómetanlegur fyrir okkur öll.
Aldrei slettist upp á vinskapinn og
sambúðin gerði það að verkum að
tengslin okkar á milli urðu enn
sterkari þótt þau væru sterk fyrir.
Börnin mín eru heppin að hafa bú-
ið í nánum samskiptum við for-
eldra mína og munu þau tengsl
aldrei rofna.
Pabbi var mikill og einstaklega
góður golfspilari og meðlimur í
Golfklúbbi Akureyrar allt til enda.
Allir hér í denn þekktu pabba og
eins og einn skólabróðir minn
sagði eitt sinn þegar hann frétti að
Halli Júll, eins og hann var kall-
aður, væri pabbi minn: „Hann er
legend.“ Þegar heilsan var farin
að daprast og pabbi var kominn
með súrefni þá gafst hann ekki
upp heldur fékk sér golfbíl því í
golf skyldi hann fara. Golfklúbbur
Akureyrar hefur því nú misst góð-
an félaga úr sínum röðum.
Elsku pabbi, hafðu þökk fyrir
allt og allt. Ég hef fulla trú á að nú
sért þú kominn á teig á fallegum
golfvelli með Júlla bróður og rauð-
vín í hendi. Þar tekur þú á móti
okkur hinum þegar okkar tími
kemur.
Þín dóttir,
Hildur.
Afi minn og ein af mínum
helstu fyrirmyndum hefur nú
kvatt þennan heim.
Orð fá því varla lýst hversu
mikið mér þykir vænt um afa
Halla og hversu mikil áhrif hann
hefur haft á mig.
Ég hef alltaf átt góð tengsl við
afa og á yngri árum vaknaði áhugi
hjá mér á golfi, þar sem afi var
mikill golfspilari og var hann einn
sá besti sem ég veit um, þrátt fyrir
veikindi fór hann samt í golf og lét
ekkert stoppa sig. Hann keppti á
mótum og þrátt fyrir að vera með
slæman lungnasjúkdóm vann
hann langoftast öll þau mót sem
hann tók þátt í, eða eins og hann
orðaði það: „rústaði þeim“!
Afi gafst aldrei upp og hefur
hann kennt mér að gefast aldrei
upp á því sem ég vil gera.
Ég var svo heppin að afi og
amma áttu heima hjá okkur um
stund á neðri hæðinni svo alltaf
gat ég kíkt niður í kaffi og rætt um
daginn og veginn. Alltaf gat ég
leitað ráða hjá afa ef eitthvað bját-
aði á, afi var alltaf hreinskilinn og
sagði manni alltaf það sem honum
fannst. Hann var alltaf góður og á
ég eftir að sakna þess að heyra
sögunar hans, hann átti svo marg-
ar góðar sögur að segja.
Afi Halli lét gott af sér leiða og
bætti líf þeirra sem á vegi hans
urðu.
Vertu sæll afi minn. Ég syrgi
þig en góðu minningarnar og
þakklætið eru sorginni yfirsterk-
ari. Þú hefur markað líf mitt og
fjölda annarra og sá sem auðgar
líf annarra hefur vissulega lifað
góðu og þýðingarmiklu lífi.
Takk fyrir samveruna, skiln-
inginn, gleðina og umhyggjuna.
Ég trúi því að núna sértu á
flottasta golfvellinum með rauðvín
í hendi.
Alexandra.
Haraldur Júlíusson
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
J. SÆVAR GUÐMUNDSSON,
Ástjörn 2c,
Selfossi,
lést þriðjudaginn 29. desember á líknardeild
HSU. Útför hans fer fram frá Selfosskirkju
mánudaginn 11. janúar klukkan 14. Í ljósi aðstæðna munu
einungis nánustu aðstandendur vera viðstaddir athöfnina.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
Þóra Björg Ögmundsdóttir
Valgerður Sævarsdóttir Halldór Páll Halldórsson
V. Helga Valgeirsdóttir Brynjar Hallmannsson
barnabörn og fjölskyldur þeirra
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
STEINUNN RUNÓLFSDÓTTIR,
Dvalarheimilinu Ási, Hveragerði,
áður Réttarheiði 4, Hveragerði,
lést á Hjúkrunarheimilinu Ási, Hveragerði
á nýársdag, 1. janúar. Útförin fer fram frá Hveragerðiskirkju
föstudaginn 8. janúar klukkan 14. Vegna aðstæðna í
þjóðfélaginu verða aðeins nánustu ættingjar viðstaddir.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Dvalarheimilisins Áss í
Hveragerði fyrir yndislega umönnun.
Þórður Ingólfsson Málfríður Mjöll Finnsdóttir
Guðrún Ingólfsdóttir Pétur Benediktsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur faðir, tengdafaðir, bróðir, mágur
og frændi,
SIGURGEIR BJARNI GUÐMANNSSON,
fyrrverandi framkvæmdastjóri
Íþróttabandalags Reykjavíkur,
lést á Vífilsstöðum miðvikudaginn
30. desember. Jarðarförin fer fram í kyrrþey.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast hans er
bent á Samtök sykursjúkra.
Rannveig Sigurgeirsdóttir Sverrir Jónsson
Elín Guðmannsdóttir
Bára Guðmannsdóttir
Alda Guðmannsdóttir
Anna S. Guðmundsdóttir
Guðmann Sigurgeir, Bára og Bára Vilborg
systkinabörn og aðrir aðstandendur
Ástkær eiginmaður, faðir, afi, langafi og
langalangafi,
JÓN HALLDÓRSSON,
Þrastarási 44, Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
laugardaginn 26. desember. Útförin fer
fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 8. janúar klukkan 13.
Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu aðstandendur
viðstaddir athöfnina. Athöfninni verður streymt á
https://livestream.com/accounts/5108236/events/9471837
Ragnhildur Jónsdóttir
María Sigrún Jónsdóttir Þorsteinn Gíslason
Sigrún Jónsdóttir
Hrafnhildur Jónsdóttir Eyvindur Gunnarsson
Úlfar Jónsson Helga S. Sigurgeirsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
BJARNI HELGI KRISTBJÖRNSSON,
verður jarðsunginn frá Áskirkju föstudaginn
8. janúar klukkan 11. Í ljósi aðstæðna verða
aðeins nánustu ættingjar og vinir viðstaddir.
Færum starfsfólki hjúkrunarheimilisins Seltjarnar þakkir fyrir
góða umönnun. Fjölskyldan þakkar auðsýnda samúð og
vinarhug.
Guðrún Inga Bjarnadóttir
Kristbjörn Bjarnason Steinunn Björg Jónsdóttir
Valgerður Bjarnadóttir Óskar G. Hallgrímsson
Ásta S. Ólafsdóttir Henrik Tryggvason
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær sonur minn, bróðir og mágur,
RÚTUR SIGURÐUR RÚTSSON
vélvirki,
Svalbarði 12, Hafnarfirði,
lést á heimili sínu 30. desember. Útför
Sigurðar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
föstudaginn 15. janúar klukkan 13.
Vegna aðstæðna í samfélaginu verða eingöngu nánustu
aðstandendur viðstaddir. Streymi frá athöfninni verður á
https://youtu.be/ijuYfgwF4CA
Sigríður Karlsdóttir
Karl Rútsson Jóna Pálína Grímsdóttir
Anna Þorsteinsdóttir
Óskar L. Rútsson Helena Leifsdóttir
Sumarliði J. Rútsson Kristjana G. Guðbergsdóttir
Ingi B. Rútsson Gréta Rögnvaldsdóttir