Morgunblaðið - 06.01.2021, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 06.01.2021, Qupperneq 23
ÍÞRÓTTIR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 2021  Markvörðurinn Patrik Sigurður Gunnarsson er genginn til liðs við danska knattspyrnufélagið Silkeborg en þetta staðfesti danska félagið á samfélagsmiðlum sínum í gær. Patrik kemur til félagsins á láni frá Brentford og skrifaði hann undir samning sem gildir út tímabilið. Silkeborg er í þriðja sæti dönsku B-deildarinnar með 31 stig. Stefán Teitur Þórðarson leikur með Silkeborg.  Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur hefur gert samning við Bandaríkja- manninn Antonio Hester og mun hann leika með liðinu út þessa leiktíð. Leik- maðurinn staðfesti tíðindin við Karf- an.is. Hester lék afar vel með Tinda- stóli í tvö tímabil og varð bikarmeistari með Skagfirðingum árið 2018.  Sigurvin Reynisson verður áfram í herbúðum Gróttu sem féll úr efstu deild karla í knattspyrnu á nýliðnu ári. Sigurvin hefur gert nýjan samning við Gróttu sem gildir út keppnistímabilið 2022 en Sigurvin hefur verið í röðum félagsins síðan 2015. Sigurvin var fyrirliði Gróttu í sumar og einnig tvö árin þar á undan þegar liðið vann sig upp um tvær deildir á Íslandsmótinu.  Körfuknattleiksdeild Hauka hefur gert samninga við þá Brian Fitzpat- rick og Earvin Morris um að leika með liðinu út tímabilið. Morris, sem er 26 ára skotbakvörður, hefur leikið í Finn- landi, Grikklandi, Svíþjóð og í Póllandi. Framherjinn Fitzpatrick hefur leikið með liðum í Argentínu, Svíþjóð, Tékk- landi, Grikklandi, Japan og í Danmörku en hann er 31 árs.  Henrik Toft Hansen, leikmaður PSG í Frakklandi og danska landsliðsins í handknattleik, er með kórónuveiruna og er óvíst að hann verði klár í slaginn fyrir EM í handbolta í Egyptalandi sem hefst 13. janúar.  Handknattleiksdómararnir Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæma leik Hollands og Slóveníu í und- ankeppni EM karla. Erlingur Rich- ardsson er þjálfari hollenska liðsins.  Enska knattspyrnufélagið Man- chester City tilkynnti í gærkvöldi að Colin Bell sé látinn 74 ára að aldri. Bell lék stórt hlutverk hjá City er liðið varð Evrópumeistari bikarhafa 1970 og Englandsmeistari árið 1968. Lék hann 394 leiki með liðinu frá 1966 til 1979 og skoraði níu mörk.  Slóveninn Luka Doncic átti sann- kallaðan stórleik þegar liðs hans Dall- as Mavericks heimsótti Houston Roc- kets í bandarísku NBA-deildinni í körfuknattleik. Doncic var með þre- falda tvennu, skoraði 33 stig, tók sex- tán fráköst og gaf ellefu stoðsend- ingar í 113:100-sigri Dallas. Hann varð með þessu sá fjórði fljótasti í sögu NBA til að skora þúsund stig, taka þúsund frá- köst og eiga þús- und stoðsend- ingar í deildinni en hann náði þeim áfanga í 139 leikjum. Á undan honum eru aðeins Oscar Robertson (98 leikir), Ben Sim- mons (123 leikir) og Magic John- son (126 leikir). Eitt ogannað gerði mjög góða hluti hjá Arsenal og ég veit að hann getur gert mjög góða hluti með Bordeaux líka því leik- mannahópurinn er virkilega öflugur. Ég hef tekið skynsamlegar ákvarð- anir á mínum ferli og vonandi heldur það áfram.“ Áherslan á andlegan styrk Lyon og PSG hafa haft mikla yfir- burði í Frakklandi á undanförnum árum en Bordeaux ætlar sér að berj- ast um franska meistaratitilinn við risana tvo á næstu árum. „Martínez lagði mikla áherslu á andlegan styrk í öllum samtölunum mínum við hann og það er stærsti munurinn að hans sögn á topp- liðunum tveimur, Lyon og PSG, og öðrum liðum í frönsku 1. deildinni. Leikbreytirinn sem flestir leikmenn þessara liða hafa er andlegur styrk- ur inni á vellinum og þó að leik- mannahópur Bordeaux sé vissulega sterkur andlega vantar aðeins upp á að ná efstu liðum deildarinnar. Eins og ég kom inn á áðan þá munar samt sem áður ekki miklu á liðunum og Bordeaux gerði sem dæmi markalaust jafntefli gegn PSG í deildinni í september. Bordeaux tapaði svo á útivelli gegn Lyon með einu marki nokkrum dögum síðar þannig að munurinn er ekki svo mik- ill. Fyrsti leikur liðsins í janúar eftir vetrarfrí verður gegn PSG og það væri gaman að fá tækifæri til þess að spreyta sig í þeim leik.