Morgunblaðið - 09.01.2021, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 09.01.2021, Qupperneq 16
ÚR BÆJARLÍFINU Svanhildur Eiríksdóttir Reykjanesbæ Áður en ég flyt tíðindi úr Reykjanesbæ vil ég óska lesendum gleðilegs árs.    Þrjár ungar konur búsettar hér í bæ voru áberandi á árinu 2020 og var ánægjulegt að fylgjast með vel- gengni þeirra. Þetta eru þær Elen- ora Rós Georgsdóttir bakaranemi sem gaf út sína fyrstu bók á árinu, Bakað; Sólborg Guðbrandsdóttir stjórnandi samfélagsmiðilsins Fá- vita sem einnig gaf út sína fyrstu bók á árinu með sama nafni og stýrir nú starfshópi um eflingu kynfræðslu í grunn- og framhaldsskólum og Sveindís Jane Jónsdóttir knatt- spyrnukona sem var nýlega útnefnd ein af tíu efnilegustu knattspyrnu- konum Evrópu af UEFA og byrjar árið í atvinnumennsku. Ekki ama- legt það.    Það hillir undir verklok á end- urbótum sem staðið hafa yfir í Sund- miðstöðinni frá því í byrjun sumars. Að vísu átti framkvæmdum að ljúka í október sl. en ýmislegt óvænt kom upp á eins og gjarnan vill verða þeg- ar farið er að hrófla við gömlum byggingum. Búist er við að hægt verði að taka nýju pottana, gufubað og sána í notkun um miðjan janúar og að rennibraut verði komin upp í jan- úarlok. Um er að ræða heitan pott mót morgunsól og kaldan pott þar við hliðina. Þá hefur gufubað verið endurnýjað og sána sett upp. Það má heyra á sundlaugargestum að eftirvæntingin er mikil. Sérstaklega hafa þeir saknað gufubaðsins og kalda pottsins meðan á fram- kvæmdum hefur staðið.    Flugeldasala gekk vel hjá Björgunarsveitinni Suðurnesjum í ár og sýna bráðabirgðatölur að sala er sambærileg og í fyrra. Aðspurð um sölu á rótarskotum, sem er leið björgunarsveitanna til að styðja við skógrækt í landinu, virðast vinsæld- ir þeirra hafa dalað, en sala fór vel af stað í upphafi. Svo virðist sem fólk vilji frekar láta féð renna til björg- unarsveitarinnar og hjá Suður- nesjum fengust þær upplýsingar að fólk kysi t.d. að borga hærra verð fyrir stjörnuljósið og styðja þannig betur við starfið. Hjá Keflavík, íþrótta- og ung- mennafélagi, fengust þær upplýs- ingar að mun meira hefði selst af flugeldum í ár en í fyrra. Skot- glöðum Reyknesbæingum hefur því ekki fækkað, þvert á móti, þótt til- finning þeirrar sem hér ritar hafi verið sú að rólegra yfirbragð hafi verið yfir gamlárskvöldi í ár og skot- tíminn styttri en oft áður.    Atvinnuleysistölur í Reykja- nesbæ hafa náð áður óþekktum hæð- um. Ef rýnt er í tölur frá Vinnumála- stofnun hefur atvinnuleysi aldrei verið meira á þessari öld; er nú um 23%. En snúi maður tölunum við eru um 77% vinnandi fólks í sveitar- félaginu með atvinnu. Þótt oft geti verið gott að líta á málin frá öðru sjónarhorni er veruleikinn sá að at- vinnuleysi hefur farið úr 8,6% í 23% á 12 mánaða tímabili. Stærsti einstaki hópur atvinnu- lausra hefur starfað við flutninga, um þriðjungur, og þar vegur Flug- stöðin þungt. Starfsfólk Icelandair er hins vegar að gera sig klárt fyrir viðspyrnu og því má vænta breyt- inga í þeim hópi um leið og flug- samgöngur færast í eðlilegt horf að nýju. Maður heyrir nú fleiri áfanga- staðaauglýsingar og byrjað er að taka flugvélaflotann úr geymslu á Keflavíkurflugvelli þar sem stór hluti hans hefur verið í geymslu á undanförnum mánuðum.    Og höldum áfram að horfa björtum augum til framtíðar. Áætlað er að framkvæmdir við varnargarð við Njarðvíkurhöfn og nýja þurrkví við Skipasmíðastöð Njarðvíkur hefj- ist með vorinu. Nýja skipaþjónustan er hugsuð fyrir stærri skip, sem Skipasmíðastöðin hefur ekki getað þjónustað. Skipaþjónustuklasinn mun skapa fjölda nýrra starfa. Samþykkt hefur verið 600 milljóna framlag frá ríkinu til varnargarðsins gegnum Hafnabótasjóð og Reykjaneshöfn leggur til um 400 milljónir. Reiknað er með að samanlagður kostnaður beggja verkefna verði um þrír millj- arðar króna og er hluti Skipasmíða- stöðvarinnar áætlaður einn og hálf- ur til tveir milljarðar króna. Gert er ráð fyrir að taka á móti fyrstu skip- unum árið 2022.    