Morgunblaðið - 06.01.2021, Blaðsíða 24
24 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 2021
Annað af aðeins tveimur svoköll-
uðum Gamlatestamentis-mál-
verkum hollenska meistarans Rem-
brants van Rijn sem enn eru í eigu
einkaaðila, ekki í safni, verður selt
á uppboði hjá Sotheby’s í New
York síðar í mánuðinum. Mál-
verkið Abraham og englarnir er
lítið, ekki nema 16 x 21 cm, en
mun kosta sitt; það er metið á allt
að 3,8 milljarða króna. Síðast var
verkið boðið til sölu á almennum
markaði árið 1848 og selt fyrir 64
pund.
Í The Art Newspaper er haft eftir
yfirmanni hjá Sotheby’s að þetta sé
eitt síðasta tækifærið til að eignast
mikilvægt verk eftir Rembrandt.
Fyrstu heimildir um verkið er að
finna í lýsingu tveggja kaupmanna í
Amsterdam á því árið 1647.
Síðustu verk Rembrandts sem
hafa verið seld á uppboðum hafa
verið keypt af söfnum í Asíu.
Abraham og englarnir Málverk Rembrandts frá árinu 1646 er aðeins 21 cm
á breidd en metið á nær fjóra milljarða króna og verður selt í mánuðinum.
Englamálverk Rem-
brandts á uppboð
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Smekkleysa 33 1/3 nefnist nýútkom-
in bók en tilefni útgáfunnar er aldar-
þriðjungsafmæli Smekkleysu en ná-
kvæmur aldur hennar við útgáfu
bókarinnar var 33 ár og einn þriðji
úr ári, eins og titill bókarinnar ber
með sér.
„Smekkleysa hefur um þriggja
áratuga skeið verið drifkraftur
frumsköpunar í íslenskri tónlist og
orðlist og stuðl-
að að varðveislu
menningar-
verðmæta á sviði
orðsins og tón-
listarinnar.
Smekkleysa hef-
ur verið útgáfa
og plötubúð,
staðið fyrir tón-
leikum og sýn-
ingum og fjölda
viðburða og nú,
33 árum og 300 útgáfum síðar, efnir
Smekkleysa til útgáfu bókar um
leyndarmál sín og gróusögur þar
sem ekkert er dregið undan!“ segir í
tilkynningu.
Bókin er ríkulega myndskreytt og
eiga margir þekktir listamenn efni í
henni. Flestar ljósmyndanna eru eft-
ir Björgu Sveinsdóttur og eru marg-
ar ljósmynda bókarinnar fáséðar og í
greinum fjallað að mestu um fá-
heyrða tónlist og annað fágæti, eins
og því er lýst.
Meðal þeirra sem eiga efni í bók-
inni eru Árni Matthíasson, Björg
Sveinsdóttir, Arnar Eggert Thor-
oddsen, Úlfhildur Dagsdóttir, Jó-
hamar, Sjón, Þór Eldon, Bogomil
Font, Margrét Örnólfsdóttir, Bragi
Ólafsson, Einar Örn Benediktsson,
Sigtryggur Baldursson, Adler Pap-
foti, Didda Jónsdóttir, Jón Gnarr,
Guðmundur Steingrímsson, Birkir
Björnsson, Haraldur Jónsson,
Gunnar Hjálmarsson, Halldóra
Geirharðsdóttir, Sigurður Björn
Blöndal, Óskar Jónasson, Páll Tha-
yer, Magga Stína, Sigurjón Kjart-
ansson, Óttarr Proppé, Ásmundur
Jónsson og Ólafur J. Engilbertsson
en sá síðastnefni sá jafnframt um rit-
stjórn bókarinnar.
Safnað í sarpinn
„Þetta hefur í raun verið mörg ár í
vinnslu og er að miklu leyti byggt á
ritinu sem kom út samhliða sýning-
unni sem var
gerð árið 2003,“
segir Ólafur um
ritið og á þar við
sýninguna Hum-
ar eða frægð –
Smekkleysa í 16
ár í Listasafni
Reykjavíkur,
Hafnarhúsi. Ólaf-
ur var sýningarstjóri hennar og sýn-
ingarskráin ritið sem hann nefnir.
