Morgunblaðið - 09.01.2021, Side 1

Morgunblaðið - 09.01.2021, Side 1
L A U G A R D A G U R 9. J A N Ú A R 2 0 2 1 Stofnað 1913  7. tölublað  109. árgangur  HEKLA · Laugavegur 170 · Sími 590 5000 · www.volkswagen.is/id3 #NúGeturÞú Verð frá 5.190.000 kr. Nýr ID.3 Rafmögnuð upplifun! ÞETTA VAR BRENNANDI ÁST Í MEINUM SPINNA ÞRÁÐINN HVÍTA NÝ PLATA 41GRÖFIN FUNDIN 38 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Reykjavíkurborg lýsir sig andsnúna hugmyndum um frestun fasteigna- gjalda til að koma til móts við fyrir- tæki í kórónuveirufaraldrinum. Þetta kemur fram í umsögn fjár- mála- og áhættustýringarsviðs borg- arinnar um drög að frumvarpi sem á m.a. að auðvelda sveitarfélögum að styðja fyrirtæki í faraldrinum. Fyrirtæki í vanda fái aðstoð Áherslan er þar ekki síst á fast- eignagjöld en þau eru ferðaþjónust- unni þungur baggi í faraldrinum. Samband íslenskra sveitarfélaga (SÍS) lýsir yfir stuðningi við drögin en sú umsögn er samin í samráði við Lánasjóð sveitarfélaga. Umsögn Reykjavíkurborgar er á allt öðrum nótum og eru þar gerðir lagalegir og fjárhagslegir fyrirvarar við breytingu á fasteignagjöldum. Í fyrsta lagi kosti það borgina allt að tvo milljarða að fresta greiðslu fasteignaskatta samtímis því sem hún uppfylli ekki skuldaviðmið. Í öðru lagi geti fylgt því áhætta fyrir borgina að veita greiðslufresti, enda kunni þeir að verða eftirsóttir hjá verst settu fyrirtækjunum. Jafn- framt geti borgin ekki vænst þess að fá lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga til að fjármagna frestun á greiðslum. Myndi rýra réttarstöðuna Í þriðja lagi lýsir borgin sig algjör- lega mótfallna tillögu um að breyta stöðu dráttarvaxta af vangreiddum fasteignasköttum, enda rýri hún réttarstöðu hennar sem kröfuhafa. Þá kalli umfangsmikil greiningar- vinna á umsækjendum á ríkisaðstoð. Afstaða borginnar gæti reynst þungvæg fyrir endurreisn ferða- þjónustunnar enda eru þar til dæmis flest stærstu hótel landsins. MStyðja frestun … »18 Borgin vill ekki aðstoða  Fjármálasvið borgarinnar gerir miklar athugasemdir við aðstoð við fyrirtæki  Frumvarp á að styðja fyrirtæki í faraldrinum  SÍS styður það hins vegar Ekki hlutverk borgar » Borgin telur það ekki hlut- verk sveitarfélaga að koma að „fjárhagslegri aðstoð við lög- aðila eða að veita þeim vaxta- laus lán til lengri tíma eða fella niður gjöld“ og því verði slíkar aðgerðir að koma frá ríkinu. » Samtök ferðaþjónustunnar telja brýnt að afskrifa „stóran hluta“ skulda fyrirtækja sem safnaðist upp í faraldrinum.  Þegar ný lög sem banna versl- unum sölu á plastpokum tóku gildi sat Fríhöfnin uppi með tæplega árs birgðir af pokum merktum fyrir- tækinu. Fyrirtækið hefur náð sam- komulagi við Pure North Recycling í Hveragerði um að pokarnir verði endurunnir. Verð þeir því bræddir upp og breytt í plastperlur sem aft- ur verða seldar í aðrar plastvörur. Fríhöfnin telur að pokarnir séu á bilinu 600- 800 þúsund talsins. »2 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon 800 þúsund plast- pokar endurunnir Stofnun hálendisþjóðgarðs er það málefni sem er efst á baugi hjá um- hverfis- og auðlindaráðherra, Guð- mundi Inga Guðbrandssyni, um þessar mundir. „Allt er þetta hluti af stærri sýn. Með friðlýsingum, sérstaklega þjóð- görðum, tökum við ákvörðun um að vernda náttúruna og gera henni kleift að þróast sem mest á sínum eigin forsendum, á sama tíma og við erum að opna aðgang að henni svo fólk fái notið hennar með margvís- legri útivist,“ segir hann. „Um leið erum við að skapa tæki- færi fyrir ferðaþjónustuna og fyrir byggðirnar í kringum hálendis- þjóðgarðinn,“ segir Guðmundur Ingi en rætt er við hann í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina þar sem hann fer yfir sín hjartans mál. Morgunblaðið/Ásdís Ráðherra Guðmundur Ingi segir hálendisþjóðgarð skapa verðmæti. Ákvörðun um verndun náttúrunnar Fólk beið eftir því að komast að á veitingastaðn- um og brugghúsinu Bastard á Vegamótastíg þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti leið þar hjá í gærkvöldi. Frá og með komandi mið- vikudegi mega gestir á sóttvarnasvæðum veit- ingahúsa vera tuttugu í stað fimmtán eins og nú er, samkvæmt því sem kveðið er á um í nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra. Stjórnvöld kynntu nokkrar tilslakanir aðgerða í gær. »4 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Beðið eftir sæti og tilslökunum stjórnvalda

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.