Morgunblaðið - 06.01.2021, Qupperneq 20
20 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 2021
fyrir heimilið
Sendum
um
land allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Fallegar vörur
Stóll á snúningsfæti í ítölsku nautsleðri
75 cm á breidd
Verð frá 139.000 kr.
Loksins fáanlegir aftur,
í mörgum litum
50 ára Kári ólst upp
á Egilsstöðum en býr í
Vestmannaeyjum.
Hann er íþróttakenn-
ari að mennt en er
verkstjóri í fiskvinnsl-
unni Leo Seafood.
Kári er í Kiwanis-
klúbbnum Helgafelli, Tippklúbbnum
Þumalputtar og Mótorhjólaklúbbnum
Drullusokkar.
Maki: Lóa Sigurðardóttir, f. 1966,
kennari í Grunnskóla Vestmannaeyja.
Börn: Gabríel, f. 1996, og stjúpbörn
eru Ágúst Sævar, f. 1984, Sigþór, f.
1990, og Brynjar og Aníta, f. 1994.
Foreldrar: Hrafnkell Kárason, f. 1938,
vélvirki og Dröfn Jónsdóttir, f. 1940,
húsmóðir. Þau eru búsett í Reykjavík.
Kári Hrafn
Hrafnkelsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Reyndu að nýta áhrif þín á yfirboð-
ara eða stjórnendur til þess að gera öðr-
um gott. Forðastu allar fjárfestingar í dag.
20. apríl - 20. maí
Naut Fólk kemur þér á óvart með örlæti
eða er jafnvel furðulega vinalegt. Taktu því
fagnandi því allt er breytingum háð.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Heimilið er þinn griðastaður þar
sem naprir vindar lífsins ná ekki til þín.
Reyndu að skipuleggja tíma þinn vand-
lega.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Forvitni er þér eðlislæg og þú fell-
ur aftur og aftur fyrir hinu eilífa nýjabrumi.
Nú er rétti tíminn til þess að gera lang-
tímaáætlanir fyrir heimilið og vinnuna.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Margir möguleikar eru í stöðunni
varðandi samband sem erfiðleikar eru til
staðar í. Starf þitt felst í að einbeita sér að
því hvað á að gera, ekki hvernig.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Ástríðan tekur völdin hjá þér næstu
daga. Finndu þér tómstundagaman sem
þú getur látið lyfta þér upp í frítíma þín-
um.
23. sept. - 22. okt.
Vog Ef þú þarft að leita aðstoðar einhvers
er þetta góður dagur til þess. Gefðu róm-
antískum elskhuga alla þína ást í stað
þess að flækja málin.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Láttu ekki skapið hlaupa með
þig í gönur því þá gæti illa farið. Samtöl
við systkini fá aukið vægi. Eitt lítið bros
getur lýst upp langa stund.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú ættir að fara með löndum í
dag, því þú ert illa undir það búinn að
lenda í einhverju orðaskaki við vinnu-
félaga. Sýndu sveigjanleika.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Segðu hefðbundnum við-
horfum stríð á hendur, nú er þörf fyrir
ferskar hugmyndir. Erfitt samtal sem þú
kvíðir mun reynast þér auðvelt.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Vertu ekki að streða við hlutina
einn í þínu horni því nú er það hópstarfið
sem gildir. Gefðu þér því góðan tíma svo
allt fari nú á besta veg.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Nú munu hlutirnir gerast hratt í lífi
þínu. Sjálfsöryggi þitt hefur aukist og því
áttu auðveldara með að ná markmiðum
þínum en áður.
S
vanborg Egilsdóttir fædd-
ist 6. janúar 1946 á Litlu-
Reykjum í Hraungerð-
ishreppi hjá móðurfor-
eldrum sínum. „Fyrstu
sex vikurnar var búið um mig í
efstu kommóðuskúffunni sem var
látin vera uppi á kommóðunni sem í
herberginu var.“ Foreldrar Svan-
borgar bjuggu þá á Selfossi og þar
ólst hún upp, elst í stórum systkina-
hópi.