Útivistarsvæðið í Njarðvíkur- skógum sem verið hefur í uppbygg- ingu á undanförnum misserum hefur verið vel nýtt á nýliðnu ári. Fólk er sérstaklega duglegt að nýta göngu- stígana til heilsueflingar, en þar er einnig 18 brauta frisbígolfvöllur og afgirt svæði fyrir hunda, ásamt grill- aðstöðu.    Umsóknir í Velferðarsjóð Suðurnesja voru samtals 110 í des- ember og fjöldi á bak við þær um 300 manns. Þetta er sambærilegt og undanfarin ár að sögn starfsmanns sjóðsins, sem tók fram að mikið hefði munað um úrræði ríkisstjórnarinnar um framlengingu tekjutengingar á atvinnuleysisbótum. Hins vegar hefði starfsfólk fundið vel fyrir kvíða og áhyggjum hjá fólki því margt hvert missi tekjutenginguna nú í upphafi árs.    Hjá Fjölskylduhjálp Íslands á Suðurnesjum voru úthlutanir mun fleiri og hafði fjölgað mikið frá fyrra ári. Alls 883 úthlutanir voru í desem- bermánuði og bak við þá tölu eru hátt í 2.500 manns. Um er að ræða matarúthlutun og úthlutun inneignarkorta en að auki fengu allir jólagjafir. Búist er við að fjöldi um- sækjanda verði áfram mikill. Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Endurbætur Hillir undir verklok á endurbótum sem staðið hafa yfir í Sundmiðstöðinni síðustu mánuðina. Unnið er við að slétta undirlagið þar sem marglitri rennibraut verður komið fyrir. Framkvæmdum við sundmiðstöð að ljúka 16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 2021 Arctic Sea Fish áformar að meira en tvöfalda eldi á laxi í sjókvíum í Dýra- firði. Fyrirtækið hefur nú leyfi til að framleiða 4.200 tonn af regnbogasil- ungi og laxi í firðinum en áformar að auka eldið í 10 þúsund tonn af laxi, miðað við hámarkslífmassa. Er það einmitt það eldi sem Hafrannsókna- stofnun setur sem hámark á burðar- þol fjarðarins og áhættumat. Matvælastofnun og Umhverfis- stofnun hafa auglýst tillögu að rekstrar- og starfsleyfi fyrir aukið eldi Arctic Sea Fish í Dýrafirði. Gert er ráð fyrir laxeldi á fjórum að- skildum eldissvæðum, Gemlufalli, Haukadalsbót, Eyrarhlíð og Skaga- hlíð. Fyrirtækið er þegar með eldi á þremur fyrsttöldu eldissvæðunum. Skagahlíð kemur til viðbótar og er sú staðsetning utar í firðinum en hinar. Gemlufall er innsta staðsetn- ingin, beint á móti Þingeyri. Óveruleg umhverfisáhrif Niðurstaða umhverfismats Arctic Sea Fish er að áhrif aukins eldis séu í flestum tilvikum óveruleg. Nei- kvæð áhrif verði að miklu leyti stað- bundin og afturkræf en fram- kvæmdin muni hafa verulega jákvæð áhrif á hagræna og sam- félagslega þætti. Í áliti Skipulags- stofnunar segir að stofnunin telji að áhrif á súrefnisstyrk og magn nær- ingarefnis í sjó geti orðið nokkuð neikvæð á staðbundnu svæði innan Dýrafjarðar. Komið hafi upp að- stæður í sjó þar sem svifþörungar hafi valdið skaða á eldi í firðinum. Þar sem fyrirhugað eldi rúmist inn- an burðarþolsmats telur Skipulags- stofnun ólíklegt að aukið eldi muni auka líkur á þörungablóma. helgi@mbl.is Laxeldi í Dýrafirði meira en tvöfaldað  Arctic Sea Fish fullnýtir burðarþolið Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Sjókvíar Arctic Fish er með eldi í nokkrum fjörðum Vestfjarða. RESOURCE SENIOR ACTIVE MÁLTÍÐ Í FLÖSKU Senior Activ drykkirnir frá Nestlé eru sérstaklega orku- og próteinríkir næringardrykkir sem eru sérhannaðir fyrir eldra fólk. fastus.is/naering Opið mán - fim 8:30 – 17:00, fös 8:30 – 16:15 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.