Morgunblaðið - 09.01.2021, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 09.01.2021, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 2021 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Súðavíkurhreppur og Íslenska kalk- þörungafélagið stefna að því að hafa fyrir miðjan febrúar tilbúin drög að samningi um lóð undir verksmiðju félagsins, Djúpkalk, í Súðavík. Skipulag er nú klárt. Hins vegar hef- ur Djúpkalk ekki fengið nýtingar- leyfi frá Orkustofnun til efnistöku í sjó. Áform fyrirtækisins hafa frest- ast um þrjú ár vegna seinagangs í leyfismálum. Íslenska kalkþörungafélagið hef- ur hug á því að koma upp kalkþör- ungaverksmiðju í Súðavík, jafnstórri þeirri og félagið rekur á Bíldudal. Framleiðslugeta hennar á að vera 120 þúsund tonn. Eftir að umhverf- ismatsferli lauk loksins á vormán- uðum sótti félagið um leyfi til að nýta dauða kalkþörunga úr sjónum í Ísafjarðardjúpi. Umsóknin var send 8. maí á síðasta ári. Nýtingarleyfið grundvallast á upplýsingum sem afl- að var vegna umhverfismatsins. Halldór Halldórsson, forstjóri Ís- lenska kalkþörungafélagsins, segir að ekki sé hægt að taka ákvarðanir um fjárfestinguna fyrr en þetta grundvallaratriði liggur fyrir. Samið fyrir 15. febrúar Verksmiðjuna á að byggja á upp- fyllingu í Helluvík, fyrir landi Súða- víkurhrepps, inn af Langeyri í Álfta- firði. Sveitarstjórn samþykkti deiliskipulag fyrir lóðina og tilheyr- andi stálþili og viðlegukant í apríl síðastliðnum. Hraðfrystihúsið – Gunnvör, sem á nokkur hús á eign- arlóð sinni á Langeyri, kærði deili- skipulagið til úrskurðarnefndar um- hverfis- og auðlindamála. Nefnin hafnaði því að fella skipulagið úr gildi, taldi rétt að því staðið. Bragi Þór Thoroddsen sveitar- stjóri segir að með því hafi skipulag- ið verið endanlega staðfest. „Við er- um þá tilbúin í næstu skref, útboð á stálþili og uppfyllingu á lóð,“ segir Bragi. Hann getur þess að unnið sé að dýpkun í Súðavíkurhöfn og efnið notað í uppfyllingu í Helluvík. Áætlað hefur verið að kostnaður Súðavíkurhrepps við að útbúa lóð fyrir verksmiðjuna og tilheyrandi hafnaraðstöðu gæti orðið nálægt 300 milljónum króna. Hugmyndin er að verksmiðjan muni greiða þann kostnað til baka á tilteknum tíma. Bragi telur að það taki Súðavíkur- hrepp stuttan tíma að fá sitt til baka og verksmiðjan muni koma sam- félaginu vel. Forsvarsmenn Súðavíkurhrepps og Íslenska kalkþörungafélagsins ákváðu á fundi í fyrradag að vinna að drögum að samkomulagi um lóðina og greiðslur fyrir hana og hafa þau tilbúin 15. febrúar. Halldór segir mikilvægt að hafa þetta plagg tilbúið þegar nýtingarleyfi fæst. „Við meg- um engan tíma missa,“ segir hann. Þarf að flytja raforku Ætlunin er að auka fullvinnslu í verksmiðjunni í Súðavík með svo- kallaðri kornunarverksmiðju. Þá er kalkþörungaduftið kornað. Afurðin fer mikið í skepnufóður og segir Halldór að aukin eftirspurn sé eftir kornuðum kalkþörungum. Það eykur raforkuþörf verksmiðj- unnar. Áætlað er að þegar fullbyggð verksmiðja verður komin í fulla framleiðslu þurfi hún 10 MW afl. Það er ekki til reiðu í Súðavík eins og er. Aðeins eitt megawatt fæst og er það flutt með línu yfir fjallið frá Ísafirði og því er afhendingaröryggi lítið. Samið hafði verið við Vestur- verk um kaup á orku frá Hvalár- virkjun en frekari framkvæmdum við virkjunina hefur nú verið frestað. Halldór segir að Djúpkalk sé í við- ræðum við Orkubú Vestfjarða og Landsnet um að tryggja næga og örugga raforku. Hefur hann það eft- ir talsmönnum fyrirtækjanna að ekki sé vandamál að útvega orkuna, nóg sé af rafmagni í landskerfinu en hana þurfi að flytja inn á Vestfirði með núverandi flutningslínu. Spurður um aðra möguleika segir Halldór: „Við höfum sagt það að ef við fáum ekki það rafmagn sem við þurfum verðum við að flytja inn gas. Ég myndi halda að það væri meiri akkur fyrir samfélagið að sjá til þess að næg raforka væri í Súðavík.