Svanborg gekk í Grunnskóla Sel-
foss. „Svo lauk ég gagnfræðaskóla
verknáms af því ég ætlaði nefnilega
að verða handavinnukennari, en það
varð ekki meira úr því.“ Hún var
ritari sýslumanns Árnesinga, Páls
Hallgrímssonar, 1966-1976. „Það er
gaman að nefna að Páll var síðasti
konungsskipaði sýslumaðurinn á Ís-
landi. Svo fór ég í ljósmóðurnám,
maðurinn minn fór í skóla í Reykja-
vík og þá vildi ég líka fara í skóla.“
Hún útskrifaðist frá Ljósmæðra-
skóla Íslands árið 1978.
Svanborg starfaði á fæðingar-
deild Landspítalans 1978-1982 og
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
1982-2011, þar af síðustu 10 árin
sem yfirljósmóðir. „Ég tók á móti
600-700 börnum, það er eins og eitt
lítið bæjarfélag. En þegar ég varð
yfirljósmóðir þá er ég ljósmóðir nr.
2 og tók þá bara á móti 10 börnum á
ári í stað kannski 30-40.“ Svanborg
vann einnig við sumarafleysingar á
St. Fransiskus-spítalanum í
Stykkishólmi 1994 og 1995. „Mér
fannst þetta svo gaman að ég vann í
sumarfríunum sitt hvorn mánuðinn
þessi tvö ár, en það er mikið sóst
eftir vönum ljósmæðrum á sumrin.“
Svanborg var formaður ritnefnd-
ar Ljósmæðrablaðsins 1980-1982,
sat í kjaranefnd BSRB 1979-1981
og hefur starfað í ýmsum nefndum
á vegum Ljósmæðrafélags Íslands.
Hún sat í stjórn Samtaka heilbrigð-
isstétta, þar af formaður í fjögur ár,
1991-1997, sat í Heilbrigðisnefnd
Suðurlands 1982-1994 og aftur
2010-2018 þá sem varaformaður.
„Þegar ég fór að taka saman störf
mín að félagsmálum þá finnst mér
þetta svo mikið, ég sat t.d. 20 ár í
heilbrigðisnefnd og skil ekkert í því
hvernig ég hafði tíma fyrir þetta allt
saman.“
Í nokkur ár hefur Svanborg
skipulagt árlegar sumarferðir fyrir
ljósmæður 60 plús um uppsveitir
Árnessýslu og Rangárvallasýslu.
„Við hjónin höfum verið dugleg að
ferðast um landið á sumrin, þvert
og endilangt, og ég er með Vega-
handbókina hjá mér sem er ágætis-
Svanborg Egilsdóttir ljósmóðir – 75 ára
Fjölskyldan Efri röð frá vinstri: Arnar Freyr, Guðmundur Rúnar, Sigfús, Heidrun og Helga. Neðri röð frá vinstri:
Svanborg, Sigmar og Matthías, samankomin í Eyrarbakkafjöru árið 2017.
Tók á móti einu bæjarfélagi
Ljósmæður Útskriftarhópurinn 1978 samankominn síðastliðið
sumar í Grasagarðinum. Svanborg er lengst til hægri í efri röð. Afmælisbarnið Svanborg í vinnunni.
leið til að ferðast um landið. Svo
höfum við farið til margra borga í
Evrópu, sonur okkar býr í Þýska-
landi og við förum árlega til hans.“
Svanborg stundaði nám í gler-
Hlutavelta
Cristina Elena Furdi safnaði 10.350
krónum til styrktar Rauða krossi Ís-
lands. Rauði krossinn þakkar henni
kærlega fyrir hennar framlag til
mannúðarmála.
30 ára Tinna Kristín
er frá Hítardal á Mýr-
um, en býr í Kópa-
vogi. Hún vinnur á
leikskólanum Læk í
Kópavogi og er nemi
í kvikmyndafræðum
við Háskóla Íslands.
Tinna er skákkona og hefur oft lent í
verðlaunasætum á Íslandsmótum
kvenna í skák. Hún er í landsliðshópi
kvenna og hefur keppt á
ólympíumótum.
Systkini: Leifur, f. 1989, og Hulda Rún,
f. 1996.
Foreldrar: Finnbogi Leifsson, f. 1955,
bóndi í Hítardal, og Erla Dögg Ár-
mannsdóttir, f. 1964, aðalbókari hjá
Samverki í Kópavogi, búsett í Hítardal.
Tinna Kristín
Finnbogadóttir
Til hamingju með daginn