Morgunblaðið - 06.01.2021, Page 28
Fuglabjargið nefnist tónleikhúsverk eftir Birni Jón Sig-
urðsson sem sviðslistahópurinn Hin fræga önd frum-
sýnir í samstarfi við Borgarleikhúsið á Litla sviðinu á
laugardag kl. 13. Tónlistina semur Ingibjörg Ýr Skarp-
héðinsdóttir og leikstjóri er Hallveig Kristín Eiríksdóttir. Í
sýningunni bregða leikarar og hljóðfæraleikarar sér í
hlutverk fugla sem búa í fuglabjarginu á eyjunni Skrúði
fyrir mynni Fáskrúðsfjarðar. Áhorfendur fá að fylgjast
með einu ári í eyjunni þar sem árstíðir koma og fara.
Fuglabjargið frumsýnt á laugardag
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Trommuleikarinn Magnús Trygva-
son Eliassen er í nokkrum hljóm-
sveitum og dúettum. Hann er eftir-
sóttur í sínu fagi og spilaði inn á tíu
plötur með jafn mörgum böndum á
nýliðnu ári. „Ég hef haft nóg að
gera,“ segir hann slakur.
Þegar Magnús var sex ára, 1992,
byrjaði hann að læra á trommur.
„Ég eyddi löngum stundum á hverj-
um degi við að slá á lærin á mér og
því var ákveðið að slá til,“ segir
hann um upphafið. Guðmundur R.
Einarsson var fyrsti kennarinn.
„Hann reyndist mér mjög vel og
kenndi mér margt sem ég nota
enn.“ Hann hafi síðan haft marga
kennara heima og erlendis og spilað
með mörgu góðu tónlistarfólki. „Það
að spila með fólki hefur fleytt mér
hvað lengst og mest.“
Magnús hefur einkum haft lifi-
brauð af því að semja og spila tón-
list undanfarin 15 ár. „Ég hef mest
spilað „skringipopp“ og impróv-
íseraða eða snarstefjaða tónlist, eins
og það er víst á íslensku.“ Hann
segir gaman að spila alla tónlist.
„Ef við trúum því að við séum að
gera eitthvað skemmtilegt er gam-
an.“
Auk þess að leggja ýmsu tónlist-
arfólki lið í sérstökum verkefnum
hefur Magnús lengi verið í hljóm-
sveitum eins og ADHD, Amiinu,
Moses Hightower og Hirst og.
Hann og Sölvi Kolbeinsson spila
líka oft saman sem dúett svo dæmi
séu tekin. „Tónlistarfólk er alltaf
tilbúið til þess að koma saman og
spila og það er mikilvægt.“
Trommarinn leggur áherslu á að
ekkert sé nýtt undir sólinni en hann
sé umkringdur mjög færu fólki sem
reyni að ýta sjálfu sér og öðrum
áfram í nýjar áttir. „Því fleiri
klukkutímum sem ég eyði í að
semja tónlist eða spila á sér stað
meðvituð eða ómeðvituð þróun.“
Nóg að gera
Samkomutakmarkanir vegna kór-
ónuveirufaraldursins hafa komið í
veg fyrir tónleika með mörgum
áheyrendum, en tónlistarfólk hefur
leitað lausna, spilað fyrir fámennari
hópa og streymt miklu efni með
góðum árangri. „Þessi blessaða
veira hefur veitt mér þann stór-
brotna munað að ég hef getað eytt
tíma með sjálfum mér, farið yfir
hluti í tónlist sem hafa lengi setið á
hakanum,“ segir Magnús. „Ég hef
líka haft meiri tíma en áður til þess
að semja tónlist. Því hefur margt
gott komið út úr þessu ástandi og til
dæmis hefðu þrjár eða fjórar plötur,
sem ég tók þátt í að gera ekki litið
dagsins ljós á nýliðnu ári ef veiran
hefði ekki tröllriðið samfélaginu.“
Allt tónlistarhald og öll spila-
mennska tekur mið af sóttvarna-
ráðstöfunum. Magnús segir að tón-
listarfólk þurfi að laga sig að
breyttum aðstæðum og hann haldi
áfram að spila fyrir fólk þótt færri
megi koma saman hverju sinni en
áður. Hann spili til dæmis með
hljómsveit Mikaels Mána Ásmunds-
sonar í Mengi við Óðinsgötu í kvöld,
verði með útgáfutónleika með Sölva
Kolbeinssyni á sama stað fimmtu-
dags- og föstudagskvöld og spili þar
á tónleikum með hljómsveit Tuma
Torfasonar á sunnudagskvöld. „Sem
betur fer er alltaf staður og stund
fyrir tónlist.“
Tónlistarmaður Magnús Trygvason Eliassen semur tónlist og spilar á trommur með góðu fólki.
Fjölhæfur trymbill
Magnús Trygvason Eliassen spilaði inn á margar plötur 2020
... stærsti
uppskriftarvefur
landsins!
MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 6. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
„Við erum á mjög fínu hóteli ásamt portúgalska liðinu
og höfum ekki undan neinu að kvarta. Við erum út af
fyrir okkur með eina hæð á hótelinu. Auk þess eru
fundarsalur og matsalur á annarri hæð sem við notum.
Við erum á ráðstefnuhóteli og portúgalski hópurinn
notar aðrar tvær hæðir fyrir sig og sín fundahöld,“ seg-
ir Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóri HSÍ, meðal
annars um gang mála í samtali við Morgunblaðið í dag
en karlalandsliðið mætir Portúgal í kvöld í undankeppni
EM klukkan 19:30. » 22
Tímafrekt ferðalag hjá landsliðinu
en góður aðbúnaður í Portúgal
ÍÞRÓTTIR MENNING