“ Bendir Halldór á að mesta orku- notkunin sé við þurrkun og væri hægt að brenna gas til að knýja þurrkara, eins og gert var í upphafi í verksmiðju fyrirtækisins á Bíldudal. Áformin stranda enn á leyfi til nýtingar  Byrjað að undirbúa uppfyllingu fyrir Djúpkalk í Súðavík Töluvuteikning/Djúpkalk Djúpkalk Kalkþörungaverksmiðjan verður á uppfyllingu við nýjan hafn- arkant í Helluvík, innan við Langeyri í Álftafirði. Þorpið sést fjær. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fyrirhuguð afhending sjávarútvegs- fyrirtækisins FISK Seafood á nokkrum eignum á Skagaströnd til Sveitarfélagsins Skagastrandar hafa ekki verið teknar fyrir í sveitar- stjórn. Halldór G. Ólafsson oddviti telur rétt að taka við eignunum þótt þær séu ekki í sem bestu ásig- komulagi og gera úr þeim tækifæri. Framkvæmda- stjóri FISK, Friðbjörn Ás- björnsson, sagði frá fyrirhuguðum fjárfestingum og breytingum á húsakosti í opnu bréfi til samstarfs- fólks á fyrstu dögum nýs árs. Meðal þess var að fram undan væri að af- henda Skagastrendingum án endur- gjalds stjórnsýsluhús og hús sem áð- ur hýstu rækjuverksmiðju og síldarverksmiðju. Vinnumálastofnun mikilvæg Eignin, sem kölluð er stjórnsýslu- hús, er skrifstofuhúsnæði sem var í eigu Skagstrendings áður en FISK tók reksturinn yfir. Sveitarfélagið á hluta af neðstu hæðinni og er þar með skrifstofur sínar auk þess sem greiðslustofa Vinnumálastofnunar er með hluta hæðarinnar á leigu. FISK á tvær efri hæðirnar. Mið- hæðin stendur auð en þar var áður gistiheimili. Greiðslustofa Vinnu- málastofnunar er á efstu hæðinni. Rúmlega 20 starfsmenn eru hjá Vinnumálastofnun á Skagaströnd. Halldór segir að starfsemin sé mik- ilvæg. Laga þurfi húsnæðið svo að- stæður Vinnumálastofnunar verði ásættanlegar. Gerðar hafi verið til- lögur að breytingum. Segir hann mikilvægt að ráðast í þær og telur rétt að setja þær í forgang. Í þessum pakka er einnig 1.600 fermetra hús sem áður hýsti rækju- vinnslu og fiskvinnslu. Það er notað sem geymsla og hýsir ákveðna starf- semi sem tengist Kaupfélagi Skag- firðinga. Halldór segir nauðsynlegt að laga ytra byrði hússins til að koma í veg fyrir frekari skemmdir. Vonast hann til að hægt verði að koma þar upp einhverri starfsemi. Þriðja húsið er gömul síldarverk- smiðja á hafnarsvæðinu sem breytt hefur verið í frystigeymslur. Halldór segir að það hús megi hugsanlega leigja út eða selja. Húsunum hefur lítið verið haldið við á undanförnum árum og kostar umtalsverða fjármuni að taka þau í gegn. Halldór segir að málið sé kynnt þannig að þau verði afhent án endurgjalds og telur hann rétt að taka við þeim og vinna að viðhaldi í áföngum, frekar en láta þau grotna áfram niður. Jafnframt verði sköpuð ný tækifæri í atvinnurekstri á Skagaströnd. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Skagaströnd Reynt verður að finna gömlu fiskvinnsluhúsunum nýtt hlut- verk, að sögn oddvita. Fyrst þarf að ráðast í kostnaðarsamt viðhald. Dýrt að laga húsin á Skagaströnd  Oddvitinn vill þiggja gjöf FISK Halldór G. Ólafsson Stuðningur við skógrækt félaga og samtaka NÝIR STYRKIR TIL KOLEFNISBINDINGAR: UPPLÝSINGAR OG UMSÓKNIR: www.skogur.is/vorvidur UMSÓKNARFRESTUR TIL 1. FEBRÚAR 2021! Sverrir Kristinsson Lögg. fasteignasali Sími: 861 8514 sverrir@eignamidlun.is Traustur kaupandi óskar eftir 220-350 fm eign á framangreindum svæðum. Sterkar greiðslur í boði. Traustur kaupandi óskar eftir 250-400 fm einbýlishúsi eða parhúsi. Æskileg staðsetning: Selvogsgrunn, Sporðagrunn, Teigar eða Lau- garásvegur. Góðar greiðslu í boði. Æskileg staðsetning: Melar, Hagar eða Ægissíða. Afhendingartími samkomulag. Góðar greiðslur í boði. Traustur kaupandi óskar eftir 150-200 fm raðhúsi eða parhúsi á einni hæð. Æskilega staðsetning: Fossvogur eða Seltjarnarnes. Traustur kaupandi óskar eftir 130 – 140 fm íbúð við Vatnsstíg,. Góðar greiðslur í boði. EINBÝLISHÚS EÐA RAÐHÚS Á SELTJARNAR- NENSI EÐA Í VESTURBORGINNI ÓSKAST. EINBÝLISHÚS EÐA PARHÚS ÓSKAST TRAUSTUR KAUPANDI ÓSKAR EFTIR 140-200 FM SÉRHÆÐ Í VESTURBORGINNI. RAÐHÚS EÐA PARHÚS ÓSKAST VATNSSTÍGUR – ÍBÚÐ ÓSKAST SALA FASTEIGNASÍÐAN 1957 GRENSÁSVEGUR 11 SÍMI 588 9090 WWW.EIGNAMIDLUN.IS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.