“ Mun meiri samkeppni Lið Bordeaux er eitt það sterk- asta í Evrópu en Svava vonast til þess að vinna sér inn sæti í byrj- unarliði franska liðsins, sem og ís- lenska landsliðsins. „Samkeppnin hérna er mun meiri en hjá Kristianstad og ég gerði mér grein fyrir því áður en ég ákvað að skipta yfir. Ég þarf þess vegna bara að standa mig á æfingum, nýta þau tækifæri sem ég fæ, og vonandi skil- ar það mér tækifæri í byrjunarlið- inu. Þjálfarinn er ekki bara að hugsa mig sem framherja heldur í allar stöðurnar fremst á vellinum og það eykur möguleika mína líka á því að spila. Mig langar að spila meira með ís- lenska landsliðinu og núna er ég komin í sterkara lið í sterkari deild. Ég þarf fyrst og fremst að standa mig vel með mínu félagsliði til þess að auka möguleika mína á sæti í landsliðinu og vonandi gengur það eftir. Þegar allt kemur til alls fannst mér þetta góður tímapunktur fyrir mig persónulega til þess að breyta til og þetta var tækifæri sem var of erfitt að hafna,“ bætti Svava við. Tækifæri í Frakklandi sem ekki var hægt að hafna  Svava Rós skrifaði undir átján mánaða samning við 1. deildar lið Bordeaux Ljósmynd/Bordeaux 2022 Svava Rós Guðmundsdóttir er komin til þriðja besta liðs Frakklands eftir tvö tímabil í Svíþjóð. FRAKKLAND Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Svava Rós Guðmundsdóttir er tilbú- in í næstu áskorun á sínum knatt- spyrnuferli en hún skrifaði undir átján mánaða samning við Bordeaux í frönsku 1. deildinni á mánudaginn síðasta. Sóknarkonan, sem er 25 ára göm- ul, kemur til franska félagsins frá Kristianstad í Svíþjóð þar sem hún hefur leikið frá 2019 en samningur hennar í Svíþjóð rann út um áramót- in. Bordeaux er þriðja besta lið Frakklands þessa dagana en liðið er í þriðja sæti frönsku 1. deildarinnar með 23 stig, 7 stigum minna en Frakklands- og Evrópumeistarar Lyon sem er í öðru sæti deild- arinnar, og 8 stigum minna en topp- lið PSG. „Ég er ótrúlega glöð að þetta sé loksins komið á hreint,“ sagði Svava Rós í samtali við Morgunblaðið. „Það er eitthvað síðan ég tók ákvörðun um að ganga til liðs við Bordeaux. Þeir vildu hins vegar gera þetta á formlegan hátt og ég skrifaði þess vegna ekki undir samning við félagið fyrr en í gær [fyrradag] þeg- ar ég var mætt til Frakklands. Það var gott að koma þessu frá og núna get ég farið að einbeita mér að fót- boltanum á nýjan leik. Það voru nokkur lið sem sýndu mér áhuga en eftir að hafa rætt við þjálfara Bordeaux, Pedro Martínez, var ég nokkuð viss um hvað ég vildi gera. Franska 1. deildin er hrikalega sterk og tvö efstu liðin hérna eru á meðal þeirra bestu í heiminum í dag. Bordeaux er aðeins á eftir þeim eins og staðan er í dag en samt sem áður er bilið alltaf að minnka. Þegar allt kom til alls leist mér virkilega vel á allt í kringum félagið, hvernig þjálfararnir lögðu hlutina upp og hvaða hugmyndir þeir höfðu um framtíð klúbbsins,“ bætti Svava við. Skynsamlegar ákvarðanir Svava hélt út í atvinnumennsku árið 2018 þegar hún gekk til liðs við Röa í Noregi en þar sló hún rækilega í gegn áður en hún samdi við Kristi- anstad í sænsku úrvalsdeildinni. „Ég pæli virkilega vel í öllu því sem ég geri og tek mér fyrir hendur. Ég hef því verið lítið í því að taka alltaf það fyrsta sem býðst sem dæmi og kýla bara á það. Eins þá þurfa ákveðnir hlutir að vera á hreinu og ég hef reynt að kynna mér þjálfara þeirra liða sem ég er að fara að spila með nokkuð vel áður en ég skrifa undir samning. Þjálfari Bordeaux stýrði Arsenal frá 2014 til ársins 2017 þegar að þær urðu bikarmeistarar í tvígang. Hann Ísak Bergmann Jóhannesson, leik- maður sænska knattspyrnufélags- ins Norrköping, gæti verið á leið til Red Bull Salzburg í Austurríki að sögn Hjörvars Hafliðasonar. Ísak er einn efnilegasti knattspyrnu- maður landsins og þrátt fyrir að vera einungis 17 ára gamall var hann einn besti leikmaður sænska úrvalsdeildarliðsins á tímabilinu. Þá lék hann sinn fyrsta A-landsleik í nóvember á síðasta ári þegar hann kom inn á sem varamaður í 4:0-tapi gegn Englandi í Þjóðadeild UEFA á Wembley. Ísak líklega til Salzburg Ljósmynd/Norrköping Umtalaður Ísak Bergmann Jóhann- esson er sífellt í umræðunni. Varnarmaðurinn Birkir Valur Jónsson er kominn aftur til úrvals- deildarliðs HK í knattspyrnu eftir hálfs árs lánsdvöl hjá Spartak Trnava í Slóvakíu. Birkir fór til slóvakíska félagsins í lok júlí eftir að hafa leikið fyrstu níu leiki Kópavogsliðsins í deild- inni. Hann lék fjóra leiki með liðinu í efstu deildinni þar í landi, tvo þeirra í byrjunarliðinu, og skilur við það í fimmta sætinu. Birkir Val- ur, sem er 22 ára gamall, hefur ver- ið fastamaður í liði HK sem hægri bakvörður undanfarin ár. HK endurheimtir Birki frá Slóvakíu Morgunblaðið/Sigurður Heimkoma Birkir Valur Jónsson spilar með HK næsta sumar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.