„Síðan bættist við meira efni og bita-
stæðari greinar eins og t.d. ítarleg
grein eftir Arnar Eggert Thorodd-
ssen sem var reyndar skrifuð árið
2011. Það hefur safnast í þennan sarp
síðustu 17 ár, frá því við tökum saman
efni fyrir sýninguna 2003 sem var líka
sett upp í London, Kaupmannahöfn
og í Færeyjum,“ segir Ólafur og nefn-
ir hina ýmsu listamenn sem greinar
eiga í hinu nýja riti.
Ólafur segir að í bókinni megi finna
minningar og glefsur úr sögu Smekk-
leysu og þá sérstaklega frá fyrstu ár-
um hennar, aðdraganda og senunni
sem þá var á níunda áratugnum.
„Hvernig þetta verður til í kringum
það að Ásmundur [Jónsson] og Guðni
Rúnar [Agnarsson] voru með þáttinn
Áfanga á Rás 1 um það leyti sem Rás
2 var að verða til. Í síðasta þættinum
varð Kukl til sem hljómsveit og það er
eiginlega þá sem þessi grunnur er
lagður að stofnun Smekkleysu. Þá
verður þessi samruni á t.d. Purrki Pil-
nikk, Þey og Medúsu-hópnum og síð-
an Björk úr Tappa tíkarrassi. Þetta
rennur saman og Grammið verður
síðan athvarfið næstu árin. Þetta
þróast yfir í stofnun Sykurmolanna
þremur árum síðar,“ segir Ólafur frá
en Smekkleysa er stofnuð árið 1986 og
Sykurmolarnir í kjölfarið.
Markaðsfræðin skoruð á hólm
„Sykurmolarnir voru stofnaðir sem
léttúðug sveit til að fjármagna eitthvað
sem fólk vildi gefa út en bjóst ekki við
að selja. Það var eiginlega hugmynda-
fræðin, þetta var leið til að skora þessa
markaðsfræði á hólm og ganga til liðs
við þennan meginstraum en það kom
kannski á óvart hvað þetta gekk upp af
því þetta var gert með svona húmor, til
að gera grín að poppmenningunni,“
segir Ólafur. Stofnun Smekkleysu hafi
því verið andóf gegn markaðsvæðingu
lista og þá einkum tónlistar.
Ólafur segir ýmsa anga hafa sprott-
ið upp úr Smekkleysu og nefnir sem
dæmi að fyrsta bók Jóns Gnarrs hafi
verið gefin út af Smekkleysu en
Smekkleysa gaf út bækur jafnt sem
plötur. Ólafur nefnir einnig bækur Jó-
hamars. „Þetta var beint framhald af
því hvernig þetta hafði gengið fyrir
sig hjá t.d. Medúsu og fleirum, hver
og einn var bara að fylgja sínu eftir.
Þannig hefur Smekkleysa virkað að
mestu leyti, sem einstaklings-
framtak,“ bendir Ólafur á.
Upptaktur að Fóstbræðrum
Björg Sveinsdóttir á flestar ljós-
myndir bókarinnar, sem fyrr segir,
og hafa margar hverjar sjaldan og
jafnvel aldrei verið birtar. Einnig eru
í bókinni veggspjöld og ljósmyndir
eftir aðra sem hafa hvergi birst áður
og eru því mikið fágæti. Má til dæmis
sjá myndir af skemmtikvöldum
Smekkleysu, t.d. af grínatriði Stefáns
Jónssonar og Óskars Jónassonar og
bendir Ólafur á að þau hafi verið að
vissu leyti, ásamt póstkortum
Smekkleysu, upptaktur að Fóst-
bræðra-gríninu góðkunna þar sem
Sigurjón Kjartansson og Jón Gnarr
hafi líka komið fram, og dragsjó og
fleira nýmeti verið á boðstólum.
Ljósmynd/Árni Matthíasson
Í Ameríku Úr ferð Risaeðlunnar, Ham og Bless 1989. Mynd tekin fyrir utan barinn Downtown Beirut í New York.
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Grín Frá Smekkleysukvöldi 3. sept-
ember árið 1990. Stefán Jónsson og
Óskar Jónasson að sprella.
Ólafur J.
Engilbertsson
Drifkraftur frumsköpunar
Smekkleysa fagnar aldarþriðjungsafmæli með útgáfu veglegs afmælisrits Fjöldi greina, sjald-
séðar ljósmyndir og veggspjöld meðal efnis „Mörg ár í vinnslu,“ segir Ólafur Engilbertsson
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt